Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Page 14

Eimreiðin - 01.01.1916, Page 14
14 meb verkinu vinna til vonanna sinna, og syngja þar vorljóð, sem sönglaust var fyr. SUMARNÆTUR. Fangað hafa feginshug minn friðarþýðar sumarnætur drottins dætur draumablíðar. TVÍSÝNA. Með haukinn yfir höfði sér svo hróðugt ljómar söngfuglinn. hans eina veika vörnin hér er vængurinn; og kaupið, sem hans söngvum ber, er söngurinn. — Eg hlusta kannske á slög af eftir-ómum, en ekki er feigð í þessum morgun-hljómum. HEIMHUGI. Vort helga land, vort heimaland, vort hjartans land, vort feðra land, vort vænsta land, vort vona-land og vorra niðja land! Með einum hug við hötum þann, sem hatar þig, og smáum hann. Með einum hug við elskum þann, sem elskar þig, og dáum hann.1) STEPHAN G. STEPHANSSON. *) f’ariKi hafa menn þjóðsönginn. Hver vill nií yrkja lagið? RITSTJ.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.