Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 20

Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 20
20 Skógareldur. Hér á skóggyðjan heima, hér og hvergi annarstaðar. Hér eru lönd hennar og ríki. Hér er höllin hennar, hér á Skuggavatnsbökkum. Pú ættir að líta hana, þessa ilmandi, grænu, angandi skógar- höll — um sólsetursbil. Sólin er eldrauð og varpar geislum á vatnið, fyrir framan höllina. En á vatninu synda svanir, fannhvítir svanir, eins og snjórinn á efstu jökulgnípunni, þar sem engin mannleg vera hefir stigið fæti sínum. Peir brosa til kvöldsólarinnar, brosa til hennar og syngja um hana. Hún er undurfögur þetta kvöld, og þokuhnoðrana í vestr- inu hefir hún gullbrytt og sparibúið. Pví lengur sem ég hugsa um hann, því undarlegri finst mér hann, líf hans og alt, sem við hann er tengt. Pað var einmitt á svona kvöldi, sólhlýju vorkvöldi, sem ég rakst á hann fyrst. Pað var skömmu eftir sólarlag, í Ásskógin- um, þar sem hann er dimmastur. Hann kom svo hljóðlega. Ég varð hans ekki var, fyr en við stóðum augliti til auglitis. Hann virtist vera gamall maður. Andlitið var raunalegt, ennið hátt, skær, glampandi augu. Hann brosti við, svo undarlega, eins og gamlir menn einir geta brosað. En brosið hvarf von bráðar. Pað kom einskonar tignarsvip- ur á andlit hans. Hann benti með hendinni út yfir skógarásana og mælti: >Petta eru lönd mín og ríki. Ég er konungur skógar- ins.c Hann leit á mig með fyrirlitningu og bætti við: »Ég hefi gengið um skóginn í alla nótt og allan dag. Ég er búinn að telja daggardropana á laufum trjánna. Peir eru

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.