Aldamót - 01.01.1900, Page 49
40
unum. Og sá munur stafar ekki aö eins af því, hve
ólíkt þær eru settar, hve misgóö eru löndin þeirra, eða
því ööru, sem vanalega er talið mönnum ósjálfrátt,
heldur líka, og það hvaö helzt, af því, hve mikið al-
vörumál þær hafa látið sér verða trúna sína. Bret-
land er gott land, en mjög fjarri fer því, að það sé frá
náttúrunnar hálfu bezta landið í norðurálfunni. Areið-
anlega skipa þó Bretar öndvegi meðal þjóðanna í
heiminum. pjóðarandinn brezki ræður nú lang-helzt
heimsframförunum. Eg gleymi ekki Bandaríkjunum
hér í Ameríku, þó eg segi þetta. því það er einmitt
sami andinn, sem ráðandi er í því þjóðlífi. En hvers
vegna fékk þessi sérstaki þjóðarandi þann makalausa
hæfilegleik til veraldlegra framfara og menningar?
Hvers vegna þessi þjóðbálkur svo greinilega á undan ?
Eg hika mér ekki við að segja, að orsökin til þess sé
sú, að kristindómurinn hefir hvergi náð að verða ann-
að eins stórveldi hjá þjóðum heimsins eins og einmitt
þar, — hvergi náð öðru eins haldi á hjörtum almenn-
ings, — hvergi orðið fólki æðri og lægri stétta annað
eins alvörumál,—hvergi eins sterklega náð að gegn-
sýra mentalílið og starfslífið. Brezka þjóðin er alveg
vafalaust, þrátt fyrir alt og alt, sem ófullkomið er í
þeim efnum, kristnasta þjóðin í heiminum. Og fyrir
þá sök sýnist hún hafa verið kjörin til þess að hafa for-
ustu á tneðal heimsþjóðannna. Og það er trúa mín,
að svo lengi sem hún heldur áfram að vera kristnasta
þjóðin verði hún líka á undan öllum í veraldlegum
efnum.
En hugsum líka í þessu sambandi um smáþjóðina
suður og austur í Afríku, sem nú í þrjá ársfjórðunga
hefir verið að berjast fyrir sjálfstæði sínu einmitt gegn
i