Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 41
4i
Ég kannast ekki við kraftabrest-
inn,
hver kempa norræn var bagga-
fær.
Eins er það fráleitt Islendingur,
— Egilskynjaður þrekmæringur,
sem kúrir teptur við Bröttu-
brekku,
þótt bakka megi í norðri sjá,
og djúpt o’n í værðardúninn
sekkur
daufur í trúnni á mörkin
há.
Jú, þykjast munu þeir Egils-
ættar,
og ættartölurnar hundraðþættar
geyma þeir víst í vasa og barmi,
er vottað geti og sannað það,
að mergleysi þeirra í anda og
armi
sé ættgöfugt. — Pað er dýr-
mætt blað.
JAKOB THORARENSEN.
t
Athugaverð Islandslýsing.
H. WEITEMEYER: GEOGRAFISK HAANDBOG. 2.
gennemsete, udvidede og illustrerede Udg. Kbh. og Kria. 1914
(Gyldendal).
Éetta er umfangsmikil bók, 1204 bls., auk formála, í stóru
8 blaða broti, bók, »sem jafnast fyllilega á við beztu þesskonar
bækur í stóru menningarlöndunumc, að því er í boðsbréfinu
stendur, »nákvæm og ýtarleg, er lýsir til hlítar löndum og
þjóðum, ómissandi til skemtunar og fróðleiks, ungum og
gömlum, og sjálfsögð á öllum bókasöfnum og skólum«. —
Pessi lýsing frá einu áreiðanlegasta og bezta bókaforlagi á Norð-
urlöndum varð til þess, að ég pantaði bókina til skólans, enda
átti hann enga nýlega bók af þessu tægi. — Hún kom svo með
síðasta pósti. — Mér varð fyrst fyrir, að fletta upp á íslandi.
Lýsing þess er á 5 síðustu blaðsíðum bókarinnar, næst á undan
registrinu, sem er mikið og á að vera nákvæmt. Ég hljóp yfir