Vísir - 08.12.1959, Síða 11

Vísir - 08.12.1959, Síða 11
JÓLABLAÐ VÍSIS 11 HVÍTKLÆDDAR Þrjár hvítklæddar brúðir, giítar í kirkjunni samtímis. Það er sjaldgæfur viðburður. — Kirkjuklukkurnar munu hringja hina ferföldu hamingju út yfir umhverfið. Jólasnjórinn sáldrast til jarðar og ljósin verða öll kveikt í hverri íbúð og birtu mun stáfa frá þúsund- um rúðna. Það er ég, sem á að leiða þessar þrjár brúðir upp eftir kirkjugólfinu -—• hægt, virðu- lega og hátíðlega. Hljómlistin frá orgelinu mun ólga eins og brim við strönd eilífðarinnar. Fyrst fer ég með Karen. Þá fylgi ég Lis. Og að síðustu fer ég með Beth. Þetta eru nöfn dætra okkar. Þær heita í höf- uðið á móður sinni. Þær eru þríburar, og þær eru töfrandi. Allar líkjast þær móðurinni. Á þessari brúð- kaupshátíð mun verða sam- keppni milli fjögurra fegurðar- drottninga, sem geta þó ekki tekið verðlaun hver frá annari. Þetta segi ég ekki til þess að grobba. Mér virðast þær allar jafn fagrar. Nei. í fegurðarsam- keppni myndi konan mín bera sigur af hólmi. Hún er sérstæð. Karen, Lis og Beth hafa dropa af blóði frá mér í sér. Það hefur haft áhrif, þrátt fyrir það, að ég og konan mín höfum sams konar blóð- tegund. í brúðkaupsræðu minni mun ég segja systrunum söguna um Karen-Lisbeth og mig. Það hef ég ekki gert áður. Eg ætla að hefja ræðuna með þessum orð- um: ,,Þetta er saga um ást. Ekki þá ást, sem menn skrifa um sögur og búa til kvikmyndir af. Þessi ást, sem hér er um að ræða, er eins og sístreymandi lind og kvakandi barnahlátur. Hún hitar mönnum um hjarta- rætur eins og ljós á altariskerti og tindrandi tár. Þetta er ástar- saga um einungis tvær persón- ur, sem skapaðar voru hvor handa annari, fá hvor aðra og búa saman í ást og eindregni til síðustu stundar.“ Þegar þetta verður sagt munu systurnar klappa saman hönd- unum, andvarpa hrifnar og segja: „En hve þetta er dásam- legt.“ — Tengdasynirnir þrír munu fara að hugsa um það, hvernig þeim' megi takast að verða svona hamingjusamir. Já, þannig mun upphaf ræð- unnar verða. Að því búnu mun ; ég gefa nákvæmari skýringu, og segja frá því, hvernig við, ég og Karen-Lisbeth, kynnt- umst. Eg mun ekki draga dul á neitt. Stúlkurnar skulu fá að heyra sannleikann. Eg mun segja þeim, að ég hafi njósnað um móður þeirra. Það þykir nú ekki viðeigandi. En sannleikurinn er sagna bezt- ur. Eg mun geta þess, að þetta gerðist skömmu fyrir jól. Eg var þá einmana og óglaður. Eg áleit að þau jól yrðu mér gleði- snauð. Til þess að geta haft ráð á því að fara heim til mömrnu, sem eru hvort tveggja í senn: niðurdrepandi og hrífandi. Það var hljótt í bænum og snjór á götunum. Innan skamrns myndi glamrið í flöskum mjólk- urflutningamannanna heyrast, og fyrstu sporvagnarnir halda af stað. Skyndilega leit ég upp. Ljós var kveikt í glugga. Eg sá ein- hverju fleygt upp í loftið í her- berginu, sem birtuna lagði frá. Það voru nærföt. Stúlkuhendur _ _ Hún liafði spékoppa í kinnum og hún liló. Ifún var dásamlcg. Hefði ég verið klukka myndi ég Iiafa stanzað. Ég fylgdi hcnni ósjálfrátt eftir niður götuna. sem var ekkja, í jólaleyfinu, varð ég að vinna á aðfangadag- inn og jólanóttina. Eg tók að mér símavörzlu ásamt nokkrum öðrum stúdentum, sem voru fá- tækir eins og ég. Við höfðum skrifað hvort öðru, mamma og ég, og komið okkur saman um að halda upp á jólin á jóladags- kvöld, er ég væri kominn heim. — Þannig verða fátæklingar stundum að aka seglum eftir vindi. Eg hafði haft á hendi síma- vörzlu nokkrar nætur, er hér var komið sögu. Morgun nokk- urn var ég á heimleið. Það var einn af hinum dimmu og drungalegu desembermorgnum, gripu nærfötin. Svo var sokk- um fleygt. Þá peysu, og síðast pilsi. Þetta þótti mér skrítinn leik- ur. Þegar ég var háttaður í litla herberginu, sem ég bjó í, og reyndi til þess að sofna, svifu flíkurnar, sem fjöruga stúlkan hafði fleygt og gripið, fyrir hugskotssjónum mínum. Þessi stúlka var bersýnilega í jóla- skapi og gædd lífsgleði. Hún átti það, sem mig' vantaði. Svo sofnaði ég. Er ég vaknaði, en þá var farið að halla degi, sá ég enn í anda það, sem gerðist í herbergi ungu stúlkunnar. Er ég gekk eftir götunum í jólaskreyttum bænum fór ég ósjálfrátt þang- að, sem ég hafði staðið um morguninn. Eg nam staðar framan við vélaþvottahús og horfði á húsið, sem Ijósið hafði verið kveikt í. En ég' vissi ekki inn um hvaða glugga ég hafði horft. Af tilviljun leit ég inn um glugga þvottahússins. Þar sá ég ungt ,,par“, og héldust þau í hendur, unga stúlkan og ungi maðurinn. Þau horfðu inn um rúðu á þvottavélinni. Þar þyrlast nærföt þeirra fram og aftur, hugsaði ég, og fann til einmanaleika. En í þessu bili heyrði ég raul- að glaðlega. Eg sneri mér við og horfði í brún, fjörleg stúlku- augu, og varð var við einhverja áður óþekkta áskynjun eða til- finningu. Koma þessarar ungu stúlku vakti gleði mina. Mér þótti sem við þekktum hvort annað fullkomlega, þótt við hefðum aldrei verið kynnt né fengið tækifæri til þess að tala saman. Eg áleit, að hún hefði sömu áskynjun og ég. Að baki mér opnuðust dyrn- ar og tvær ungar stúlkur komu út. „Daginn, Karen-Lisbeth,“ sögðu þær. „Jæja, þá ert á leið- inni inn að þvo tauið þitt.“ „Já, einmitt,“ sagði stúlkan með brúnu augun og hló. — Hún var í fallegri úlpu, sem var gul á lit. „Að jólaleyfinu loknu mun ég fara að búa mig á sama hátt og þú,“ sagði önnur stúlknanna. „Ih! Það er góð hugmynd,“ sagði Karen-Lisbeth. Hún leit á mig og sagði: „Eg á annríkt.“ Svo gekk hún inn í þvottahúsið. Eg stóð kyrr. Eg gat ekki farið. Eg vissi ekki hvað ég ætti að gera. En áður en ég hafði komizt að nokkurri niðurstöðu opnuðust dyr þvottahússins aft- ur. Það var hún — Karen-Lis- beth, sem kom. Eg' heyrði hana segja: „Þér ætlið að líta vel eftir tauinu mínu, frú Petersen, ef mér skyldi seinka. Eg gæti ekki haldið jólin án þess að uppfylla mína borgaralegu skyldu.“ Þá kom hún út á götuna. Er hún sá, að ég stóð á sama stað, hló hún vingjarnlega. Hún hafði spékoppa í kinnum. Hún var hrífandi. Hún var dásamleg. Hefði ég verið klukka myndi ég hafa stanzað, er hún kom í nánd við mig. Eg gekk á eftir henni. Ef ég í brúðkaupsræðu minni segi hinum þrem dætrum mín- um, Karen, Lis og Beth, að ég hafi elt þessa fögru ungu stúlku, myndu þær ef til vill álíta, að ég myndi hafa gert það, hver sem átt hefði í hlut — einungis ef um fríða stúlku hefði verið að ræða. En þvilíkt átti ekki við um mig. Þessi stúlka dró mig að sér á einstæðan hátt. Eg ákvað að gera einnig mína borgaralegu skyldu þótt ég vissi ekki í hverju hún var fólgin. Hún gekk að blóðbanka sjúkrahússins og fór inn. Hún mælti: „Eg ætla að gefa blóð.“ Eg hafði fylgt henni eftir og hafði yfir sömu orðin. Endur- tók þau. Við lentum í sömu stofu eða klefa, og lágum hlið við hlið, hvort á sínum bekk. Hún var komin á sinn bekk, er ég kom inn. Blóðið úr henni rann nið- ur í glas. Eg reyndi til þess að láta sem hér vaeri um hreina tilviljun að ræða, að ég kæmi þarna inn. Blóðtökutæki var stungið í handlegginn og sá, sem það gerði, fór að því loknu, og skildi mig og Karen-Lisbeth ein eftir. I fyrstu lágum við bæði og horfðum upp í loftið. Skyndi- lega snerum við andlitum hvort að öðru. Og á broti af sekúndu fundum við til djúprai' sam- kenndar eins og þegar menn blanda blóði og ganga í fóst- bræðralag. Eitt augnablik stóð þetta yfir og svo fórum við aftur að horfa upp í loftið og hlustuðum á kafla úr útvarpserindi frá út- varpstæki, sem var í næsta her- bergi. Fyrirlesarinn mælti: „Það er franskur prófessor, sem í draumi hefur spilað síðasta hluta af „ófullnuðu simfóní- unni“, eftir Schubert. Starfs- bróðir hans, sem hafði stjórnað tilrauninni, gaf til kynna, að þessi draumur hefði átt rót sína að rekja til þess að aðstoðar- maður hans hafði æft sama tón- inn, með nokkru millibili, um lengri tíma. Eg sneri aftur andlitinu að Karen Lisbeth. Hún sneri sér að mér og brosti daufu brosi. Ég las eitt sinn í blaði frásögn um þýzkan listamann, sem lét kviksetja sig, og lá í kistunni átta daga. Eina sambandið, sem hann hafði við umheiminn, fór fram gegnum pipu, sem v.ar stungið niður í kistuna, er hann lá í. Á hverjum degi kom stúlka og talaði við hann. Enginn vissi hvað þau sögðu hvort við ann- að, og þau höfðu aldrei séð hvort annað. En í gegnum píp- una urðu þau ástfangin hvort í öðru. Mér þótti eins og ég og Karen-Lisbeth værum í samskonar kringumstæðum. Útvarpsmaðurinn sagði: „Ný- tízku listamenn hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að hinar mörgu milljónir fruma, sem mynda líffærakerfi vort, lifi hver um sig tvíþættu lífi, þar sem þær geta geymt endur- minninguna um fortíð mannsins og „endursagt“ vissa viðburði., Þegar þessar frumur endur- nýjast reglulega af öðrum, sem einnig óska þess að segja drauma yðar, verður þetta blandað og án samhengis.11 Karen-Lisbeth og ég lágum á bekkjunum og horfðum hvort á annað og hlustuðum. Ég sagði.t „Ég ætti að geta fengið vit* neskju um allt, sem yður við* Framh. á bls. 29. J

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.