Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 23

Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 23
23 með því, að ráða drauminn fyrir góðu. Mér fanst, að Pórður yrði að ráða hann eftir eigin geðþótta. »Eg verð víst að kveðja þig núna, þórður minn. Annað- kvöld fer ég alfarinn frá Ási.< »Alfarinn! Já. Hér verður ekki gaman að vera, þegar skógurinn er farinn.« Og hann brosti við, hálfraunalega. »Við skulum vona, að guð hlífi skóginum þínum, vinur minn.« »Nei. Pað er ekki guðs að hlífa. Hann refsar. Og hann eyðir og lætur aftur vaxa.« Hann gekk í áttina til kofans síns. fegar ég kom á fætur næsta dag, stóð margt manna á hlaðinu á Ási. Menn ræddu þar um yfirvofandi hættu af skógareldinum. Bóndinn á Ási talaði hæst og mælti, um leið og hann benti til austurs: »Eldurinn færist stöðugt nær, og breyti hann ekki vindstöð- unni eða nái að rigna, þá er úti um Ásskóg.« En vindstaðan breyttist ekki, og það var ekkert útlit fyrir rigningu. Eldurinn nálgaðist óðum. Um hádegisbilið var hann kominn í austasta jaðarinn á Ás- skógi. Reykjarmökkinn lagði út á Skuggavatn og huldi það. Pað snarkaði og brakaði í trjánum, og eldflóðið breiddist um allan skóginn. Um kvöldið var enginn skógur í Áslandareigninni. Par sem skógurinn hafði staðið, var svart öskuflag, sem nokkrir hálfbrunnir stofnar gægðust upp úr. þórður dó í skóginum, eins og tiginn konungur, sem vill heldur líða undir lok með ríki sínu, en lifa eftir, rænt- ur því bezta, sem lífið hafði veitt honum: konungstign- inni. Nýr skógur er þegar byrjaður að nema land á rústum gamla, horfna skógarins.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.