Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Page 66

Eimreiðin - 01.09.1908, Page 66
226 að flytja, en aftók með öllu að gifta sig, og hver hinna veikst líka undan því. Svo kom þeim og móður þeirra saman um, að láta stúlkuna sjálfa skera úr því. Og eitt kveld spurði móðirin hana uppi við sumarfjósið, hvort hún ekki vildi flytja að Völlum sem eiginkona, og stúlkan kvaðst til í það. En hvern af piltunum hún vildi þá eiga, því hún gæti fengið hvern þeirra, sem hún vildi. — Ja, það hefði hún alls ekki hugleitt. — Pá yrði hún nú að gera það, því það væri komið undir henni. — Paö yrði þá líklega að vera sá elzti. — En hann gæti hún ekki fengið, því hann vildi fyrir engan mun kvongast. — IJá tilnefndi stúlkan þann yngsta En móður- inni fanst það einhvernveginn svo hjákátlegt, að hann yrði fyrir því, >hann væri yngstur.« — Pá þann næstyngsta. — »Pví þá ekki þann næstelzta?« — »Ja, því þá ekki þann næstelzta?« svaraði stúlkan; því það var einmitt hann, sem hún hafði altaf verið að hugsa um, þessvegna hafði hún ekki nefnt hann. En móðurina hafði altaf grunað, frá því að sá elzti bað sig undan- þeginn, að hann hlyti að álíta, að hinum næstelzta og stúlkunni litist vel hvoru á annað. Hinn næstelzti átti því stúlkuna og hinn elzti flutti burt með honum. Hvernig jörðinni var skift, fékk enginn óviðkomandi neitt að vita um; því þeir unnu saman sem áður og hjálpuðust allir að að flytja heyið heim ýmist í þessa hlöðuna eða hina. Eftir nokkurn tíma fór móðirin að verða lasin; hún þarfnað- ist hvíldar og þurfti því að fá aðstoð, og synirnir urðu þá ásáttir um að ráða til sín stúlku, sem við og við var í vinnu hjá þeim. Hinn yngsti átti að spyrja hana um það næsta dag, þegar þau væru í hrísmó, því hann væri kunnugastur henni. En hinutn yngsta hlýtur að hafa litist vel á stúlkuna í kyrþey, því þegar hann átti að fara að spjalla við hana um vistarráðin, þá gerði hann það svo ankannalega, að stúlkan hélt að hann væri að biðja sín, og játaðist honum. Piltinum varð felmt við, gekk óðara til bræðra sinna og sagði þeím, hve illa hefði tiltekist. Pá setti hljóða alla fjóra og enginn þorði að rjúfa þögnina og verða fyrst- ur til máls. En sá næstyngsti sá á þeim yngsta, að honum þótti í raun og veru vænt um stúlkuna, og að það hafði gert, að hon- um varð svo felmt við. Hann grunaði jafnframt, hvað ætti fyrir sér að liggja, sem sé að verða piparsveinn; því ætti hinn yngsti að gifta sig, þá gæti hann ekki gert það. Honum rann

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.