Eimreiðin - 01.05.1912, Page 67
J43
sinni sök og aö við höfum á röngu að standa, því hann muni
enn vel þann sgamla sáttmála«, sem gjörður var í hellinum forð-
um, þar sem vér bjuggum í fyrndinni, áður en vér þektum nokk-
ur önnur húsakynni. Hann man enn þá »gamla sáttmála«, þó að
hin svo kallaða mentun hafi daprað okkur sjón og minni, og
hann þykist í rauninni vera nær hinum eilífa sannleika þessa lífs,
þar sem fult er af torfærum og þar sem
því óvíst es
hvar óvinir sitja
á fleti fyrir.«
»Gáttir allar,
áðr gangi fram.
um skygnask skyli,
um skoðask skyli;
Lífið í gamla daga var svo einfalt og óbrotið, þá var bara
hellisskútinn með opnar dyrnar fram að dalnum og ánni, og þá
var engum blöðum um það að fletta, að hvað eina, sem nálgað-
ist hellinn, og hvað sem sást á ferð úti á eyrunum eða við skóg-
inn — það var óvinurinn — tvímælalaust. En nú á tímum er
öldin önnur, og ilt að ganga úr skugga um ýmsa hluti. Maður
verður að tolla í tízkunni og semja sig að siðum menningarinnar,
— sem í alla staði er hvimleið — og látast skilja ýmislegt, sem
í rauninni er öldungis óskiljanlegt. Pað er engu líkara en að hús-
bóndinn ráði ekki lengur yfir jörðinni, og svo virðist, sem vald
hans sé ýmsum flóknum takmörkum bundið. — Stundum sýnist
húsbóndinn alveg búinn að gleyma greinarmun góðs og ills. Eins
og t. d. þegar gamall og ljótur beiningakarl, illa til fara og ó-
þverralegur, haltrar inn um hliðið, stefnandi að bakdyrunum og
virðist búa yfir illu einu. Er þá ekki svo sem sjálfsagt að hefjast
handa og ráðast á þennan skrattans karl, þennan gamla dóna,
sem í beinan karllegg er kominn af sömu körlunum, sem vóru á
gægjum og reyndu að ágirnast ýmislegt æti við hellisdyrnar í
gamla daga? Jú, auðvitað sjálfsagt að gelta og stökkva á karlinn.
En, mundi þá ekki vinnukonan koma út bálvond og lemja mann
með eldskörungnum og hjálpa dónanum. Nei, — þetta er hverj-
um hundi hreint og beint óskiljanlegt —
Lífið er fult af margskonar ráðgátum og vonbrigðum, svo
það er örðugt að koma sér svo fyrir á takmörkum tveggja heima,
jafnólíkra og mannheimur er frábrugðinn heimi dýranna.
IO'