Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Page 3

Eimreiðin - 01.09.1908, Page 3
ekki tekist. P’jóðirnar hafa smám saman rifið hlekkina af sér, og »afneitaðs konungum og keisurum, en tekið sjálfar að sér stjórn- ina. Þaö stjórnarfyrirkomulag (lýðveldið) er það eina rétta; og sú hugmynd, að svo sé, verður að grafa um sig hjá þjóðunum, þangað til kóngar allir »komast í mát, og keisarar náblæjum falda.s Pangað til öll stjórn í heiminum verður lýðveldisstjórn, og fólkið fær að stjórna sér sjálft, en losnar við alla menn, sem ganga með þá herfilegu ímyndunarveiki, að þeir séu fæddir til að stjórna, eða séu skipaðir til þess af »guðs náð.« Sjálfsagt blandast engum, sem til þekkir, hugur um það, að Bandaríkin í Norður-Ameríku hafi það frjálslegasta og bezta stjórn- arfyrirkomulag, sem til er í heimi, enda er stjórn þeirra fyrirmynd heimsins. Sú þjóð er hvorki að rogast með valdalausa eða einvalda keisara og konunga, með margar miljónir í laun. Nei. Hann hefir einar ,S' 50000 (nál 185 þús. kr.) í laun, Bandaríkjaforsetinn, og ókeypis bústað, meðan hann er forseti; eftirlaun engin, og ekkert handa skylduliði sínu. Og þetta er þó atkvæðamesti þjóðhöfðingi heims- ins, og þjóðin ein með þeim allra auðugustu. Pó launin séu ekki hærri en þetta og þó forsetaefnin viti það, að þau geta ekki orðið æfilangur landsómagi þjóðarinnar eftir að hafa slept embætti, þá á samt þjóðin æfinlega völ á sínum beztu mönnum í forseta- stólinn. Petta er aðeins sýnishorn af stjórnvizku Bandaríkja- manna. Hagsýni og frelsi einkennir alt þeirra stjórnarfyrirkomu- lag. Pau tvö höfuðatriði geta allar þjóðir af þeim lært. Par á meðal eru Islendingar. Og þetta tvent er vænlegasta ráðið til að auðgast að fólki og fé. Ef íslendingar væru eins hagsýnir og Bandaríkjamenn, þá mundu þeir ekki hafa jafnmarga óþarfa hálaunaða embættismenn, og þeir hafa haft, og hafa enn. Sá maður af íslendingum, sem mest virðist hafa til þessa fundið, og mest og bezt hefur um það ritað, er dr. Valtýr Guðmundsson. Með hinni skörpu og ágætu ritgerð sinni um sembættisgjöld íslands* í Eimr. XI, 1, og svari sínu til próf. B. M. Ólsen’s í Eimr. XII, 1, sannar hann með óhrekjandi röksemdaleiðslu, að Islendingar borga óhæfilega mikla fúlgu til embættismanna, miðað við það, sem aðrar þjóðir verja til sama, í samanburði við fólksíjölda. Pví miður virðist svo, sem þessi ágæta hugvekja hafi ekki náð því tangarhaldi á hugum íslendinga, sem hún hefði átt að ná, og nær á nálægum tíma. Of fáar raddir frá alþýðumannastéttinni hafa heyrst, sem taka

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.