Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Síða 17
17
DV. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER1983.
Vetrartiska kvenna
er frjálsleg og
þægileg en umf ram
allt...
HLÝLEG
Óneitanlega verður þetta að teljast
sportlegur og þægilegur klæðnaður
fyrir vetrarhörkurnar sem fara í hönd.
Buxurnar eru úr ull, peysan er stór og
mjúk í angóra-look með 3/4 ermum og
með stórum, skjólgóðum rúllukraga.
Jakkinn er úr ullar-tweed og
röndóttur. Þetta er skemmtilegur og
frjálslegur klæðnaður sem er fram-
leiddur af JANTON í Kaupmannahöfn.
Þetta er ákaflega vinsæll klæðnaður
hjá unga fólkinu í dag. Sniðiö er
nokkuð óreglulegt en um leið eru þessi
föt frjálsleg og hlýleg. Jakkinn er frá
FORSBERG PELS A/S og er úr
mjúku nappa. Ponchoinn er úr skosk-
köflóttu ullarefni. Jakkinn er meö
lambsskinni á ermum og kraga.
Danska fyrirtækið JENSEN COAT kynnir þessa hálflöngu jakka með tilsvarandi buxum og peysurnar passa við.
Hægt er að fá settið í beinhvítu, svörtu, gylltu, navy-bláu eða vínrauðu. Takið eftir klútnum/ennisbandinu sem
stúlkan f jær er með en þessir hlutir eru orðnir geysilega vinsælir til að nota við flestan fatnað að sumri sem vetri til.
Höfum opnað
gjafavöruverslun að Dalshrauni 13, Hafnarfirði.
Mikið úrval af trévörum, glervörum
og keramiki.
Opið frá kl. 9—18, laugardaga kl. 10—17
og sunnudaga frá 13—17.
Gjafavöruverslunin
HNOSS,
Dalshrauni 13, simi 79030.