Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Page 11
DV. LAUGARDAGUR19. MARS1983.
11
Hin unga og faiiega leikkona Cicely Tyson. Svona .. . en svona ieit hún útþegarupp var staðið.
leit hún út þegar hún mætti i stúdíóið um morgun-
inn.. .
Sannur listamaður á sínu sviöi:
FÓLK ELDIST
Á ALGABRAGÐI
Ung og falleg leikkona hefurkomið
sér þægilega fyrir í þægilegum stól
inni í kvikmyndastúdíóinu. Mörgum
klukkutímum síðar stendur hún upp
og nú lítur hún út fyrir að vera ekki
árinu yngri en níræð! Andlit hennar
er orðið hrukkótt af elli, háriö grátt
og gleraugun á sínum stað. Og hún er
orðin klár í næstu töku!
Þaö er verið að taka upp fram-
haldsmyndaflokk fyrir sjónvarp á
vegum amerískrar sjónvarpsstöðv-
ar. Flokkurinn fjallar um löngu
kunnugt efni: baráttu þeldökks fólks
fyrir borgararéttindumsínum.
Leikkonan, sem á nokkrum
klukkustundum eltist um fjölmörg
ár, er Cicely Tyson, og það var einn
sá kunnasti í sínu fagi í Hollywood,
Stan Winston, er verkið gerði. Hann
hefur margoft hlotið viðurkenningu
fyrir starf sitt, meöal annars verið
sæmdur Emmy-verðlaununum, sem
veitt eru fyrir framúrskarandi
árangur á sviöi sjónvarpsþátta.
Þeim má líkja við óskars-verðlaun
kvikmyndanna.
„Það er tímafrekt og strembiö
verk að breyta þrítugri konu í
níræða, eins og nærrimá geta,” segir
Stan Winston. ,Ég byrja ætíð á því að
gera skissur af andliti þess sem ég er
að fást við hverju sinni. Ég geri
margar, margar skissur, svona til að
fá tilfinningu fyrir andlitsdráttum
viðkomandi.
Síðan þreifa ég mig áfram. Ég geri
brjóstmyndir úr gúmmíi. Fyrst pínu-
lítiö, en svo stækka ég þær smátt og
smátt um leið og ég reyni að gera
mér grein fyrir hvernig tímans tönn
Stan Winston að starfi. Og auðvitað er það Tyson sem situr i stólnum
og þarna strax má sjá mikla breytingu.
komi til meö aö vinna á þessari
persónu. Þegar síðustu brjóstmynd-
inni er lokið klippi ég hana sundur:
kinnarnar eru sér, hakan, nefið og
enniö og þetta set ég á andlit persón-
unnar semégeraðfástvið.
Það mikilvægasta í þessu Starfi er
að andlitsfallið virki sannfærandi.
Gúmmíið má fyrir alla muni ekki líta
út eins og því sé klístrað á andlitið.
Sjónvarpsáhorfendur eru fljótir að
átta sig á ef eitthvað er eins og þaö
á ekki aö vera. En sem betur fer
höfum við náö svo langt með allri
okkar tækni að við höfum gúmmí
sem er mjög meðfærilegt og fellur
vel að andlitinu og fylgir öllum
hreyfingum þess mjög eölilega.”
Stan Winston fæst þó ekki eingöngu
við að gera fólk eldra. Hann hefur
búið til mörg gervin þar sem
„aðeins” þarf að breyta andlitsfall-
inu. Meðal frægra leikara, sem sest
hafa í stólinn hjá honum, eru Rod
Steiger, Diana Ross og Danny Kaye.
Stan Winston er sannur listamaður
á sínu sviði.
-KÞ
I
I
!
Verð frá kr. 6.040.- fyrir flug og gistingu á
hótel Aerogolf. Pessar ferðir bjóðast fram til
1. apríl n.k.
í 1 VIKCl?
Verð frá kr. 10.625.- fyrir flug og gistingu.
Síðasta brottför 27. mars n.k.
I 3 VIKCIR?
LONDON, vikuferðir.
KANARÍEYJAR, sólarferðir.
Verð frá kr. 17.022.- fýrir flug og gistingu.
Síðasta brottför 20. apríl n.k.
Verð frá kr. 8.308.- fyrir flug, gistingu og
morgunverð. Þessar ferðir bjóðast fram til
30. apríl n.k.
Ath. Nú er útsölutíminn framundan.
KAUPMANNAHÖFN, vikuferðir.
Verð frá kr. 8.877,- fyrir flug, gistingu og
morgunverð. Þessar ferðir bjóðast fram til
30. apríl n.k.
Þú ræður
ferðinni
FERDASKRIFSTOFA
Á nýjum stað:
Borgartúni 33
Sími 29999
- við aðstoðum.
tSTUÐI TILAÐ SKREPPA
UR LANDIA NÆSTUNNI
1 1/2 VIKG?
LUXEMBORG, helgarferðir.
I 2 VIKCIR?
AUSTURRIKI, skíðaferðir.
FIBFIB