Eimreiðin - 01.05.1912, Side 21
97
menn, en nöfnum þeirra hefi. ég gleymt. Mér er einkum mintiis-
stæður uppgjafa herforingi, sem á var fyrirtaks ijónsandlit. Fékst
hann nú í elli sinni við rannsóknir á rómverskum fornmenjum.
Ymsir vísindamenn vóru þarna líka, auk Pencks, sem verður að
telja með þeim fremstu í sínum greinum, eins og veðurfræðingur-
inn Hellmann. Að vera kennari við háskólann í Berlín er mikil
virðingarstaða, því að þangað er valið úr kennurum við aðra
þýzka háskóla, og þó að stundum mætti sjálfsagt velja betur, þá
má þarna heita einvalalið. Og slík staða er ekki lítil hjálp til að
öðlast orðstír í vísindaheiminum, því að á Pýzkalandi er ekki
fremur en annarsstaðar, eða jafnvel síður, nóg að vera mikill af
sjálfum sér, ríkið verður að marka manninn, það er embættið,
sem virðingar nýtur, meir en maðurinn, hversu framúrskarandi
sem hann er. Kemur þetta mest af því, að flesta vantar dóm-
greind, til að þeir geti sjálfir séð, hvað þeir menn eru í rauninni,
sem þeir umgangast, og nokkuð af því, að það sem menn helzt
bera lotningu fyrir, er það vald, sem stöðuna hefir veitt. F'rú
Elísabet Nietzsche, systir heimspekingsins fræga, sagði mér, að
heldur hefði bróður hennar þótt vinirnir fækka, eftir að hann
sagði af sér háskólakennarastöðu, og þótti þeim minka við það
vegur hans, sáu ekki hvers virði maðurinn var og hversu mikinn
rétt hann hafði til að segja: Die Berufenen brauchen keinen Beruf.
Kallaðir þurfa ekki embættis við, til að geta unnið gagn sjálfum
sér, þjóð sinni og mannkyninu, og eiga rétt á sér.
Útaf þessum hugleiðingum verður mér að minnast þess, hvað
Berlín er konunghollur bær. Hvar sem gengið er um þessa stræta-
breiðu borg, blasir við hið hrokafulla og harða andlit keisarans
Vilhjálms II., einkennilega harðmynt eða harðmúlað af viljafestu.
Keisarasynirnir eru auðvitað líka víða á myndum, og einkum
keisaraefni og sonur hans, fárra ára, sem getur orðið keisari
Pjóðverja seint á 20. öld, þegar margt getur orðið breytt frá því,
sem nú er, og japanaðir Kínverjar verða ef til vill búnir að fá
yfirráðin í Evrópu og Ameríku, sakir heimsku og sundurlyndis
hvítra manna, sem hafa fyrir guði þá Mammon og Mólokk og
dýrka þá með hroðalegum mannblótum, eins og þegar einhverjir
veslings Italir eru skornir sundur lifandi, lið fyrir lið, í Afríku,
og píndir á hryllilegasta hátt, af því að einhverja gróðagyðinga
ítalska, og ef til vill aðra, og gróðaklerka langaði til að auðgast
á jarðakaupum þar suður frá. Keisaraefnið yngsta er afmyndað