Eimreiðin - 01.09.1908, Side 71
231
þess, að breyta hljómfallinu á 5. lagi. Hann hefði átt að breyta því
þannig, að það væru alstaðar hálfnótur og 4/4 í takt, í stað s/4.
Bragarhátturinn á sálminum er óreglulegur, þar sem daktýlar, trokear
og jambar skiftast á, en lagið í jambiskum hætti. Ef lagið hefði verið
skrifað »án hljómfalls«, o: með hálfnótum, hefði alt farið betur. Eins
og lagið er útgefið, falla áherzlurnar þannig í 1. v. 4. 1. »svéinár prgst-
ann’ o. s. frv. Að þetta er óhæfa, hlýtur hver maður að reka aug-
un í. Að öðru leyti er frágangurinn á bókinni góður, og ættu sem
flestir söngmenn að kaupa hana. Páll Egilsson
SVANURINN. Kvæðasafn með einrödduðum lögum. Rvík 1906.
(Bókav. G. Gamalíelssonar).
Um kvæðasafn þetta, sem þeir Stgr. Thorsteinsson og Brynjólfur
Þorláksson hafa safnað, er fátt að segja. Lögin eru flest gamlir kunn-
ingjar, sem hafa verið sungin í barnaskólum síðustu 20 árin. Text-
arnir eru og flestir áður kunnir, en einstaka þýðingar finnast þó, sem
ekki eru útbreiðsluverðar. Textar og lag hafa farið og fara enn illa
saman sumstaðar, t. d. nr. 32 og hefðu útgefendurnir ekki átt að
halda sér þar við gamlan vana og gleypa það upp með öllu saman.
Ef áframhald kemur af bókinni, vildum vér óska þess, að útgefend-
urnir gæfu því betri gaum, sem vér höfum bent á. Annars á bókin
skilið almenningshylli. Páll Egilsson.
BJARNI JÓNSSON: LYGI. Alþýðufyrirlestrar I. Rvík 1905.
Þessi örlitli ritlingur er hinn fyrsti af alþýðufyrirlestrum þeim eftir
Bjarna frá Vogi, er getið var í síðasta hefti Eimr. (XIV, 67). Er
mikill hluti hans þýðing á kafla úr siðfræði eftir Friðrik Paulsen,
þýzkan háskólakennara. Er þar fyrst leitast við að ákveða, hvað lygi
sé, og rakið, hve ljúga megi á marga vegu. Síðan er sýnt fram á
afleiðingarnar, hversu lygin valdi almennri tortrygni, sé banvæn allri
tiltrú manna í milli og hin mesta meinvættur og versti háski öllum
félagsskap og félagskipun. Er henni líkt við »falska peningasláttu®.
— »Af því að falskir peningar eru til, verða þeir réttu einnig grun-
samir.« S. G.
PÁLL BERGSSON: ÍSLAND OG AMERÍKA. Fyrirlestur. Rvík
1908.
í fyrirlestri þessum er samanburður á lífskjörum íslendinga vestan
hafs og atistan: loftslagi því, er þeir hafi við að búa, atvinnurekstri,
efnahag og framtíðarvonum, menningarskilyrðum, hugsunarhætti, sið-
ferði, trúarlífi o. fl. Og þegar hann er búinn að lýsa öllu þessu,
kemst hann að svo látandi niðurstöðu:
»Ég álít, að ísland hafi fullkomlega eins mikla kosti að bjóða og
Ameríka, eins og nú til hagar, og það ennþá hafi svo mikið falið í
skauti sínu, að það sé enn meira framtíðarland en hún. Að samt sem
áður hafi íslendingar, sem vestur fluttu á fyrri árum, grætt við skiftin,
en nú sé sú gróðavon á sandi bygð, fyrir þeim, sem hugsa til Ameríku-
ferðar. Að íslendingar vestra hafi fengið sjálfstæðari og þrekmeiri
hugsunarhátt, og að ísland á endanum fái bætta þá voðablóðtöku, er