Tölvumál - 01.04.1994, Side 26
Apríl 1994
kosta orku, verulega meiri orku
en hitun að öllu jöfnu.
En gjörvar eiga ekki aðeins að
vera smáir. Eins og mannskepn-
unni raunar, er þeim nú talið það
helst til kosta að þeir séu einnig
fámálir. Fámælisörgjörvinn (Re-
duced Instruction Set Computing
eða R/SC) sækir styrk sinn í það
að vinna hratt með fáar og stuttar
skipanir. Það má líkja þessu við
reiðhjól sem er með einn lágan
gír en gífurlega sterkan knapa sem
ræður jafnt við brekkur sem slétta
vegi. Það vill svo til að upphaf
fámælisörgjarvans er að leita
innan veggja IBM. En enginn er
spámaður í sfnu föðurlandi og
því var rödd hrópandans innan
IBM ekki heyrð, í fyrstu.
Um miðjan síðasta áratug tók
Hewlett Packard stefnumarkandi
ákvörðun um RISC gjörva í sínum
tölvum. DEC fylgdi í kjölfarið
með Alpha gjörvann. Til þess
að lesendur geti betur áttað sig á
þessari þróun mun ég taka dæmi
um RISC örgjörvann frá IBM sem
kallaður hefur verið PowerPC,
en þetta getur auðvitað átt við
hvaða fyrirtæki sem er.
Fyrir rúmlega tveim árum eða
1991 gerðust þau undur og stór-
merki að erkifjendurnir IBM,
Apple og Motorola gengu í eina
sæng. Markmiðið var hönnun
og framleiðsla stýrikerfis og ör-
gjörva. Svo afdrifaríkt er þetta
samstarf orðið að undirritaður
sótti Apple umboðið heim í húsa-
kynnum þess í fyrsta sinn íbyrjun
desember til þess að samræma
fyrirlestra um samstarf Apple og
IBM. Fyrsta afkvæmi Motorola/
Apple samstarfsins við IBM er
601 gjörvinn úr svokallaðri
PowerPC fjölskyldu.
Lítum nánar á fjölskyldu-
myndina, mynd 1. Mikilvægt er
að gera sér grein fyrir því að hér
er á ferðinni ný kynslóð af ör-
gjörvum. Sá fyrsti/sá minnsti er
þegar kominn á markaðinn. Þess
má geta að öflugasta skáktölva
heims, Deep Blue, sem fyrr á
árinu lék nokkrar umferðir við
Bent Larsen er byggð upp í kring-
unt PowerPC örgjarvann.
Lítum nánar á fjölskylduna,
nrynd 2. Oneitanlega er freistandi
að bera PowerPC saman við
fimmuna frá Intel. Hvortgjörvinn
um sig hefur sinn styrk og sinn
veikleika.
Lítum nánar á samanburð,
mynd 3. Af öðrum atriðum má
nefna að á Bandaríkjamarkaði er
gert ráð fyrir því að Fimman
verði í einmenningstölvum/
vinnustöðvum sem séu á verð-
bilinu 8.000 - 50.000 USD þ.e.
u.þ.b. 550 þúsund til þrjár og hálf
milljón. MPC 601 er beint að
svipuðu verðbili en teygir sig
lengra niður þ.e. í 5.000 USD
eða 350.000 kr, þ.e u.þ.b. 200
þús króna mismunur á verði.
Augljósasti styrkurfimmunnar
er sá að leiða má rök að því að
um 100 milljón manns noti eða
hafa aðgang að verkefnum sem
keyra á Intel og öðrum samhæfð-
um gjörvum.
Auk lægri kostnaðar er það
601 helst til framdráttar að fyrstu
afkastamælingar benda til þess
að hann sé frá 1.5 sinnum til 5
sinnum hraðvirkari en Fimman.
Um þennan samanburð hefur
Gordon Bell sagt: PowerPC
appears to be the only archi-
tecture that can compete with
Pentium, sjá nrynd 4. Það er
íhugunarvert að vegna styrkrar
stöðu Intel og samlíkra gjörva
ætlar IBM ekki að brenna allar
brýr að baki sér heldur að selja
einnig tölvur með fimmunni. í
raun verða það tvær deildir innan
IBM, sem rnunu byggja sínar
tölvur á sitl hvorri höguninni, og
keppa innbyrðis um hylli við-
skiptavinanna. Til hvers á nú að
nota allan þennan hraða. Mark-
miðið með PowerPC gjörvanunr
er að öll algengustu stýrikerfin
geti keyrt á honum.
Nútímaviðföng eru gífurlega
krefjandi. Ritvinnsluforritin eru
orðin umbrotsforrit og grafisku
framsetningarforritin eru farin að
vinna með hreyfimyndir og
hljóð. Allt þarf þetta að gerast á
sama tíma án þess að eitt verk-
efnið tefji annað eða notandi
verði var við. Því þurfum við
ný og öflug verkfæri fyrir krefj-
andi verkefni.
Þótt mikið hafi verið fjallað
hér um gjörva og stýrikerfi er ful 11
eins líklegt að baráttan á næstu
árum standi ekki urn stýrikerfi og
örgjörva heldur um middleware
£
/
"PowerPC appears to be the only
architecture that can compete with
Pentium."
Gordon Bell
Architect of Digital's VAX
Techn. Advisory Board of Microsoft
Mynd 4.
26 - Tölvumál