Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Page 5

Eimreiðin - 01.09.1908, Page 5
Dálaglegur skildingur. Og þessu kastar fátæk þjóð og fámenn, sem af öllum kröftum þarf að taka á til að hefja sig áfram á framfarabrautinni, árlega til óþarfa. Eitthvað mætti gjöra til þjóðþrifa fyrir 140 þús. kr. á ári. Og eruð þið ekki á sama máli og ég um það, landar mínir og lesendur, að betur væri þessum peningum ykkar varið til að hefja hana fóstru okkar upp til vegs og frama, sjálfum okkur og niðjum okkar til hamingju og blessunar en henda því í óþarfa embættismenn? Eg veit, að þið játið þessari spurningu langflestir; en ég býst við, að þið um leið óskið eftir, að ég skýri fyrir ykkur, hvernig þessi kostnaðarsparn- aður megi verða. Tillögur mínar í því efni ganga að nokkru leyti í sömu átt og dr. Valtýs í ritgjörð hans, sem ég mintist á; en sá er aðal- munur, að ég ætla að sníða alt stjórnarfyrirkomulag Islendinga eftir stjórnarfyrirkomulagi Bandamanna, í hinum einstöku ríkjum þeirra; en ekki eftir brezkum nýlendum, því brezkt stjórnarfyrir- komulag kemst ekki þangað með tærnar, sem Bandamanna hefur hælana. Eins og gefur að skilja, er ekki hugsanlegt að hafa það í öllum atriðum alveg eins, sérstaklega vegna þess, að hvert rík Bandamanna hefur margfaldan fólkstjölda á við ísland, og þarf þarafleiðandi að hafa fleiri embættismenn. Eg ætla þá þessu næst að bregða upp fyrir ykkur, lesendur mínir, mynd af nýju stjórn- arfyrirkomulagi, sem ætti að vera á íslandi, og er sniðið eftir stjórnarfyrirkomulagi Bandamanna í ríkjum þeirra. Eg byrja á lægstu stjórnendum, og held svo áfram upp stigann, þangað til hann er á enda. Sveitarstjórnir geta verið alveg eins og þær eru nú, og haft sömu störf til að inna af hendi. Kosnar af sömu kjósendum (hreppsbúum), en kosning ætti að vera þar sem annarstaðar leynileg. Oddvitinn ætti að vera kosinn af öllum kjósendum, en ekki af nefndinni sjálfri, eins og nú er. Eftir samkomulagi ætti hann að vera launaður úr sveitarsjóði. Næst kemur hreppstjóri. Hann ætti að vera óháður sveitarstjórninni, og ekki kjörgengur í hana, meðan hann væri í því embætti. Hreppstjórinn á að vera kosinn af öllum atkvæðisbærum*) *) Eg þarf naumast að taka það fram, að ég tel sjálfsagt að kvenfólk hafi alveg sama rátt til allra kosninga og karlmenn í öllum málum, ef það eins og þeir borgar eínhverja upphæð — þó lítil sé — til almennra þarfa.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.