Vísir - 08.12.1959, Qupperneq 2

Vísir - 08.12.1959, Qupperneq 2
2 JÓLABLAÐ VÍSIS at afli ok forvitr. Gissur var algerr at sér um alla hluti, þá er karlmaður átti at sér at hafa. Hann var farmaðr mikill inn fyrri hluta æfi sinnar.“ — — — Ennfremur eftir biskupsvígsluna í Magðaborg í Saxlandi: „Eftir þat fór Gissur byskup út til fslands, ok tók öll alþýða feginsamliga viS honum. Hann tók tígu ok virð- ing svá mikla, þegar snemm- endis byskupsdóms síns, ok svá vildi hverr maðr sitja ok standa sem hann bauð, ungr ok gamall, sæll ok fátækr, konur ok karlar, ok var rétt at segja at hann var bæði konungr ok byskup yfir landinu, meðan hann lifði. Hann hafði ekki alt land til ábúðar í Skálholti fyrst nokk-- ura stund byskupsdæmis síns, af því at Dalla móðir hans, vildi búa á sínum hluta lands* ins, meðan hon lifði. En þá er hon var önduð og byskup hlaut alt land, þá lagði hann þat alt til kirkju þeirrar, er í Skálholti er ok hann hafði sjálfr hafði gera látit, þrítug at lengd, ok vígð Pétri postula ok mörg goði Glermálverk: Maríumynd, hluti af gluggarúðu Maríustúku FRÁ MIÐDAL OG ☆ LIST § HANS Meðal þeirra, sem tóku þátt I samkeppni um skreytingu Skálholtskirkju var Guðmund- ur Einarsson frá Miðdal, en hann, ásamt Finni Jónssyni listmálara .gerði .glermálverk fyrir Bessastaðakirkju fyrir þrem árum. Samkvæmt útboði um keppn- ina var mælst til þess að þátt- takendur hefðu í huga sögn Skálholtsstaðar frá upphafi, og voru nefnd ýms dæmi um at- burði hins sögufrægá staðar. Nokkrir listamenn tóku tilmæli þessi hátíðlega og gerðu ýtar- legar tillögur í þá átt, meðal þeirra var Guðmundur Einars- son. Hann lagði fram 9 teikn- ingar. Fjórar fyrir kór, tvær í kross-stúkurnar og þrjár í hlið- arvængi aðalkirkju. Voru það fullunnar teikningar í litum í þeim hlutföllum, sem óskað var eftir í útboðsskjölum. Tillögur þær; sem nefndinni bárust voru sýndar í Austur- bæjarbarnaskóla í nokkra daga að sumarlagi, og fór sú sýning fyrir ofan garð og neðán hjá almenningi, og var lítið um hana ritað. Síðar voru tillög- urnar sýndar í Kaupmanna- höfn. Lítið fréttist um útkomu þessarar sýningar, og en minna um sjónarmið dómenda. Vísir birtir hér með tvær af tillögum Guðmundar, er önnur þeirra ætluð til skreytingar Maríustúku kirkjunnar. Sýnir myndin aðeins % teikningar- innar. Þarf sú mynd ekki skýr- ingar við. Hin myndin er um atburð þann er Dalla, móðir Gissurs Isleifssonar afhendir hinum nýstofnaða biskupsstól lands- ins Skálholt til eignar. Um atburð þenna er ritað í Biskupasögum þannig: „Gissur sonur ísleifs bysk- ups,' var fæddur í Skálholti, en hann var lærður í Saxlandi ok vígður til prests þegar á unga aldri. En er hann kom út til íslands, þá kvángaðist hann ok fékk Steinunnar Þorgrímsdótt- ur, er áður hafði átt Þórir Broddason, og bjuggu þau fyrst at Hofi í Vápnafirði. Gissur var mikill maður vexti, og vel bolvexti, bjart- eygr ok nökkut opineygr, tígul- legur í yfirbragði ok allra manna góðgjarnastr, rammur Skálholtskirkju. Skálholt afhent sem biskupssetur árið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.