Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 75
75
íslenzk hringsjá.
GULLBRÚÐKAUP héldu þau hjónin Símon Símonsson og Valdís
Guðmundsdóttir (móðir ritstj. Eimr.) í Winnipeg, Man. þann n. okt. 1915,
eftir 50 ára sambtíð, og var gullbrtíðurin þá 81 árs (f. 3. okt. 1834), en gullbrtíð-
guminn 76 ára (f. 13. des. 1839). Var þeim þá haldin stórmikil veizla á heimili
Guðmundar sonar þeirra, og
stóðu fyrir henni, auk hans,
Guðrtín dóttir þeirra og maður
hennar, Jósep B. Skaptason.
Var þar fjölmenni mikið sam-
an komið, bæði tír Winnipeg
og frá Argylebygð, þar sem
þau höfðu btíið um 20 ára
skeið. Og gestirnir komu ekki
tómhentir, heldur höfðu þeir
dýrindis gjafir að færa. í*ann-
ig gáfu konur frá Argyle brtíð-
inni gullarmband, gulltír og 20
4ollara í peningum, konur tír
Winnipeg demantshring og
börn hennar hálsfesti úr gulli
ásamt dýrindis nisti með fanga-
marki hennar. Brúðgumanum
gáfu karlmenn frá Argyle gull-
hring, vinir tír Winnipeg gull-
btíinn staf með fangamarki
hans og dagsetning gullbrtíð-
kaupsins og börn hans gullnisti
með fangamarki hans. trenn
gullbrtíðkaupsljóð voru þeim
flutt, eftir Winnipegskáldin
Kristin Stefánsson og Sigurð
J. Jóhannesson og eftir tengda-
son þeirra, Erlend Gíslason í Vancouver B. C. Ræðuhöld voru þar og mikil, og
töluðu þar margir af hinum helztu ræðuskörungum Vestur-íslendinga, t. d. séra Frið-
rik J. Bergmann, Baldwin L. Baldwinsson, lögmaður Marínó Hannesson, séra Magn-
tís Skaptason, Arngrímur Jónsson, Jósep B. Skaptason o. fl. Af heillaóska-símskeyt-
um bárust brtíðhjónunum mörg, bæði víðsvegar að tír Ameríku og frá Evrópu
(Khöfn). Ber þetta alt ljósan vott um, hve mikla virðing og vináttu hin öldruðu
hjón hafa áunnið sér, enda kemur það og greinilega fram í gullbrtíðkaupsljóðunum.
Þannig segir meðal annars í kvæði S. J. Jóhannessonar:
Það tvíllaust allir einum munni róma, að þið hafið unnið ykkar verk með sóma
sem ykkur hafa kynst í lengd og bráð, og ætíð hylli guðs og manna náð.