Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 68
68 íslendingum góð sveit, er þó ekki til neins fyrir fleiri að hugsa til að flytja þangað, því þar era nú öll lönd numin, sem nokkur slægur er í. Pann i. ágúst kvaddi jeg Argylesveit og fór með eimlest frá bænum Cypress River til Winnipeg. Var jeg það kveld boðinn í kveldskemmtun, er söfnuður síra Hafsteins Pjeturssonar hjelt i kirkju þeirri (»Tjaldbúð- inni«), sem hann hefur komið sjer upp og er mjög snoturt hús. Fóru þar fram ræðuhöld, söngur og hljóðfærasláttur. Ræður hjeldu: sira Haf- steinn, Stefán f’órðarson (úr Arnessýslu) og jeg, en söngnum og hljóð- færaslættinum stýrðu synir þeirra bræðra Jónasar og Helga Helgasonar í Rvík. Næsta dag notaði jeg til að heimsækja ýmsa landa, og þá heini- sótti mig skáldið Jón Olafsson, sem komið hafði snöggva ferð frá Chi- cago, og þótti mjer gaman að tala við hann. Fann 3. ág. var »Islendinga- dagur«, árshátíð Vesturislendinga, er haldin var i sama garði og sýningin hafði í verið. Var þar saman kominn múgur og margmenni, bæði úr bænum og annars staðar að. Þar vóru fluttar 3 íslenzkar ræður (Jón. Ólafsson, Wilhelm Paulson og jeg) og ein ensk aukreitis. Þá ræðu hjelt Magnús Brynjólfsson, málaflutningsmaður frá Dakota, og var hún að vísu vel flutt og af mikilli rnælsku, en ekki var efni hennar að mínu skapi, þvi hún fór öll i þá stefnu, að sýna fram á, að Vesturíslendingar ættu sem fyrst að hafa hamskipti, kasta íslenzka belgnum og verða alamerískir. Hafði óneitanlega margt af því, sem hann sagði, við allgóð rök að styðj- ast, en þó dauðlangaði mig til þess að tala á móti, og mundi. hafa gert það, ef jeg hefði ekki verið gestur. Þar var og hljóðfærasláttur, kvæði flutt og margar aðrar skemmtanir, einkum iþróttaleikir (svipað og i Ar- gyle), en ekki var jeg við þá staddur, því jeg var ekki vel frískur þann dag. Hafði ekki þolað hitann daginn áður. Næsta dag heimsótti jeg ýmsa landa; var i dagverðarboði hjá skóla- bróður mínum Ólafi lækni Stephensen, sem er nýgiptur íslenzkri konu, og sat að náttverði hjá sira Magnúsi Skaptason, sem er mjög fjörugur og skemmtilegur maður. Daginn eptir (5. ág.) kvaddi jeg móður mina og stjúpa, sem fylgt höfðu mjer til Winnipeg, en nú hjeldu heimleiðis, og gáfu þau mjer dýrindis gullúr að skilnaði til minja um fund okkar, og var grafið nafn mitt, ár og staður á úrið. Datt mjer þá i hug, að ekki hefðu þau haft ráð á að gefa slíka gjöf, þegar þau bjuggu búi sínu í Heiðarseli heima á íslandi. Sama dag hjelt jeg af stað suður til Bandarikja, til þess að skoða byggð Islendinga i Dakota og heimsækja ýmsa landa þar. Hafði jeg góða samfylgd, þvi síra Jón Bjarnason átti erindi þangað suður, til þess að vígja nýja kirkju, og kapteinn Sigtryggur Jónasson slóst og með i förina. Fórum við með eimlest suður til Grafton, en þar var fyrir vagn frá Móritz lækni Halldórssyni (Friðrikssonar), til þess að sækja okkur, því við höfðum áður skipzt á hraðskeytum og vissi hann því hvenær okkar mundi von. Ókum við síðan til Park River, sem er bær með 1000 ibúum, og gistum þar næstu nótt hjá læknishjónunum. Var þar slegið upp stórveizlu og setið fram á nótt, enda höfðum við á margt að minnast, læknishjónin og jeg, þvi við vórum vel kunnug frá Khöfn. Þar hitti jeg og skólabróður minn Lárus Árnason (úr Vestmannaeyjum), sem hefur atvinnu i lyfjabúð þar í bænum, og enn fremur sira Steingrím
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.