Vísir - 08.12.1959, Page 8
8
JÓLABLAÐ VÍSIS
Hér sést „stúlkan með dýru brjóstin“. Hún fann upp á jtví að
tryg»ja á sér brjóstin fyrir 50,000 dollara gegn allskyns
skemmdum, og fékk viðurnefnið af því.
of-war“ (herskipa), stríðs, sjó-
ræningja, ræningja, þjófa; gegn
því að flutningi sé varpað fyrir
borð; skyndiárás, hertöku á
hafi, kyrrsetningu, upptöku,
haldi af hendi konunga, prinsa
eða almenning.
Þegar olíuflutningaskipið
WorldConcordbrotnaði í tvennt
í írlapdshafi í nóvember 1954,
féll tjónið á hið breiða bak
Lioyds. Þá varð mikill kurr í
The Room, þegar félagarnir
heyrðu, að skipið hefði verið
byggt í Bretlandi. Lloyds hafði
talið það óhugsandi, að brezkt
skip gæti brotnað í tvennt í
rúmsjó. Skipasmíðastöðin full-
yrti, að líkurnar fyrir því, að
skip brotnaði þannig í tvennt
væri eins og einn á móti millj-
ón. Lloyds var þó eftir sem áð-
ur sannfærður um að brezk-
byggt skip væri bezta skip í
heimi og greiddu tjónið möglun-
arlaust.
Veðrið varð'
Lloyds dýrt.
A stríðsárunum fór eng-
inn vátryggjandi varahluta af
ósköpunum sem yfir dundu, en
þó var það samt hin stóra
Cricket harmsaga, sem kom
Lioyds úr jafnvægi, en ekki
stríðstjónin.
Eins og kunnugt er, eru Bret-
ar mjög áhugasamir Cricket-
leikarar og Lloydsmenn eru
það ekki síður en aðrir Bretar,
og hverfur áhuginn fyrir viö-
skiptunum jafnvel í skuggann
þegar Ci’icket er annars vegar.
Eins og flest annað, sem
Lloyds tryggir, tryggir það fyr-
ir því tjóni, sem það getur haft
á leikinn, ef skyndilega tekur
að rigna á leikvellinum. Eru
iðgjöldin allmisjöfn eftir því,
hvar leikvellirnir eru staðsettir.
Þegar keppnitímanum lauk ár-
ið 1954 hafði aðeins tekizt að
ljúka þrem meistarflokksleikj-
um í Old Traffoi’d í Manchester.
Eina helgina þurfti að aflýsa
öllum meistaraflokkskeppnum,
sem búið var að auglýsa. Þeg-
ar keppnitíminn var hálfnað-
ur, var svo komið, að brezka
blaðamannasambandið hafði
gefizt upp við að halda tölu á
cllum þeim leikjum, sem fall-
ið höfðu niður í landinu sökum
veðurs. Lloyds hafði tapað ó-
grynni fjár, en þeir létu það
ekki á sig fá og héldu áfram
að ti'yggja í þeiri’i von, að þeir
mundu vinna upp tapið á kom-
andi árum. Ci’icketleikur mun
ekki leggjast niður á Bretlandi
af þeim sökum, að Lloyds hafi
gefizt upp við að skapa honum
trygg skilyi’ði, sagði einn hinna
þrautseigu, gömlu félaga.
í>ú ert kannske
tryggður hjá Lloyds.
Þótt undarlegt megi vii’ðast,
þá kemur helmingur af ið-
gjaldatekjum Lloyds frá ámer-
ískum viðskiptavinum,, eða um
Vz milljarður dollara á ári. Þeg-
ar það var ákveðið, árið 1939,
að setja upp dollaratrygginga-
sjóð í New Yoi’k og láta allar
iðgjaldagreiðslur, sem fóru
fram í dollurum, renna í þenna
sjóð, svo að hægt væri að bæta
tjónið í sömu mynt úr þeim
sjóði, sti’eymdu Ameríkanar til
Lloyds með viðskipti sín. Nú
er það Lloyds, sem hefur mest-
ar dollaratekjur allra brezkra
fyrirtækja. Mestallar tekjurnar
koma frá an\erískum vátrygg-
ingafélögum. Þegar þau hafa
tekið á sig meiri skuldbinding-
ar, en þau telja sig geta risið
undir, leita þau til Lloyds. Hvar,
sem þú býi’ð í veröldinni, er
sennilegt að húsið þitt, bíllinn
þinn og jafnvel þú sjálfur, sért
tryggður hjá Lloyds, því mögu-
legt er að félagið, sem þú skipt-
ir við hafi leitað á náðir Lloyds
með endurti’yggingar sínar.
Upphaf þessa stórveldis, sem
nú nefnist Lloyds, er rakið til
þess, er kaupmenn komu sam-
an á kvöldin í Tower Street
(Turnsti'æti) í kaffihúsi Ed-
wards Lloyds í kringum árið
1690 til að fá sér glas af víni
eða „þennan sótsvarta drykk“
— kaffið, eins og það var kall-
að með hálfgerðri fyrii’litnindu.
Uppboð
eftir kerti.
Seinna fóru þeir að auglýsa
skip til sölu í Lundúnablaðinu
Gazette og skyldu þau seld eftir
,,kertaþumlungi“ eða „eftir
kerti“. Þetta átti að skilja þann-
ig, að skipin yrðu seld á upp-
boði og var kveikt á kerti um
leið og uppboðið hófst, og var
kerti þetta einn þumlungur á
lengd. Mátti uppboðið ekki
standa lengur en kertið entist.
Brátt fjölgaði uppboðumþess-
um, og fóru herramennix'nir í
kaffjhúsinu þá einnig að bjóða
vátryggingarskírteini, þar sem
farmar skipanna voru tryggðir.
Uppboðin, sala váti’yggingar-
skírteinanna og dreifing til-
kynninga um siglingar skipanna
ukust nú svo mjög, að kaffi-
húsið var eins og suðandi fugla-
bjarg. Vai’ð Edward Lloyd þá
að neyðast til að setja upp upp-
boðspall til þess að viðskipti
gestanna gætu farið skipulega
fram.
En nú fóru ýmis vandræði að
steðja að. Ti'yggingai’viðskiptin
voru mjög áhættusöm á þessum
tímum, og í’eyndar hreinasta
fjárhættuspil.
Þeir, sem þessi viðskipti ráku,
mokuðu saman ógrynni fjár
eina vikuna, en urðu öreigar þá
næstu og urðu þá jafnvel að
taka að sér þjónustustörf hjá
Edward Lloyds til þess að halda
í sér lífinu.
Eigendur kaffihúsanna í Lon-
don kvörtuðu undan því að þeir
Framh. á bls. 34
Gerið því allt, sem í yðar valdi stendur, til-að vei’jast
þeim vágesti.
Látið pappírsumbúðir ekki safnast saman. Komið þeiin
út, annað hvort með því að brenna þeirn í miðstöðvar-
katiinum, eða hendið þeim í öskutunnuna.
Leyfið ekki reykingar nálægt jólatrénu, pappíi’sskrauti
eða pappírsumbúðum. Hafið nóg af góðum og stórum ösku-
bökkum allsstaðar í íbúðinni og notið þá óspart. Geymið
eldspýtur þar sem litlar hendur ná ekki til þeirra. Gerið
áætlun um hvað þér eigið að gera ef eldur brýzt út. Hafið
handslökkvitæki við hendina — og í lagi — vatnsfötur
eða jafnvel garðslöngu tengda við vatnskrana, nálægt
jólatrénu.
En munið, að ef þér getið ekki samstundis slökkt
sjálfur, þá kallið umsvifalaust á slökkviliðið í síma 11100.
BRENNIÐ EKKI JÓLAGLEÐINA
Húseigendafélag Reykjavíkur
JÖLIlí BJÚÐA
ELDI HEIM