Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Side 39
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1981. 39 Andlát Guðrún Þorvarðardóttir frá Gróttu, Ægissíðu 98, lézt 8. desember 1981. Hún var fædd 27. marz 1898, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur og Þorvarðar Einarssonar. Guðrún giftist Pétri Einari Þórðarsyni. Þau eignuðust þrjú börn. Hann lézt 1971. Guðrún var virkur félagi í slysavarna- og verka- kvennafélagi. Hún verður jarðsungin í dag frá Dómkirkjunni kl. 13.30. Karl Magnússon iðnverkamaður Nökkvavogi 38 lézt 11. des. 1981. Hann var fæddur í Reykjavík 1. desember 1911. Hann fór í fóstur til Maríu Magnúsdóttur og Marísar Sigurðssonar. Karl kvæntist Olgu Ingi- marsdóttur 1940 og eignuðust þau tvær dætur . Þau slitu samvistum. Árið 1951 kvæntist Karl Unni Jónsdóttur, en hún lézt árið 1976, Karl starfaði við byggingarvinnu, og i 27 ár hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu. Bálför hans fer fram i dag frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Maria A. Kristjánsdóttir, Urðarstig 16 lézt 9. desember 1981. Hún var fædd 8. október 1896 að Hlíðarhúsum í Snæ- fjallahreppi í N-ísafjarðarsýslu. For- eldrar hennar voru Pálína Halldórs- dóttir og Kristján Sveinsson. Þau eign- uðust eina dóttur og sex syni. María giftist Sigfúsi Guðfinnssyni og áttu þau 62 ára hjúskaparafmæli síðastliðið ár, en þá lézt maður hennar. Þau eign- uðust 8 börn. Tvær dótturdætur ólu þau upp. María verður jarðsungin frá Fossvogskirkju i dag kl. 15.00. Anna Jónsdóltir Reiners, hjúkrunar- kona, lézt í Borgarspitalanum 15. desember. Bjarni Gunnar Sæmundsson, Ásvalla- götu 35, er látinn. Björg Guðmundsdóttir, frá Hofsósi andaðist 15. þ.m. í Hrafnistu. Einar Símonarson múararmcistari, íra- bakka 26, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 18. desember kl. 13.30. Grímur Víkingur Þórarinsson, Gnoðarvogi 78 Reykjavík, sem and- aðist 12. desember sl., verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. desember kl. 15.00. Guðrún Stefánsdóttir Richter frá ísa- firði, Lyngmóa 7 Njarðvík, sem lézt 8. desember, verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 18. desember kl. 10.30. Ólafur Hafsteinn Sigurjónsson, Kára- stíg 6, lézt i Borgarspítalanum 15. desember. Sigurður Jónsson, Bústaðavegi 69, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. desember kl. 13.30. Tilkynningar í gærkvöldi Effir langt og leiðinlegf hlé.... Hernaðarástandið í Póllandi hefur að sjálfsögðu gengið eins og rauður þráður í gegnum fjölmiðlana undan- farna daga. Og víst hefur enginn komizt hjá að heyra um ástandið þar þrátt fyrir jólahug sem virðist hafa gripið okkur íslendinga. Það var kannski ekki tilviljun ein að auglýs- ingaflóðið dundi ekki yfir okkur fyrir og eftir ávarp forseta íslands í sjónvarpinu í gær. Þeir hjá sjónvarp- inu pössuðu sig þó á því að skella þul- inum á milli — svo allt liti betur út. Annað væri í hæsta lagi ósmekklegt. Þáttur þeirra Illuga Jökulssonar og Egils Helgasonar um jólabækurnar kom ágætlega út. Þó er það svo að eftir allar jólabókaauglýsingarnar, tilkynningarnar í þættinum Á döf- inni og ekki sízt auglýsingar í blöðum, veit maður satt að segja ekki hvað mikið eigi að fjalla um þessar bækur. Að vísu er alltaf skemmtilegt að heyra höfundana sjálfa lýsa bókum sínum. Skemmtilegra væri þó að fá að vita eitthvað um höfundana. Og þá meina ég þá minnst þekktu. Ewing-fjölskyldan í Dallas lét heldur ekki að sér hæða. Minnstu munaði að yngsti fjölskyldumeðlim- urinn ætti samúð mína alla. Kannski langt og leiðinlegt hlé i sjónvarpinu, loksins þegar ég settist niður til að glápa á það, hafi orðið þess valdandi að Dallas þátturinn var bara ekki svo leiðinlegur. -Elín Albertsdóttir. Samvinnan t fjallar að þessu sinni um hvernig íslenzkt sjónvarp varð til, neytendamál, villt spendýr á islandi, sam- vimiustarf á sunnanverðum Ve.Ufjörðum og fleira. Ferðafélag íslands Áramólaferð í Þórsmörk 31. des.—2. jan.; brollför kl. 07. Gönguferðir eftir þvi sem birtan leyfir, áramóta- brenna, kvöldvökur. Ef færð spillist svo, að ekki yrði unnt að komast i Þórsmörk, verður gist í Hér- aðsskólanum að Skógum. Upplýsingar og farmiöasala á skrifstofunni, öldu- götu 3. Gallerý Lækjartorg Nýlega opnuðu 10 myndlistamenn samsýningu á verkum sinum í Gallerý Lækjartorg. Á sýningunni er um 50 myndir til sýnis og sölu: grafikmyndir, teikningar og málverk. Listamennirnir eru: Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jónsdóttir, Haukur Halldórsson, Helga Weisshapp- el Foster, Hreggviður Hermannsson, Ingiberg Magnússon, Kjartan Guðjohnsen.Richard Valting- ojer, Sigurður örlygsson og Valgerður Bergsdóttir. Kaupcndur geta strax tekið með sér keypta mynd, og verður þá jafnóðum fyllt í skarðið — þannig að ávallt verður um endurnýjun að ræða. í anddyri sýningarsalarins verða einnig til sýnis og sölu eftirmyndir af verkum Hauks Halldórssonar og Jóhanns G. Jóhannssonar. Sýningin stendur til jóla og er opin daglega frá kl. 9—18 en á sunnudögum frá kl. 14—18. 10. tölublað þessa árs fjallar að þessu sinni um skólamál sjómanna, viðtal við Sigurstein Jóhanns- son verkstjóra frystihússins í Bakkagerði, rætt við Ernst Pettersen frá Seyðisfirði, fleira efni að austan. Viðtal við Guðjón Á. Eyjólfsson skólastjóra Stýri- mannaskólans og nemendur skólans, o.fl. $ Samvtnnan Vfkingur Hesturinn okkar, tímarit Landssambands hestamannafélaga 3. tölu- blað 1981 er komið út. Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl, grein um Evrópu- mótið í Larvík, hestavísur, íslandsmót í hestaíþrótt- um, grein um tamningu hrossa, dýralæknir svarar fyrirspurnum, einnig gefur á að líta Ijósmyndir af hestum í umhverfi frá því um síðustu aldamót. Hesturinn okkar er sem fyrr sagði tímarit Lands- sambands hestamannafélaga og kemur blaðið út fjórum sinnum á ári. Afgreiðsla blaðsins er á skrifstofu Hestamanna- félagsins Fáks í Félagsheimili Fáks við Elliðaár í Reykjavík. Fyrirlestur í Gallerí Lækjartorgi Tíu myndlistarmenn opnuðu samsýningu á verk- um sínum í Galleri Lækjartorgi um helgina. Sýning- in nefnist ,,Des-samsýning ’81”. Fimmtíu myndir eru til sýnis og sölu, grafikmyndir, teikningar og málverk. Listamennirnir eru Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jónsdóttir, Haukur Halldórsson, Helga Weisshapp- el Foster, Hreggviður Hermannsson, Ingiberg Magnúson, Kjartan Guðjónsson, Richard Valtin- gojer, Sigurður örlygsson og Valgerður Bergsdóttir. Sýningin stendur til jóla og er opin daglega á venjulegum verzlunartíma, 9—18, og sunnudaga, klukkan 14—18. Samhliða sýningunni verður efnt til fræðslustarf- semi og mun Ray Holland, gestakennari við Mynd- lista- og handiðaskólann, halda fyrirlestur í kvöld klukkan 18—20 um það sem helzt er að gerast í galleríum í New York-borg og sýna litskyggnur. Holland er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Banda- ríkjunum. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn og er aðgangur ókeypis. Baháiar haf opið hús að Óðinsgötu 20 öll fimmtudagskvöld frá kl. 20.30. Frjálsar umræður. Allir velkomnir. Ferðir Akraborgar, brottför frá AVranesi: kl. 8.30 kl. 11.30 kl. 14.30 kl. P 30 frá Reykjavík: kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 Minningarkort Migren-samtakanna fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavikurapóteki, blómabúðinni Grlmsbæ, Bókaverzlun Ingibjargar Einarsdóttur, Kleppsvegi 150, Félagi einstæðra for- ddra, Traðarkotssundi 6 og hjá Erlu Gestsdóttur, sima 52683. Jólamarkaður Goðatúni 2 við Hafnarfjarðarveg i sömu byggingu og Blóma- búðin Fjóla. Opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00. íþróttafélagið Leiknir Innanhússæfingar í knattspyrnu. I. og 2. flokkur. Sunnudaga kl. 17.10. 3. flokkur. Sunnudaga kl. 15.30. 4. flokkur. Miðvikudaga kl. 19.10. 5. flokkur. Laugardaga kl. 15.30. 6. flokkur. Sunnudaga kl. 13.10. Fundir Jólapottarnir Nú er ástæða til að minna alla, sem leið eiga um verzlunargötur borgarinnar, á Jólapolta Hjálp- ræðishersins. Þeir standa í alfaraleið siðustu vikurn- ar fyrir jólin, — litlir, rauðir samskotabaukar á þrí- færi. Herinn hefur áratugum saman unnið i kyrrþey stórmerkilegt hjálparstarf meðal þeirra, sem verst eru settir i þjóðfélagi okkar. En jólapottarnir eru liður I fjársöfnun til þess að gleðja þessa minnstu bræður og systur um jólin. Frekari kynning ætti að vera óþörf. Þessum orðum er ætlað að vera áminning til vegfarcnda um að leggja góðu máli lið. Við vitum, að margt smátt gerir eitt stórt. En stærst er þó vissan um samhjálp við þá, sem skortir ástvini, heimili, hlýju og annað það, sem við hin teljum ómissandi á jólahátíðinni. Hjálpum til að glcðja aðra með því að leggja aura i jólapottinn um leið og við göngum fram hjá — og þá höfum við gert eitthvað til þess að birtan frá Betlehem nái betur til þeirra, sem annars sætu i dimmunni. Látum sjóða í pottunum. Guð elskar glaðan gjaf- ara. Gleðileg jól. Lárus Halldórsson. Kvenfélag IMeskirkju Jólafundur félgsins verður haldinn fimmtudaginn 17. desember kl. 20.30, Safnaðarheimilinu. Sýnd verður kvikmynd frá 40 ára afmæli félagsins o.fi. Fundaskrá AA-samtakanna á íslandi Fimmtudagur REYKJAVÍK Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00 Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið. Ungt fólk kl. 21.00 Tjarnargata 3 (91-16373) Rauða húsið kl. 21.00 Laugarneskirkja, Safnaðarheimili kl. 21.00 Kópavogskirkja kí. 21.00 LANDIÐ Akureyri, (96-22373). Geislagata 39 kl. 21.00 Blönduós, Kvennaskóli, kl. 21.00 Dalvík, Hafnarbraut 4, kl. 21.00 Hveragerði Safnaðarheimili kl. 21.00 Kefiavík, (92-1800). Klapparstíg 7 kl. 21.00 Patreksfjörður, Raðhúsinu við Aðalstræti kl. 21.00 Sauðárkrókur, Aðalgata 3 kl. 21.00 Selfoss, (99-1787). Sigtúnum 1 kl. 21.00 Seyðisfjörður, Safnaðarheimikli kl. 21.00 Staðarfell Dalsýsla, (93-4290). Staðarfell kl. 19.00 Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata 24 kl. 20.30 Vopnafjörður, Hafnarbyggð 4. kl. 21.00 Garðabær Safnaðarheimili kl. 21.00 Happdrætti Happdrætti Félags ungra framsóknar- manna Dregið hefur verið í happdrætti Félags ungra fram- sóknarmanna: 14. desember var vinningsnúmerið 4656 15. — 3241, 16. — 3409 og 17. desember 4189. Kiwainsklúbburinn Hekla, Jóladagatalahappdrættið Vinningsnúmer: 8. desember no. 535 1. desember no. 574 9. desember no. 1004 2. desember no. 651 10. desember no. 2344 3. desember no. 183 ll.desember no. 172 4. desember no. 1199 12. desember no. 1206 5. desember no. 67 13.desember no. 593 6. desember no. 943 14. desember no. 2308 7. desember no. 951 15.desember no. 2103 Landsamtök Þroskaheftra Dregið hefur verið í almanakshappdrætti samtak- anna, er það desembermánuður. Upp kom númerið 127082. Ósóttir vinningar á árinu eru: Janúar nr:12168. Febrúar nr:28410. Mars nr:32491. Mai nr:58305. Júli nr:71481. Ágúst nr:81798. September nr:96202. Október nr:106747. Nóvember nr:l 15755. Happdrætti Dregið hefur verið i happdrætti Félags ungra fram- sóknarmanna. 14. desember var vinningsnúmerið 4656, 15. desember 3241. Númerin hafa verið birt jafnóðum í Dagblaðinu og Vísi frá 1. desember. Bella Þaö er ekki mér aö kenna, aö ég hef unniö á svona mörgum stöö- um. Yfirmenn minir hafa annáö hvort veriö i Ljóninu, Bogmann- inum, Steingeitinni eöa... Ný sending ia Lrtur: Antíkbrúnz leður Stærðir: 36-42 Verö kr. 549,50 Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8. Sími 14181. Laugavegi 95. Sími 13570. Þorskveiðibann 20.—31. desember 1981, nær til allra fiskiskipa annarra en þeirra, sem falla undir „skrapdagakerfið”. Hætta ber veiðum í siðasta lagi kr. 24,00 aðfaranótt 20. desember nk. Á banntíma er óheimilt að leggja eða hafa þorsk-, ufsa- eða ýsunet í sjó. Sjávarútvegsráðuneytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.