Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Page 42

Eimreiðin - 01.01.1916, Page 42
42 lýsinguna og varö satt að segja steinhissa; hroðvirknin var svo frámunaleg. Pað er ekki tiltökumál, þótt svo stutt lýsing sé ekki sem nákvæmust, en beinar villur mega þar engar vera; þess verður að krefjast af bók, sem svo mikið er af látið. En það er öðru nær en þessari sjálfsögðu kröfu sé fullnægt í þess- ari miklu bók. Smáum og stórum villum er hrúgað svo saman á þessar 5 bls., að ekkert viðlit er að telja þær allar hér. En nokkrar verð ég að nefna máli mínu til sönnunar. Þykir mér eigi taka því að flokka þær niður, en nefni þær nokkurnveginn í þeirri röð, sem þær eru í. Sundið milli Grænlands og Islands er kallað »Danmarks- stræde«, eins og títt er í dönskum bókum, en heitir, eins og allir vita, Grænlandshaf. Er það nafn rétthærra fyrir aldurs sakir og sjálfsagt að nota, að minsta kosti láta þess getið. — Á hnattstöðu landsins, bæði lengd og breidd, skakkar nokkru frá því, sem talið hefir verið. — Frá austri til vesturs, milli Langa- nesstár og Reykjaness — eins og þær liggi í beinni línu frá austri til vesturs! — eru taldir 490 km; en þetta er, eins og allir vita, fjarlægðin milli Gerpis og Öndverðarness. Höf. getur þess í formálanum, að aðal-grundvallarreglan um stöfun landfræðisnafna sé sú, að stafa þau eins og í heimalandi þeirra, svo framarlega sem þar sé notað sama stafrof. Til þess að sýna, hve vel höf. fylgir þessari góðu og gildu reglu, að því er til íslands kemur, skal ég tilfæra hér nokkur dæmi: Skjalf- andibugt, Eyiarfjord, Hunafjloi (í registrinu Hunafioj!), Faxafjord, Almennagjaa, Oræfaj'ókull, Drangarj'ókull, Hafnafjord eða Hanefjord, Holum (nefnifall á dönsku Holar), Saudákrok, Vestmano, verzlunar- staðurinn, en eyjarnar Vestmannöer, Skjalfandaflod. F j ö r ð u r í staðanöfnum er jafnan fjord, nema á einum stað: Eyjafjórbr, og mætti ætla, að það væri alt annar fjörður en Eyiarfjord; það nafn er í registrinu, en ekki hið rétta. Peir einir, sem vanir eru dönskum afbökunum á íslenzkum nöfnum, geta í það ráðið, að þetta muni vera sama nafnið. — Ey er alstaðar 0 og á aa eða eða á og fram eftir þessu. Suðurlandsundirlendið er kallað Skalholtsletten; áður hefir það verið kallað Geyserdalen (!) á dönsku, hvorttveggja nöfn, sem engum íslendingi hafa nokkru sinni til hugar komið.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.