Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Blaðsíða 20
Hilmar lagði Tómas að velli íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir DV. ÞRIÐJUDAGUH 2" """“"‘'H 1983. DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR1983. Mikill uppgangur í f imleikum: ■Það barf mikinn siálfsa Tveir nýliðar á Wembley — þegar Englendingar mæta Walesbúum Ester Jóhannsdóttir í æfingu á slá. DV-mynd:Friðþjófur. íslandsmótið hápunkturinn Lovísa sagði að Islandsmótið, sem verður í Laugardalshöllinni 19. og 20. mars, væri hápunkturinn ó keppnis- tímabilinu hér heima. — Það hafa mörg mót fariö fram í vetur. Bikar- keppninni lauk um sl. helgi. — Hvernig er undirbúningurinn hjá fimleikafólkinu fyrir Islandsmót- ið? — Allur undirbúningurinn er hjá félögunum sem sjá um þjálfun sinna fimleikamanna og koma á innanfé- lagsmótum fyrir þá. Bikarkeppnin heppnaðist mjög vel og er nú mikill hugur í krökkunum að koma vel undirbúin til leiks í íslandsmótiö og má búast við harðri og tvísýnni keppni, eins og undanfarin ár. — Við erum búin að bjóða fimleika- fólki frá Luxemborg að koma og keppa sem gestir á Islandsmótinu. Þaö hefur ekki komið endanlegt svar frá Luxemborg viö því boði. Evrópukeppni í Gautaborg Lovísa sagði að fastlega mætti búast við að tveir keppendur yrðu sendir á Evrópumót stúlkna í áhaldafimleikum, sem fer fram í Gautaborg í Svíþjóð 7.-8. apríl. Island hefur ekki áður sent keppend- uráEM. — Þá verður Norðurlanda- meistaramót stúlkna og pilta í Kristianstad í Noregi 23.-24. apríl. Við reiknum með að senda full- Rannveig Guðmundsdóttir úr Björk sést hér í gólfæfingum. DV-mynd: Friðþjófur. Peter Shilton markvörður verður fyrirliði — tekur við því starfi af Bryan Robson hjá United. Enska landsliðið er skipað þessum leikmönnum: Peter Shilton, Southampton, Phil Neal, Liverpool, Alvin Martin, West Ham, Derek Statham, W.B.A., Terry Butcher, Ipswich, Gordon Cowans, Aston Villa, Sammy Lee, Liverpool, Gery Mabbutt, Tottenham, Alan Devonshire, West Ham, Paul Mariner, Ipswich, Luther Blissett, Watford. Það er vitað um þrjá leikmenn Wales, sem eru meiddir og geta ekki leikiö — Leighton James, Ian Rush og Kennt Jackett. -sos — í f jörugum úrslitaleik í Víkingsmótinu íborðtennis Bobby Robson, landsliðseinvaldur landslið sitt, sem mætir Wales á Englands, hefur valið tvo nýliða í Wembley á morgun. Það er bakvörður- inn Derek Statham hjá W.B.A. og mið- vallarspilarinn Gordon Cowans hjá Aston Villa. Þó nokkrar breytúigar hafa verið gerðar á enska landsliöinu þar sem leikmenn frá Arsenal og Manchester United, geta ekki leikið með. Liðin mætast í seinni leik þeirra í ensku deildabikarkeppninni á Old Trafford á morgun. Statham. Cowans. daginn. Hilmar lagði Tómas Sölvason úr KR í úrslitaleik, sem var fjörugur og skemmtilegur — 21— 10, 20-22, 17—21, 21— 18 og 21—15. Ragnhildur Sigurðardóttir úr Borgerfirði varð sigurvegari í kvennaflokki — vann alla keppendur sína, en stúlkurnar léku allar við allar. Friðrik Bentsen úr Víkingi vann sigur yfir Berg Konráðs- syni úr Víkingi í úrslitaleik 1. flokks —21—8og21—10. Bjarni Bjarnason úr Víkingi vann Sigurbjörn Bragason úr KR í úrslitaleik 2. flokks — 21— 14 og 21—16. Sigrún Bjarnadóttir úr Borgarfirði varð sigurvegari í 1. flokki kvenna — vann alla sina keppendur. -SOS Hilmar Konráðsson úr Víkingi varð sigur- vegari í Víkingsmót- inu í borðtennis, sem fram fór í Laugar- dalshöllinni á sunnu- Tómas varð sigurvegari í KR-mótinu — punktamóti íborðtennis Tómas Sölvason varð sigur- vegari í einiiðaleik í punkta- móti KR í borðtennis, sem fram fór í KR-húsinu á laugardag- inn. Tómas vann Hilmar Konráðsson úr Víkingi í úrslita- leik 21—17,20-22 og 21—13. Ásta Urbancic úr Eminum varð sigurvegari í kvennaflokki og Sigrún Bjamadóttir frá Borgamesi varð sigurvegari í 1. flokki kvenna. Einar Einarsson úr Víkrngi Varð sigurvegari í 1. flokki karla — vann Berg Konráðsson úr Víkingi í úrslitaleik 21—10 og 21—18. -sos Svigkeppni heimsbikarsins í Tárnaby á morgun: Langþráður draumur íbúanna rætist þá — Frægastu skíðamenn Svía, Stenmark, Strand og Fjellberg, eru frá Tárnaby Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð. Langþráður draumur hinna 675 íbúa Tamaby rætist á morgun. Þá verður ein umferð heimsbikarkeppninnar í alpa- greinum haldin þar — heimabæ þeirra Ingemar Stenmark, Stig Strand og Bengt Fjellberg. Svigkeppni en þar er Stenmark einmitt efstur með 105 stig, Strand í öðm sæti með 86 stig en síðan koma Mahre-tvíburarnir bandarísku, Steve meö 80 stig og Phil með 75 stig. í síðustu svigkeppni heimsbikarsins í Frakklandi vom Svíamir þrír meðal sex bestu, svo keppnin nú í Tamaby kemur á réttum tíma. Einn íslending- ur verður meðal þátttakenda, Árai Þór Árnason frá Reykjavík. Góð frammistaða Svíanna, einkum Stenmark, gerir það aö verkum að Njarðvíkingar sigruðu Hauka Það voru stúlkumar úr Njarftvikum sem sigraftu Hauka 62—57 í meistaraflokki kvenna í körfuknattieiknum i íþróttahúsinu í Hafnar- firfti á sunnudag, ekki Grindavík eins og mis- sagt var í blaftinu i gær. þetta litla fjallaþorp í Norður-Svíþjóö fær að sjá um svigkeppnina á morgun. Þó að þorpið liggi vel við og þar sé næg- ur skíðasnjór og góðar brautir, hefur þorpiö þó fátt annaö til að bera til að sjá um slíka keppni. Þar eru fá hótel til að taka við fjölmennum hópi skíða- manna, stjórnenda og fréttamanna. En segja má að allir í þorpinu leggist á eitt til að af keppninni geti orðið. Hver einasta fjölskylda mun taka skíða- menn eða fréttamenn inn á heimili sín. Þrjár skíðabrautir eru í Tarnaby, sem nefndar eru eftir köppunum þrem- ur. Sú stærsta ber auðvitaö nafn Inge- mar Stenmark, sú minnsta Bengt Fjellberg. Faðir Fejlberg undirbýr brautma fyrir keppnina á morgun. „Það er gott aö vera kominn heim,” sagði Stenmark í viðtali í gær, „og það verður frábært að keppa aftur í al- mennilegum snjó,” bætti hann við. Það hefur verið óvenju erfitt keppnistíma- bilið hjá skíðafólkinu í Evrópu í vetur vegna snjóleysis. Oft orðið að keppa á gervisnjó. „Það væri rangt ef ég neitaði því að mig langaði ekki einmitt til að vinna sigur í þessari keppni,” sagði Sten- Ingemar Stenmark. mark, en draumaúrslit flestra íbúa í Tárnaby eru þó að Fjellberg sigri. Strand verði í öðru sæti og Stenmark í þvíþriðja. GAJ/hsím. Dregið íensku bikarkeppninni: Sterkustu liðin leika innbyrðis í 6. umferð Eftir hið óvænta tap Liverpool i ensku bikarkeppninni á sunnudag er Man. Utd. nú talið sigurstranglegasta liðiö í keppninni. 1 gær var dregið til sjöttu umferðarinnar, þeirrar umferð- ar, þegar leikmenn liðanna telja hvað þýðingarmest aö fá leik á heimavelli. Man. Utd. hafði heppnina með sér að því leyti. Fékk heimaleik en erfiðan mótherja, Everton. Dregið var á skrifstofu enska knatt- spyrnusambandsins í hádeginu í gær og niðurstaöan varð þessi: C. Palace eða Burnley—Sheff. Wed. Arsenal eða Middlesbrough—Aston Villa Man. Utd.—Everton Brighton—Norwich Af þessu sést aö eitt lið úr 2. deild er öruggt með að komast í undanúrslit keppninnar, þar sem annað hvort Burnley eða Crystal Palace leika á heimavelli gegn Sheffield Wednesday. I hinum leikjunum þremur má reikna með að liðin úr 1. deild leiki saman, það er að Arsenal sigri Middlesbrough annan mánudag á Highbury og leiki síðan við Aston Villa í 6. umferðinni. Greinilegt að sterkustu liöin, sem eftir eru, leika saman í 6. umferðmni, Arsenal—Aston Villa og Man. Utd,— Everton. Þá leika Brighton og Nor- wich, sem eru að berjast fyrir tilveru sinni í 1. deild, saman og annaö kemst í undanúrslitin. Sjötta umferðin verður háð 12. mars. Undanúrslitin — á hlutlausum völlum — 16. apríl og úrslitaleikurinn verður á Wembley-leikvanginum í Lundúnum laugardaginn 21. mai. Drátturinn í bikarkeppni er happ- drætti. Sigurvegarar úr fyrsta og f jórða leik gætu dregist saman í undan- úrslit og það er því enn sá möguleiki fyrir hendi aö Brighton, Norwich, Bumley, Crystal Palace eöa Sheff. Wed., þaö er eitt þessara liða komist í úrslitin á Wembley. -hsím. Landsliðið farið til Hollands íslenska landsliðið í handknatt- leik, sem tekur þátt í B-keppninni í Hollandi, hélt til Hollands í dag með Amarflugi. Flogið var til Amsterdam en þaöan fer hópurinn með langferðabifreið til Breda. Þangað er hann væntanlegur í kvöld. íslendingar leika fyrst gegn Spánverjum í Breda á föstudaginn. V-Þjóðverjar vilja HM ’86 Hermann Neuberger, formaður v-þýska knattspyrnusambandsins, tilkynnti í Bonn í gær að V-Þjóð- verjar væm reiðubúnir að halda heimsmeistarakeppnina í knntt- spymu 1986 ef Brasilia, rtcxikó, eða Bandaríkin gætu ekki seð um keppnina. — Allar aðstæður hjá okkur eru fullkomnar. Gerðar voru endur- bætur á völlum hér fyrir HM 1974 þannig að ekkert er til fyrirstöðu aö keppnin verði í V-Þýskalandi, sagði Neuberger, sem er einnig for- maður þeirrar nefndar innan FIFA sem sér um HM-keppnina. Tekin verður ákvörðun um það í Stokkhólmi 20. maí hvar HM verði haldin 1986. -SOS Lettek f rá Barcelona Udo Lettek, þjálfari Barcelona, til- kynnti að hann færi frá félaginu eftir kcppnistánabilið eftir að Barcelona haffti gert jafntefli, 6—0, í Gijon á sunnudaginn. Þetta kom Argentmumanninum Diego Maradona mjög á óvart þar sem Barce- lona hcfur gengift vel aft undanföruu. — Mér litist vel á að Cesar Menotti, landsliftsþjálfari Argentínu, tæki vift starfi Lettek, sagði Maradona en hann bætti vift að það væri ekki hans aft ákveða hver yrfti eftirmaður Lettek, það væri stjórnar Barcelona. Maradona er aft verfta góftur af veikindum þeim sem hann hefur átt í og reiknar með aft geta byr jaft aft leika að nýju um miftjan mars. -SOS. — og sterkan persónuleika til að ná langt í f imleikum,” segir Lovísa Einarsdóttir, formaður Fimleikasambands íslands — Það þarf mikinn sjálfsaga og sterkan persónuleika til aö ná langt í fimleikum. Með mikilli þolinmæði og vinnu tekur þaö fimleikamann um sjö ár að þjálfa sig upp og ná árangri, sagði Lovísa Einarsdóttir, formaður Fimleikasambands ís- lands, í stuttu spjalli við DV. Mikiö er á döfinni hjá fimleikafólki íslands og erlend samskipti hafa aldrei verið eins mikil og um þessar mundir. — Hin ýmsu félög sem æfa fimleika hafa náð góðum sambönd- um erlendis og er ánægjulegt að sjá hvernig þróunin hefur verið. Sam- skiptin jukust verulega eftir að við héldum Norðurlandamótið hér í Reykjavík á síðasta ári og við höfum sótt ráðstefnur erlendis þannig að við höfum kynnst forráðamönnum erlendra fimleikasambanda, sagði Lovísa. Greinilegur uppgangur er í fim- leikum hér á landi að sögn Lovísu, og næsta verkefni Fimleikasambands- ins er aö kynna íþróttina úti á lands- byggðinni. — við höfum mikinn hug á aö fara í sýningarferð um landið og halda fimleikanámskeið. Nú er þeg- ar fyrirhugað aö halda eitt námskeið á Akureyri í sumar en áhuginn hefur aukist mjög fyrir fimleikum á Akur- eyri, þar sem Anna og Edda Hermannsdætur og Kári I. Guömanns hafa unnið mjög gott starf. Erlendir þjálfarar Lovísa sagði að mikið líf hefði komið í fimleikana við komu erlendu þjálfaranna sem starfa nú hér á landi. Pólverjinn Valdemar Chizmowzky þjálfar hjá Gerplu og Kínverjinn Chen Shengjin hjá Lovísa Einarsdóttir, formaður FSÍ. Armanni. — Þá hafa þjálfarar Bjarkar — þær Inga Einarsdóttir, Hlín Ámadóttir og Karolína Valtýs- dóttir farið á viðurkennt þjálfara- námskeið í Svíþjóð og komu reynsl- unni ríkari heim. Þær hafa unniö mjög gott starf. Þolinmæöi þarf að vera mikil —Eru fimleikar ekki tímafrek íþrótt? — Jú, það er óhætt aö segja það. Fimleikafólk okkar æfir þetta fjór- um til fimm sinnum í viku og reynir mikiö á þolinmæði við þjálfunma. Það tekur t.d. langan tíma að ná árangri í áhaldafimleikum, sem em nær eingöngu stundaðar hér á Iandi. Krakkamir eru t.d. að æfa eitt stökk — æfingu eftir æfingu og mánuð eftir mánuö . Það þarf mikla þolinmæði því að tilbreytingin er ekki mikil þegar verið er að ná valdi á einni æfingu. mannað lið keppnina — fimm stúlkur ogfimmpilta. — Nú, þá höfum við áhuga á aö senda keppanda á Evrópumeistara- mót karla í Varna í Júgóslavíu, en það hefur ekki verið enn tekin ákvörðun um það, sagði Lovísa. Fimleikar í Garðabæ Lovísa sagði að nýlega hefði verið stofnuð fimleikadeild hjá Stjömunni í Garöabæ og væri alltaf gleðilegt þegar ný félög bættust í hóp þeirra sem hafa fimleika á stefnuskrá sinni. Erlend samskipti Við báöum Lovísu að lokum að segja okkur í stuttu máli frá þeim erlendu samskiptum sem fyrirhuguð eru hjá félögunum. • Fimleikahópar frá IR, Fylki, Björk og kvennahópur úr Garöabæ taka þátt í fimleikahátíð í Albenga á Italíu í lok júní. • Kvennahópurinn úr Garðabæ tekur þátt í fimleikahátíð á Örrebro í Svíþjóðí júlí. • Arrnann og Gerpla taka þátt í nmleikamótumí Luxemborg. • Fimleikahópur frá York í Englandi er væntanlegur til Islands 17. apríl í boöi Ármanns. • Gerpla tekur á móti fimleikahópi frá Færey jum 26. mars. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.