Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Page 55

Eimreiðin - 01.05.1912, Page 55
tígulegasti og mætasti maður, sem verið hefir með Vestur-íslend- ingum. Frá því að Magnús var níu ára gamall og þangað til að hann var kominn á sextánda árið, átti hann heima í íslenzku nýlend- unni á Mooselands-hálsum, og var allan þann tíma með foreldr- um sínum. Á því aldurskeiði er mannssálin næmust fyrir óllum áhrifum, sem að utan koma, og maður býr að því um alla æfi, sem hann nemur þá og iðkar. En lífið í nýlendunni í Mooselandi var alt annað en glæsilegt. Jarðvegur er ákaflega hrjóstrugur þar á hálsunum, og frumbýlingurinn varð að berjast við myrkvið og stórgrýti hvíldarlaust árið um kring, til þess að geta dregið fram lífið. Allir, bæði ungir og gamlir, urðu að vinna þar erfiðustu stritvinnu. Þar var engum líft, nema frábærum atorku-mönnum. Fæðið var af mjög skornum skamti og ekki til krafta, því þrátt íyrir hinn aðdáunarverða dugnað og iðjusemi hinna íslenzku frum- býlinga, þá var altaf þröngt í búi hjá þeim. Hjá innlendu fólki þar nærlendis var örðugt að fá atvinnu, og sízt vel launaða. Pað þótti gott, ef duglegustu menn gátu unnið sér inn hálfan dal á dag, auk fæðis, við þyngstu vinnu, og vinnukonur einn dal á viku í ströngustu vistum. — En aftur var veðurátta mild og hag- stæð þar austur við hafið, vatnið gott og heilnæmt, og útsýni víða yndisleg. Margur mætti ætla, að í annarri eins baráttu og þeirri, er háð var upp á líf og dauða við myrkvið og stórgrýti á Moose- lands-hálsum, hafi lítill kostur verið á því, að glæða andlega hæfi- leika unglinganna, og vekja hjá þeim þrá til að komast áfram til mentunar og mannvirðingar. En þó undarlegt megi virðast, þá var þar samt margt, sem stuðlaði að því, beinlínis og óbeinlínis, að íslenzk ungmenni fengu þar meiri og betri mentun en ung- menni í öðrum íslenzkum bygðum í Ameríku á þeim árum. — Fyrst og fremst var það, að hið íslenzka fólk, sem tók sér ból- festu í Nýja-Skotlandi, var yfir höfuð prýðisvel upplýst, eftir því sem bændafólk gjörist, margt af því var sérlega gefið fyrir bæk- ur og stórgáfað, eins og til dæmis: Brynjólfur faðir Magnúsar, skáldið Sigurður Jóhannesson frá Manaskál, Jón Rögnvaldsson frá Hóli á Skaga, Guðbrandur Erlendsson frá Gaukstöðum á Jökul- dal, Halla Jónsdóttir frá Svarfhóli í Hnappdalssýslu, og margir fleiri, sem hér yrði of langt upp að telja.—Fólk þetta flutti með sér vestur um haf meira og minna af íslenzkum skáldritum og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.