Eimreiðin - 01.05.1912, Page 27
103
Margarethe Lehmann-Filhés.
Hinn 17. ágúst 19x1 andaðist fröken Magrét Lehmann-
Filhés í Berlín. Tryggari vinkonu hefir Island ekki átt erlendis;
hún kunni íslenzku prýðisvel og hafði slíkan áhuga á íslenzkum
bókmentum og var svo heilluð af íslenzkum þjóðfræðum, að hún
gat varla um annað talað eða hugsað, eftir að hún hafði sökt sér
niður í þau fræði.
Fröken Margrét var
fædd í Berlín 1. septem-
ber 1852 og var af góðu
bergi brotin, komin af
gáfuðu mentafólki. Faðir
hennar prófessor Rudolf
Lehmann (f 1865) var
merkur fræðimaður, og
móðir hennar, Bertha
Filhés, samdi skáldsögur,
hún var sífjörug og sí-
ung og lézt hátt komin
á níræðisaldur (á 87. ári)
4. sept. 1905. Systkinin
tvö tóku upp nöfn beggja
foreldranna og skeyttu
þau saman. Bróðirinn,
prófessor, dr. Rudolf
Lehmann-Filhés, er mik-
ilsmetinn stærðfræðingur og stjörnufræðingur, ritari í félagsstjórn
þýzkra stjörnuspekinga.
Fröken Margrét Lehmann-Filhés var snemma til menta sett,
lauk námi í einum af hinum helztu kvennaskólum í Berlín og
naut svo einkakenslu í ýmsum vísindagreinum með dætrum hins
heimsfræga líffræðings du Bois-Reymond. Sérstaklega var hún
hneigð fyrir stærðfræði og málfræði og varð ágætlega vel að sér
í fornum og nýjum tungumálum. Pað sýndi sig síðar, hve ágætan
undirbúning hún hafði fengið, því það, sem einkendi hana mest,
var hinn mikli vísindalegi þroski og dómgreind, sem er sjaldgæf