Eimreiðin - 01.09.1908, Blaðsíða 11
\7i
verður stjórnin að fara frá völdum, ef hún fær ekki samþykt
þau frumvörp, sem hún leggur sjálf fyrir þingið. Með öðrum
orðum, ef hún hefur ekki meirihluta þingsins sér fylgjandi. Verið
getur, og það hefur oft komið fyrir, að frumvörp*), sem stjórnir
hafa lagt fyrir þing, hafa riðið algerlega í bága við sannfæringu
þeirra eigin flokksmanna. En hvað gjöra stjórnarþingmenn, þegar
svo ber undir? Pað, að þeir stinga sinni eigin sannfæringu svefn-
þorn, og greiða atkvæði með frumvarpinu, stjórninni í vil, til
þess að fella hana ekki, og til þess að firra sjálfa sig því,
að þurfa að fara á nýjan leik fram fyrir kjósendurna, til að biðja
um kosningu. I'annig er gangurinn í þessum tilfellum hér í Canada,
og þannig er það annarstaðar, þar sem líkt fyrirkomulag er.
Pingmenn Bandamanna mega aftur á móti æfinlega greiða
atkvæði eftir sannfæringu sinni, án nokkurs ótta. Þeir hafa því
undir öllum kringumstæðum ástæður til að láta sína eigin skyn-
semi og hagsmuni kjósenda sinna ráða gjörðum sínum í stað þess
að láta einn mann, eða lítinn flokk manna ráða þeim (stjórnar-
form. eða stjórnina). Tvent er það mjög mikilsvarðandi, sem
Bandamenn hafa í lögum sínum, og snertir embættismenn þeirra
og þingmenn, og það er þetta: i. að þeir banna æðri embættis-
mönnum kjörgengi til annarra embætta eða sýslana, hverjar sem
eru, meðan þeir hafa embættið á hendi, og dómurum að gefa sig
við pólitískum málum nema að greiða atkvæði sitt. 2. Þeir
krefjast þess, að allir embættismenn og þingmenn eigi heima í
því umdæmi eða kjördæmi, sem þeir eru embættismenn eða
fulltrúar fyrir.
Hvorttveggja þetta ættu Islendingar að taka upp. Sem betur
fer, er mentun komin svo langt á Islandi, að það er óþarfi fyrir
sýslur, t. d. að fara út fyrir sín eigin takmörk til að sækja þing-
mann, eða aðra fulltrúa.
Sá, sem búsettur er í kjördæminu, er að öllum jafnaði miklu
færari um að vita, hvað þarf að gjöra fyrir kjördæmið — og eins
fær um að vita, hvað landinu í heild kemur að gagni — heldur
en sá sem aldrei kemur í það, nema ef tii vill að eins einu sinni
rétt fyrir kosningar. Og ekki get ég annað séð, en bóndinn og
*) Þarf ekki annað en minna á kosningalagafrumvarpið, sem stjórnin lagði
fyrir síðasta þing.