Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Síða 8

Tölvumál - 01.04.1994, Síða 8
Apríl 1994 Merki frá raforkukerfinu Kerfið safnar inn u.þ.b. 4000 stöðuvísunum og viðvörunum frá aflstöðvum, tengivirkjum og stíflumannvirkjum. Þá safnar kerfið inn 600 mæligildum eins og orkuflæði eftir háspennulín- um, spennu á línum og teinum, framleiðslu rafala, vatnshæð og hitastig í miðlunarlónum og stöðu loka, sem stjórna rennsli úr lónum. I kerfinu eru líka fjölmörg reiknuð mæligildi eins og rennsli úr miðlunarlónum, sem er reikn- að út frá vatnshæð og lokustöðu. Þar að auki er safnað inn orku- mælingum á púlsaformi frá kWh mælum. I kerfinu eru 700 rofa- stýringar eða Af/A stýringar. Framleiðslu rafala er stýrt með hækka/lækka stýringu og lokur eru stýrðar með óskgildisstýr- ingu. Flokkun viðvarana Viðvaranir eru flokkaðar í 8 flokka eftir mikilvægi þeirra. Flokkarnir eru aðgreindir með mismunandi lit á skjánum og mismunandi hl jóðmerkjum. Þegar viðvörun er staðfest, þá er hún færð í flokk staðfestra við- varana, þar sem hægt er að skoða hana síðar meir. Það er líka hægt að setja kerfið í neyðarham, en við það færast viðvaranir milli l'lokka og sumar eru staðfestar sjálfkrafa urn leið og þær berast. Þetta er gert til að skilja frá þær viðvaranir, sem minna máli skipta, þegar miklar truflanir verða í raforkukerfinu. Mæligildi geta haft allt að 3 mismunandi hámörk og lágmörk. Hægt er að hafa óvirkt svið við hvert hámark og lágmark og eins er hægt að hafa útjöfnun á mæligildum til að koma í veg fyrir of mikið liökt. Tímamerking atburða Viðvaranir eru tímamerktar með þeim tíma sem gildir, þegar þær berast stjórnstöðinni. Auk þess eru um 30% af öllum viðvör- unum líka tímamerktar í útstöðv- unum. Utstöðvarnar eru með klukku, sem móðurtölvan stillir af á 5 mínútna fresti. Þær viðvar- anir, sem eru tímamerktar í út- stöðvunum hafa 10 msek ná- kvæmni fyrir kerfið í heild, en innan útstöðva er innbyrðis ná- kvæmni milli merkja um 1 msek. Mikill munur er á lengd skeytis frá útstöð, eftir þ ví h vort um tíma- rnerkt skeyti er að ræða eða ekki. Til að korna í veg fyrir að fjarskiptakerfið yfirlestist, þegar truflanir verða í raforkukerfinu, þá eru tímamerktar viðvaranir geymdar í útstöðvunum, þar til að móðurtölvan biður um þær. Þessar tímamerktu viðvaranir eru meðhöndlaðar sérstaklega í stjórnstöð og hjálpa til við að rekja orsakir og afleiðingar trufl- unar í raforkukerfinu. Flokkun forrita í Harris kerfinu í stórum dráttum er hugbúnaði fjarstýrikerfisins skipt í fjóra flokka: 1. Stjórn- og fjargæsluhluti. 2. Raforkukerfislíkön. 3. Orkustjórnkerfi. 4. Þjálfunarhermir. Stjórn- og fjargæsluhluti fjarstýrikerfisins Stjórn- og fjargæsluhlutinn er grunnþáttur fjarstýrikerfisins og sér um að safna upplýsingum frá raforkukerfinu og að framkvæma stýringar. Gamla fjarstýrikerfi Landsvirkjunar, sem staðsett var í spennustöðinni á Geithálsi, hafði aðeins þennan þátt. Þessi kerfi eru gjarnan nefnd "SCADA" kerfi, sem er skammstöfun á "Supervisory Control and Data Acquisition". Það má segja að "SCADA" kerfið sé byggt í kringum gagnagrunninn. Upplýs- ingar, sem berast frá útstöðvunum eru færðar beint inn í gagna- grunninn, t.d. eru mæligildi færð ósköluð sem 12 bita tvenndartala í gagnagrunninn. Aðeins þær upp- lýsingarnar, sem eiga að birtast á skjá eða prentast út, eru skalaðar. Hægt er að skrá mæligildi og sýna á línuriti á skjá. Öll mikilvæg mæligildi eru líka skráð og flutt til geymslu á aðra tölvu (VAX). Raforkukerfislíkön Tölvukerfið geymir líkan af raf- orkukerfinu. Með hjálp þess er hægt að reikna út álagsflæði og meta hvort mæligildi, sem berast inn frá útstöðvunum, séu rétt. Eins er hægt að láta tölvuna reikna út hvernig álagsflæðið nryndi verða, ef t.d. háspennulína væri tekin út, eða rafali stöðvaður. Orkustjórnkerfi Meginverkefnið í daglegum rekstri er að fylgjast með því, að rafmagnsframleiðsla og álag sé í jafnvægi. Besti mælikvarðinn á því er tíðnin. Gangráðar rafala í virkjunum sjá um að stjórna vatnsrennsli um hverfla til að halda réttri tíðni. En það geta þeir aðeins gert að ákveðnu marki. Þ.e.a.s. tíðnin lækkareftir því sem álagið vex og öfugt, nema að rafölum séu gefin ný óskgildi til að leiðrétta fyrir breytingu á álagi. I tölvukerfinu er forrit, sem sér um að halda réltri tíðni. Forritið fær leyfi til að stjórna 8 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.