Eimreiðin - 01.05.1897, Síða 41
121
18. Var sami Sunnann-út-sunnann vindur; hvesti þegar á daginn leid,
þykknadi og gieck til austurs. Um Nóttina vidhieldst sarna vedur
med regni, enn sneri sier þó lítid eitt til sudurs.
19. Um morguninn var þurt vedur med sama mótvindi. Sáum glöggt
Halland í Svíariki og Stadinn Varberg þar med hans Kastala. fá
hiellt Skipherrann Skipsrád, hvört heldur halda skyldi til Hafnar þar,
edur annarsstadar vid Svíaríkis strandir, krydsa, ellegar snúa aptur til
Norvegs. Meintu menn þá ýmislegt. Skipherrann var fyrst á bád-
um áttum, enn timburmadurinn gat þó aldeilis giört hann vilja-
lausann ad hlaupa þarinn hvad Stýrimadurinn og nockrir adrir vildu.
Hinna hugur stod til Norvegs, og vard þad af, ad Nordur eptir
var snúid.
20. Var um morguninn Lögn(I). Eptir hádegi hvessti á sunnann, og síd-
ann á Landsunnann. Sigldum vid þá innanum flota af Engelskum
Kaupskipum, hierum 26, sem höfdu med sier Orlögsskip þ: her-
skip] til varnar af hrædslu fyri Fröckum. Nú hieldum vid á leid
til Norvegs. Um nóttina sáust undir eins vitarnir á Jyllands skaga
og í Marstrand í Sviaríki. Var Regn og Hvassvidri.
Siöunda Vika.
21. Hvassvidri á Austann-Landsunnann med Stórhridjum. Sigldum beina
stefnu til Norvegs. Um hádegisbilid gjördi mesta óvedur, enn þegar
upplétti, snerist vindurinn til útsudurs. Sáum vid þá Land allskamt
frá ockur, og vorum komnir i einhvörja Bukt í Norvegi. Sigld-
um til Lands og flöggudum eptir Lóts. Skipherrann sá ad sönnu
eitthvad til hans, enn hann gat ekki komist fyri strauminum og
stórsiónum. Hjeldum vid þvi aptur frá Landi.
22. Um morguninn útsynningur. Sigldum á ný til Lands í sömu bugt
og fyrr. Nú komu lótsar á Bát. Var fyri þeim gamall skrítinn
kall í blárri Kapu med Parruk, úngur madur frískur, og dálítill
drengur sem hielt toginu (kadlinum) fyrir þann gamla, en úngi
madurinn fór upp í skipid. Þeir vóru frá Ey sem heitir Jomfrú-
land og budust til ad lodsa ockur inn í Kaupstadinn Langesund, sem
liggur vid munna eins mikils fiardar, vid hvörn þrír adrir Kaupstad-
ir, Scheen, Brevig og Porsgrund liggia. Til seinastnefndrar Hafnar
hafdi nýlega einn Franskur Kapari flutt 2 Engelsk skip sem hann
tekid hafdi, og visiteuren þ: tollheimtumaðurinn] í Lángasundi qvadst
heyrt hafa hann nýlega hefdi veidt 8 til, og læi med þau inn í
Arendal. Kl. hierumbil 2 nádum vid höfn í Lángasundi. Sundid
edur höfninn er fárra fadma breidt, millum húsa stadarins og kletta
klappa, sem eru alþaktar af skógi á bádar sídur. I höfninni láu x 1
önnur kaupskip, Dönsk og Norsk.
23. —27. Láum Kyrrir í Langesund.
28. Sigldum út úr Langesund Kl. 9 um morguninn med hægum byr
á útnordann. Sídann snerist vindurinn til vesturs og Lögn(!) gjörd-
ist. — — — Cœtera desunt þ: Niðurlagið vantar].