Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1897, Síða 29

Eimreiðin - 01.05.1897, Síða 29
109 gárungarnir veittu þeim hluta Tobíasar sem mesta athygli, vildi svo óheppilega til, að á bakhlut brókanna höfðu verið saumaðar tvær kringlóttar skinnbætur, til að taka á móti mesta slitinu; skinn- bætur þessar voru þykkvar vel, og gljáandi af núninginum, svo það bar æði mikið á þeim, þegar Tobías beygði sig; þær voru sviplíkar gömlu stóru gleraugunum með hornspöngunum, tveimur nýslegnum eirpeningum, sem liggja á mórauðum umbúðapappír með ofurlitlu millibili, eða tveggjarúðu-glugga á búrstafni. Hvor þessi kringla var einmitt á stærð við hæfikringluna þeirra strák- anna þarna, — þá uppgötvun gerðu þeir sjálfir — það var um að gera að »hitta kringluna«, »smella í kringluna«, »rjett í hana miðja!« —Tobías heyrði, og sá, og fann, og skildi, eins vel og það hefði verið »útlistað« vísindalega fyrir honum, þetta sem strákarnir höfðu fyrir stafni, sjer til dægrastyttingar og gamans. Snjókökkarnir hvinu allt af fleiri og fleiri, eins og eðlilegt var; og loksins leit Tobías varlega um öxl sjer; snöggu þrumu- leiptri brá fyrir í augunum; niðurandlitið varð dálítið skakkt við, rjett eins og hann væri að bíta i sundur örmjóann títuprjón; svo þokaði hann sjer enn betur til hlífðar smábörnunum í ferjunni. Því verður ekki neitað, að þeir voru ekki tilfinningalausir, strákarnir þeir arna, — það kom hver hvínandi smellurinn eptir annan, small í sífellu i gömlu skinnbrókinni bættu. En þetta var líka seinasta kveðja fósturfoldarinnar til Tobíasar. Kefirðingar höfðu margar getur um það, hvernig Tobíasi liði vestan hafs, eptir að það hafði staðið í blaði, sem kom út í Chi- cago og þeir sáu, að þar væri geysistórt fjelag, »TOBIAS & SYNIR«, er slátraði svínum með gufuafli. Lauslega þýtt af forgils gjallanda. Um nýjan skáldskap. í I. árg. »EIMRE1ÐARINNAR« (bls. 140—141) reit jeg grein um hin »yngstu skáld Dana« og skýrði frá stefnu þeirra í skáldskap og þeim

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.