Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1897, Side 12

Eimreiðin - 01.05.1897, Side 12
92 vini nje vandamenn í sveitinni og þar gat enginn maður bliknað eða roðnað, þó hann birkti klárinn. En Tobías vann fyrir fæði sínu þann daginn og fjekk spegilfagran tólfskilding að auki. En af því hann buskaði Lýsing kornu líka afleiðingarnar. Það þurfti ekki neina sjerlega skarpskyggni til að sjá, að Tobías var mesti snillingur að slátra; hann var bæði handlipur og handviss, ekki ein einasta rispa eptir hnífsoddinn á allri húð- inni. — Og þegar hann svo — náttúrlega fyrir eigin reikning — risti á kviðinn og tók innan úr, fórst honum það svo slynglega, að Hans á Harastöðum samdi strax við hann um að slátra báðum grísunum sínurn fyrir jólin. En þá tók nú lika steininn úr stíflugarðinum. Nú fjekk hver einasti bóndi í allri sveitinni Tobías til að slátra fyrir sig. Og það var sannarlega að gefa ókunnum lausingja byggðarleyfi. Hann var eins sjálfsagður sveitarslátrari eins og þar var sveitarskóari og umgangsskraddari; það var visst verðlag að hann fjekk 4 skild. fyrir grísinn, 8 fyrir kúna, 6 fyrir kvíguna, og ókeypis fæði þann daginn og nokkuð af görnunum í tilbót. Tobías stakk peningunum í vasa sinnj en hagræddi görnunum til beitu á smáfiskiöngla; hann seldi þessa beitu fiskimönnunum hringinn í kring um fjörðinn. Það var ekki um að tala, hann var allra verk- lægnasti maður og töluvert hagur líka; bjó manna bezt til rottu- gildrur, tjargaði báta, gerði við kollur og kirnur og bjó út veiðarfæri. Annað veifið hvarf hann svo enginn vissi hvar hann var nið- ur kominn. Þegar tilteknu sláturdagarnir nálguðust og ekkert frjettist til Tobíasar, þá var ekki trútt um að hlutaðeigendur yrðu nokkuð langeygir; en reyndin varð ávallt sú, að Tobías var eins viss að koma og almanaksdagurinn sjálfur; hann snaraðist bæ frá bæ og svæfði og slátraði rjett eins og til var tekið; hann var þá vanalega með nokkrar rjúpnakippur og sagðist hafa snarað rjúp- urnar uppá fjöllum. Hann var mesti vinsældar gestur á bæjun- um og svínaskrokkarnir þóttu miklu útgengilegri vara í kaupstaðn- um, þegar hann hafði slátrað þeim. En sæludagar Tobíasar í sveitinni urðu helzt til skammir. Sætleiki mannfagnaðarins dofnaði áður langt um leið. Það rauk skyndilega í hreppstjórann sá dugnaðarblossi og eftirlits ákafi um allskonar lausingja og menn, sem ekki höfðu heimilisfang, að eng- um þess konar mönnum var við vært. Sjálfur kúgaði hreppstjór-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.