Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1897, Page 65

Eimreiðin - 01.05.1897, Page 65
:45 Sú bezta hjálp, sem landstjórnin getur látið bankanum í tje, er, að auka ábatavæn störf hans og stækka starfsvið hans; þetta getur landstjórnin með því, að fela bankanum á hendur þau opin- ber störf, er hæfa honum bezt, og mun þá flestum koma fyrst í hug þau störf, er nú er gengt af landfógeta, greiðslur á tekjum og gjöldum landsjóðs. Ef landsbankinn tæki að sjer þessi störf, þá ykist verksvið hans mjög mikið, er hann kæmi í samband við kaupmenn út um allt land, því hvar sem litið er á líka banka erlendis, þá munu menn fljótt sjá, að einmitt kaupmannastjettin er þeirra aðalstoð og stytta. Landfógetaembættið er nú sem stendur launað með 5100 krón- um, en auk þess eru veittar 1000 krónur til skrifstofuhalds, og 200 krónur til þess að bæta mistalningu á peningum, er fyrir kynni að koma. Alls borgar þá landsjóður 6300 krónur til þessa embættis, og þótt þessi upphæð lækki nokkuð við næstu land- fógetaskipti (niður í 4600 krónur), þá er þétta samt svo mikið fje fyrir jafn fátækt land, sem Island er, að æskilegt væri að það yrði sparað. Ef nú landsbankinn tæki að sjer innheimtu og útborgun i tekjum landsjóðs, þá ætti að mega spara allt þetta fje, því að því fer svo fjarri, að landsjóður ætti að þurfa að borga bankanum nokkur laun fyrir þennan starfa, að hann (bankinn) ætti einmitt að geta greitt landsjóði lága vexti af þeim peningum, er landsjóður á inni hjá honum í hvert skipti, t. d. */2—1 °/0. Laun bankans fyrir störf hans ættu þá að vera fólgin í því, að hann fær- að nota peninga landsjóðs gegn lágum vöxtum. Samband landsjóðs og bankans verður þá þannig: Landsjóður hefur reikning í bank- anum (»folio«) og getur lagt inn í hann peninga, og tekið þá út, án nokkurs fyrirvara. Inn í þennan reikning leggur landsjóður tekjur sínar á þann hátt, að hann ávísar bankanum þær allar, en bankinn innheimtir þær, og greiðir lága vexti af þeim, en skuld- bindur sig aptur til þess, að hafa peninga á reiðum höndum, í hvert sinn er landsjóður -þarf á peningum að halda. Eegar svo til útgjaldanna kemur, ávísar landshöfðingi á landsbankann, en bankinn borgar svo þær ávísanir. Ef slík tilhögun ætti sjer stað, mundi aldrei einn eyrir liggja vaxtalaus að óþörfu, því jafnskjótt og ávísanir landsjóðs væru fallnar í gjalddaga, fengi landsjóður vexti af upphæðinni hjá bankanum, en bankinn fær fje í veltuna. Það er því engin ástæða til þess að halda, að landsjóður mundi 10

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.