Eimreiðin - 01.05.1897, Síða 15
95
Tobíasi var líka orðin fu.ll alvara. »Hann á bæði kotið og
kofana.«
Þá varð Marta Malvína uppvæg. »Heyrðu nú Tobías! Hjá
hverjum færðu mjölið og síldina ofan í okkur? . . . Hjá hverjum,
kaupmanninum eða hreppstjóranum? Þú hundfitnar ekki af því
frá hreppstjóranum, skal jeg segja þjer. Kannske við getum jetið
kofaveggina?« Hún stóð eins og merk'ikerti og veifaði til þeirn
handleggnum, sem barnið sat ekki á. — »Láttu hann bara ala kúna
og grísina þangað til þú ert búinn hjá honum, sem lætur okkur
fá allan matinn. Eða það fer eins og áður, hann tekur það bara
uppí skuldina! — Það er bæði synd og skömm að svikja kaup-
manninn, eins og hann hefur æfinlega reynzt okkur. Hann hefur
líka hnífinn og loforð frá þjer; manstu eklti eptir þvi Tobias?«
Svona sterkum rökum gat Tobías ekki mótmælt; hann horfði
um hríð beint niður i gólfið. Það varð að vera svo, að kaup-
maðurinn sæti í fyrirrúmi, úr því hún var svona áköf með það.
En í brjósti hans sat einhver stingandi broddur . . . hreppstjór-
inn átti þó kotið.
Hefði Tobías aðeins vitað, þar sem hann sat og sneri húfunni
sinni og braut eigin tilfinningu á bak aptur til að geðjast konunni
— hefði hann þá vitað eins og var um allan kritinn og ríginn
milli kaupmannsins og hreppstjórans og hvað i húfi var, ef fyr var
lokið sláturstörfum hjá hreppstjóranum en kaupmannskonunni, þá
hefði hann ekið öðruvísi seglum eptir vindi. En honum var ekki
gefin sú list, að sjá gegnum holt og hæðir.
Flóð og íjara fossuðu daglega með stríðu straumfalli út og
inn um mjóa sundið hjá Kevíkinni; og út i Skeri, mitt i straum-
unum stóð Gabríel gamli i fjörunni, steingrár og brimsollinn og
og mændi fram á sjóinn eptir fiskinum. Um langa hrið hafði
ekki orðið vart við annað en kolkrabba og blekfisk, sem sveimuðu
fram og. aptur milli þangs og þara. En loksins varð þó vart við
smáfisk, sem betur fór; það var þó gott i soðið handa þvi í kot-
inu; og nú bjóst Tobias í fiskiróður.
Það var seinasti morguninn sem hann sat á miðinu innan
við sundið og dró smáfisk. Elzti sonurinn, io vetra gamall, var