Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Blaðsíða 15
PHot5>ciM,A rorTrtkttm«iT!>»t \tn
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. MARS1983.
— Hvers vegna getur ögmundur þess ekki að Nicaragua ógnar orðið rikjunum umhverfis? segir Haratdur
Kristjánsson.
RÉTTARRÍKI
RÓGBERANS
Þaö er ekki aöeins fámennið sem
veldur, heldur og líka hitt aö
Islendíngar eru margir snillingar í
að segja sögur. Og ekki vantar
saumaklúbba til aö koma boðskapn-
um áleiðis.
En eins og góö saga getur veriö góö
(ef hún er góð!) fer að káma
gamanið þegar hún verður að rógi og
yfirvöld og fjölmiðlar fara að leggja
viðhlustirnar.
Það eru mál eins og Geirfinns-
málið sem minna okkur óþyrmilega
á að þessi náöargáfa söguþjóðarinn-
ar hefur á sér tvær hliðar og er önnur
jafnskuggaleg og hin er björt.
Það er nefnilega staðreynd aö í
þessu þjóðfélagi er f jöldi fólks sem á
um sárt að binda vegna rógs sem þaö
eða aðstandendur þess hefur oröiö
fyrir.
Og vegna þess að söguhefðin er
landlæg og allir samsekir fá fómar-
lömbin sjaldnast uppreisn æru. Sára-
bæturnar em aðeins þær að velvild
þorrans vex með árunum.
Fátt væri eins ánægjulegt og að
geta upprætt þetta þjóðarmein.
Líklegra er þó að gróusögur muni
skemmta Islendingum um langan
aldur í verðbólgu og skammdegi.
Rottur
EFTIR DAVÍÐ STEFÁNSSON
Milli þils og moldarveggja
man ég eftir þeim,
ljótu rottunum
með löngu skottunum
og stóru tönnunum,
sem storka mönnunum,
sem ýla og tísta
og tönnum gnísta
og naga og naga
nætur og daga.
Fjöldi manna
felur sig á bak við tjöldin.
Þeir narta í orðstír nágrannanna,
niðra þeim, sem hafa völdin,
eiga holu í hlýjum bæjum,
hlera og standa á gægjum,
grafa undan stoðum sterkum, ,
stoltir af sinum myrkraverkum.
Allar nætur, alla daga
er eðli þeirra og saga
að likjast rottunum
með löngu skottunum
og naga, naga.
Sjúkranuddstofa
Hilke Hubert
Hverfisgötu 39
Bjúg-
meðhöndlim
— heitir leirbakstrar — hitalampi — partanudd —
heilnudd — sólarhiminn.
Stakir tímar eöa 10 tíma afsláttarkúrar.
Sími 13680 kl. 14-18.
i^ilkninig
gúmm/stígvél
Laugavegi 1 — Sími 1-65-84.
GÖNGUSKÍÐASETT
Göngu-skíði
-skór
-stafir
-bindingar
Allt þetta
á kr.
2.500,-
Sportborg
Hamraborg 6
Kópavogi,
sími 44577.
Ef« ■—■■wwm-iMinmri i ifi n ■!