Eimreiðin - 01.01.1916, Page 44
44
1557 m- Geysir segir hann að sé norður af Heklu, og skýtur
þar dálítið skökku við. — Á suðvesturströndinni segir hann, að
jökulárnar hafi sjerstaklega myndað víðáttumiklar sandsléttur og
fylt firði. Allir vita, að þetta á sér einkum stað á suðurströnd
landsins austanverðri.
Loftslag segir höf. miklu harðara á Norðurlandi en Suður-
landi og mjög mismunandi eftir árstíðum, en telur
samt vetrarhita Akureyrar 4- 6,s° og sumarhita 8,8°, en Reykja-
víkur 4- 3,5° og 12°, og eftir því ætti munurinn á sumar- og
vetrarhita að vera hjerumbil hinn sami á Akureyri og í Rvík, og
er þetta hvað upp á móti öðru. Ársmeðalhita Rvíkur telur hann
3,6° og Akureyrar 0,5°, en þetta er heldur ekki rétt. — Sá mað-
ur, er sannfróðastur er um ísland allra núlifandi manna, dr. Porv.
Thóroddsen, segir í íslandslýsingu sinni hinni miklu, sem vafa-
laust má telja hið bezta og áreiðanlegasta rit um landið, árs-
meðalhita Rvíkur 4,2°, vetrarhita -f- i,o° og sumarhita 10,5°, en
ársmeðalhita Akureyrar 2,4°, vetrarhita 4- 3,1° og sumarhita 9,6°.
Eftir þessu er mismunur vetrar og sumars á Akureyri 12,7°, en í
Rvík ii,5°, svo ekki munar næsta miklu. í Grímsey er munur-
inn enn minni, aðeins 8,6°. — Petta er alt 28 ára meðaltal.
Villandi er það, sem höf. segir um gróðurríkið, að það líkist
mjög gróðurríki Suður-Grænlands; því þótt gróðurlagið sé auð-
vitað nokkuð svipað, þá eru tegundirnar hér að miklu leyti aðr-
ar; en aftur sömu og austan hafs, svo ísland verður að teljast
til Norður-Evrópu í gróðurfræðislegu tilliti.
Ekki lítur út fyrir, að höf. viti neitt um skipun alþýðufræðslu
í landinu. — Gagnfræðaskóli segir hann að sé á Möðruvöllum.
Um botnverpingana getur höf. ekki, en segir, að fiskiveiðun-
um hafi farið mjög fram, síðan fengin voru þilskip frá útlöndum.
— Rjúpur og æðarfuglar eru að hans sögn þeir fuglar, sem
helzt eru veiddir hér, annarra ekki getið; hefði þó óneitanlega
legið nær, að nefna einhvern fugl fremur en æðarfuglinn!
Ekki tekur betra við, þegar til sögunnar kemur. Par segir,
að Norðmenn hafi fundið ísland á 9. öld, og hafi H a r a 1 d u r
hárfagri slegið eign sinni á landið, og þangað til
1262, þegar það komst undir Noreg, var það sjálf-
stætt höfðingja-lýðveldi (»toges i Besiddelse af Harald
Haarfager, og indtil 1262, da 0en kom ind under Norge, var