Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 45

Eimreiðin - 01.01.1916, Síða 45
45 den en selvstændig aristokratisk Republik<). Ljóst og gagnort ágrip af sögu Islands fyrstu 400 árin, eða hitt þó heldurl Tekjur og gjöld landsins eru talin um 3 milj. kr., 4 milj. kr. hefði verið nær sanni. Pá segir höf., að landinu sé skift í 3 ömt, Suðuramt og Vesturamt með einum amtmanni og Norður- og Austuramt með öðrum, þó 10 ár séu liðin síðan þessu var breytt, amtaskifting afnumin og amtmannsembættin lögð niður. Með helztu steinhús- um í Rvík eru talin Alþingishúsið og háskólinn. — Fyrir norðan Rvík er Reykholt, en Skdlholt fyrir austan, rétt eins og þar væri örskamt á milli. — ísafjarðarkaupstaður stendur við samnefndanfjörð, en, eins og allir vita, stendur hann við Skutilsfjörð. Og nú læt ég staðar numið, enda mun nú rit- stjóra Eimreiðarinnar og lesendum þykja nóg komið af svo góðu. Höf. gleymir ekki að geta þess, að Island sé eftir stöðulög- unum »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis með sérstökum landsrétt- indumc. Petta hefði átt að vera höf. næg hvöt til þess, að vanda eigi síður lýsingu þessa »veldishluta« en annarra hluta Danaveldis. Hafi höf. eigi vandað meira til Danmerkurlýsingar- innar og bókarinnar yfirleitt, en þessa örstutta kafla um ísland, þá hlýtur þessi mikla bók að vera stórgölluð og langt frá því, að vera ýtarleg eða áreiðanleg. Um það skal ekkert fullyrt að svo komnu, en engin fjarstæða er, að láta sér detta það í hug, því hvers átti aumingja ísland að gjalda? Sízt var þó vanþörf á, að danskur æskulýður og Danir yfirleitt hefðu einhversstaðar greiðan aðgang að glöggri og réttri íslandslýsingu; því óneitan- lega stendur þeim nær, að vita eitthvað um ísland, en um villi- mannaeyjar út um heim. Eftir að hin mörgu og stórmerku rit dr. Porv. Thóroddsens um Island og kort herforingjaráðsins danska, sem vér fáum því aldrei fullþakkað, eru út komin og öllum mönnum aðgengileg, ætti engum að líðast óátalið, að rita svona um landið okkar, og því fann ég mér skylt, að skrifa þessar línur, úr því aðrir urðu ekki til þess. STEFÁN STEFANSSON.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.