Aldamót - 01.01.1900, Page 56
56
og skólarnir aðallega í þeirra höndum. Blöðin
og tímaritin í þeirra höndum. Auðurinn og verzl-
anin og iðnaðurinn í þeirra höndum. Og jafnvel
pólitíkin í þeirra höndum. þetta skilst mér liggi
í því, þegar frelsarinn lýsir yfir því, að hinir
hógværu muni jarðríkið erfa. Og eins og þér heyrð-
uð telur hann þá út af þessu væntanlega jarðneska
hlutskifti þeirra sæla. þetta er ein af hinum ógleym-
anlegu sælu-yfirlýsingum Jesú Krists. Og er þá auð-
sætt, að hann ætlast alls ekki til þess, að hin jarð-
nesku gæði skuli vera virt að vettugi af kristnum
mönnum, en ætlast þvert á móti til þess, að þeir jafn-
óðum og þeir komast yfir þau, með þau sívaxandi
handa á milli, hrindi þjóðlífunum og heiminum lengra
og lengra áfram til tímanlegrar farsældar.
Einhver allra fyrsta trúarlexían, sem Israelsmenn
til forna lærðu, var einmitt þetta, að hinn jarðneski
hagur þeirra sem þjóðar væri fremur öllu öðru undir
því kominn, hvernig þeir færi með guðsopinberanina
yfirnáttúrlegu, sem þeim var veitt, hve vel eða hve
illa þeir héldi lögmálsboð drottins. Ef þeir reyndist
guði trúir, þá myndi þeim líöa vel. Ef þeir reyndist
lionum ótrúir, þá myndi þeim líða illa. það var þeim
undir eins kent í guðs nafni, og um það meginmál í
hinum guðlega barnalærdómi þeirra hlutu þeir að
sannfærast æ betur og betur eftir því, sem tímar liðu
lengra fram. þjóðlífsreynsla þeirra staðfesti þennan
sannleik margfaldlega og ómótmælanlega. það sást
hvað eftir annað alskýrt, að styrkurinn allur og hag-
sældin öll í því þjóðlífi var bem afleiðing guðsóttans
og trúmenskunnar við drottin. En jafnframt varð
það ægilega opinbert, að niðurlæging þeirra í jarðnesk-