Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 25

Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 25
IOI Svb. Sveinbjörnsson, tónskáld. (Minni hans í samsæti að Garðar, N. Dak., i. okt. 1911.) Vertu' okkur velkominn gestur, vinsæla tónskáldið góða, hingað, sem vorsvanur, vestur, vorið í sönglist að bjóða! Héðan er farfugla fjöldinn fluttur með ljóðhörpu sína. Heill þeim, sem haustþögul kvöldin hlusta á strengina þína. Þökk fyrir lagsnilli Ijóða! iLands vors guð« strengina glæddi. alveldis ómana góða; óðsnild í söngbúning klæddi andinn, sem aldrigi þreytist; yngist í tónanna heimi sálin, þó blómæfin breytist. Blessi þig drottinn og geymi! Lengi við eldfjör í anda, ómstrengi höndin þín slái! Sönglist er ljós allra landa, lyftandi hjörtum úr dái. Tónlistar töfraverk heimur tignar, sem heilaga dóma; hjörtum, sem alfagur eimur, ódáins-strengirnir hljóma. Sæll er þinn söngelski andi! — Seztu við hljóðfærið niður! Vertu sem lengst hér í landi, að lífga’ okkur strengina viður! Vertu’ okkur velkominn gestur. vinsæla tónskáldið góða, hingað, sem vorsvanur, vestur, vorið í sönglist að bjóða! LÁRUS THÓRARENSEN. Líkami mannsins. Ekkert er til, sem er jafn-dásamlega gert eins og líkami manns- ins, né jafn-ágætlega fallið til að gegna hlutverki sínu eins og hann. Hörundið er sá furðulegasti vefur, sem til er. Það er mjúkt eins og silki, fjaðurmagnað eins og stál, litfagurt og viðkvæmt eins og krónublað á blómi, þó haldgott eins og leður, en nærri því gagnsætt, og enn fremur er það einhver versti rafaflleiðari, sem menn þekkja. — ég þori ekki að líta upp, þegar ég sé hann gamla Tuma. Eða hverju ætlaðirðu nú að svara honum, ef að þú værir kominn í minn stað?« . . . í bréfi, dags. 2. ág. 1841, sendir Jónas Konráði erfiljóð sín eftir Tómas og bætir svo við: »Laugardagskveldið fyrir hvítasunnu var mér sagt látið hans, og var ég jafn- framt beðinn um austan að, að vera kvöldið eftir búinn með ágrip af æfi hans, er hafa mætti við útförina, þar séra Jóhann Björnsson, sem hann hafði beðið að kasta moldu á sig, þóttist ekki fær um það sökum ókunnugleika. Eg myndaðist þá við það, og sat í því á hvítasunnudaginn — þú getur nærri það hafi verið skemti- legt hátíðarverk. Guð friði sálu hans.«

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.