Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 70

Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 70
70 leiðinu. Einni konu hafði hann unnað af alhug, og hún kraup við altarið hjá annars manns hlið.« í annarri sögunni, sem heitir » Þ ó r a«, segir frá ungri og hraust- legri heimasætu á bæ upp til fjalla, einkabami foreldra sinna. Þar kemur ungur maður á ferð snemma vetrar, dauðveikur af brjósttær- ingu og lungnabólgu, legst þar og verður þar veturgestur, en fær heilsu sína og heldur áfram með vorinu. En bóndadóttirin, sem hefir hjúkrað honum, ber þær menjar komu hans, að hún er sjúk orðin bæði á sál og líkama, sjúk af ást tll veturgestsins og sjúk af brjósttæringu, sem hún hefir fengið í hjúkrunarlaun. Og þetta dregur hana til dauða. þriðja sagan heitir »Sumar«, og segir þar frá annarri heima- sætu upp til fjalla og ungum verkfræðiúgi, sem verður sumargestur hjá foreldrum hennar, meðan stendur á brúargerð þar í grendinni. Verða þau ástfangin hvort í öðru, en hann á sér áður heitmey, sem hann hvorki vill né getur brugðist. Skilnaðurinn verður þv( sár á báðar hliðar. En sex árum síðar, er hann er á ferð um sömu sveit- ina, em þau bæði gift. Hann vildi þó ekki koma við á heimili henn- ar, vissi ekkert, hvernig henni mundi líða, »og treysti sér naumast til þess, að sjá hana á valdi annars mannsc. Fjórða sagan heitir »Fáninn« og segir frá sýslumannsdóttur, sem trúlofast ungum sjálfstæðismanni, og hefir hann sent henni blá- hvítan silkifána sem lesmerki í bók, er hún hafði lánað honum. Verður móðir hennar æfareið, er hún verður þessa vís, en sýslumað- urinn lætur sér segjast og gefur samþykki sitt. »Hann má eiga þig, þó hann sé sjálfstæðismaður og skýjaglópur í aðra röndina,« segir hann Og þegar þau eru gift og sigla út fjörðinn og sýslumanns- hjónin standa eftir í fjömnni og horfa á skipið skreytt mörgum fán- um til virðingar ungu hjónunum, þá grætur frúin, en sýslumaður segir rauður í andliti: »Við verðum að sætta okkur við þetta, Hildur; unga fólkið siglir undir sínu eigin merki.« í fimtu sögunni, sem heitir »Tveir heimar«, segir frá ungum kaupmannshjónum og þó aðallega kaupmannskonunni, sem leikur að- dáanlega á hljóðfæri og lifir meira í heimi tónanna og endurminninga um dáinn æskuvin, en heimi veruleikans og líðandi stundar. En maður hennar, sem sjálfur einkum lifir ( heimi kaupskaparins, lítur á þetta með fullri sanngirni og segir: »Heldur þú þá, að ég sé svona vondur, að ég heimti að eiga hvert tár, sem þú grætur?« — »Nei, nei! En ég vildi sjálf, að þú ættir þau öll.« — »Álfheiður, — nei, þú gerir alt of harðar kröfur til þín. Heldur þú, að ég eigi nokkurn rétt til þess, sem var liðið, áður en við sáumst?« Flestum kemur víst saman um, að meiri vandi sé að semja smá- sögur, en langar skáldsögur. Efnið ( þeim verður annaðhvort að vera svo Ktið eða því svo saman þjappað, að þar reynir miklu meira á listfengi höf., en í stærri sögunum. Meðferðin, stíllinn, framsetningin verður aðalatriðið, miklu fremur en efnið. Það gefur mönnum því litla hugmynd um þessar sögur, þó skýrt sé frá efni þeirra í fáeinum línum, eins og hér hefir verið gert. Með- ferðin á því skiftir mestu. Og um hana er það að segja, að hún er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.