Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Side 43
Popp Popp Popp Popp Popp DV. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER1983. hafði áður geflð út og umslagið var sérstakt (það hefur reyndar lengi loðað við XTC að klæöa plötur sínar sérstæðum umbúðum). Enn hefur ekki veriö minnst á við- tökur þær sem breiðskífumar fengu. Skemmst er frá því að segja að við- tökumar voru við meðallag hjá almenningi (komust inn á lista) en langt fyrir ofan meðallag hjá gagn- rýnendum. Þannig vill það stundum vera. I árslok 1980 kom fjórða albúmið, Black Sea, á markaö. Smáskífan „General & Majors” af BS varð fyrsta eiginlega hitlag XTC haustið 1980 og á eftir fylgdu þrjár smáskif ur í viðbót, sú síðasta „Respectable Street”, var það eina sem XTC sendi frá sér á álrinu 1981. Tíminn var notaður til að heimsækja Suður- Ameríku og Suður-Evrópu og til undirbúnings fyrir næstu breiðskifu. Segja má aö Black Sea hafi skilið eft- ir allar leiðir færar fyrir XTC í tón- listarlegum skilningi. A plötunni kenndi ýmissa grasa og þóttust fræð- ingar sjá ýmsar þreifingar er leitt gætu af sér framhald eftir ólíkum brautum. Þeir sem vit höfðu á biðu spenntir eftir næsta framlagi (eöa það segja þeir í það minnsta í dag). I fyrstu átti English Settlements að vera einföld en andinn grasseraði svo í Partridge (sem ávallt hefur samið flest laganna) og Moulding (sem semur restina) að úr varð tvöföld breiöskífa með 15 lögum. Hér brá við nýjum hlutum. Tónlistin hafði „lést” töluvert og varð auð- meltari þegar á heildina var litið og útsetningar höfðu breyst, aðallega í þá átt að fleiri hljóðfæri komu við sögu. I janúar 1982 var gefin út smá- skífan Senses Working Overtime sem rauk beint upp lista. Mánuði síöar var breiöskifan send á markað og viðtökur voru meö eindæmum: eftir viku sat hún í 5. sæti á vinsælda- lista (munið að albúmið var tvöfalt). I mars kom út önnur smáskifa, Ball And Chain, semtekinvarafES. Satt að segja er mér ókunnugt um hvað fjórmenningamir í XTC hafa aðhafst síðasta árið eða svo, utan þess aö þeir fóru víst í aðra hljómleikaferð um Evrópu á síðasta ári og um heimalandiö sömuleiöis. Eii hvað sem öðru liður sendu XTC frá sér sjöttu breiöskífu sína seint í sumar og sú hét Mummer. Viðtökur („dub” útgáfa fylgdi skömmu á eftir). Ariö 1979 markaði nokkur þátta- skil hjá XTC. I upphafi ársins sagði Andrews skilið við félaga sína eins og fyrr sagði (hann sneri sér að session-spili og vann meðal annars nokkuð með Robert Fripp um tíma). Um sumarið hélt nýja útgáfan í fyrsta sinn á vit annarra heimsálfa og lék til dæmis fyrir Astralíubúa og Japani. Skömmu áöur en XTC sneri heim aftur var fjórða breiðskífan gefin út á heimaslóðum og hét sú Drums And Wires. Með þeirri plötu fylgdu textar allra laga sem XTC voru siöri en ES hafði fengiö enda er hér að mínu mati ekki um jafnheil- steyptan grip að ræða. Þar er þó að finna gullkom á borð við Love On a Farmboy’s Wages og Great Fire sem gefið var út á smáskífu. Mummer er á köflum þyngri en ES og því þarfn- ast hún óneitanlega meiri hlustunar. Kannski er þar einmitt að finna ástæðuna fýrir slakari sölu. Hitt er óvefengjanlegt að XTC er orðiö eitt af stóru nöfnunum í poppbransanum. Þeir eru, allt í senn athyglisveröir (ekki siður textar en tónlist), hæfi- leikaríkir og sérstæðir. -TT. Sitt er hvað, gæfa eöa gjörvileiki, jafnt í rokkbransanum sem utan hans. Stundum er sagt um listamenn að þeir séu „virtir” og hafi mikil áhrif á aðra listamenn án þess að þeir nái verulegri almenningshylli. Svo eru aðrir sem leggja milljónir að fótum sér fyrir það eitt að vera eins og vanvitar á sviði og hafa lag á að næla sér í fréttir í slúðurdálkum. Ortakiö á að nokkru við f jórmenning- ana í XTC sem heiðra helgarpoppiö að þessu sinni. XTC hefur verið talin „virtur” hópur en öfugt við marga aðra af þeim meiði hafa þeir náð um- talsverðum vinsældum (ættu þó efa- lítið meiri skilið). Frægðinni náðu þeir með tvöfalda albúminu English Settlements sem án efa var eitt hið albesta síðasta árs. XTC var stofnuð í breska bænum Swindon um miðjan síðasta áratug. Þeir Andy Partridge (gítar), Colin Moulding (bassi) og Terry Chambers (trommur) hafa haldið saman frá upphafi og auk þess komu ýmsir meölimir við sögu á fyrstu ár- unum. Þegar fyrsta platan kom út (1977) hafði skipanin komist á hreint og var fjórði meðlimurinn Barry Andrews (hljómborð). Andrews hætti árið 1979 vegna „tónlistarlegs ágreinings” og sæti hans tók Dave Gregory (gítar, hljómborð). Og þannig er liðsskipanin enn. I upphafi hét sveitin Star Park and The Helium Kidz en nafhinu var fljótlega breytt. Áöur en langt um leið hafði XTC vakið verulega athygliíSwindon og um mitt ár 1977 lá leið fjórmenninganna til Lundúna. Um sama leyti skall pönkbylgjan yfir Bretland og fæði allt á bólakaf. XTC töldu sig hluta af þessari nýju bylgju þótt þeir ættu ekki samleið meö pönkurunum. Segja má að þeir hafi fremur átt heima í fágaöa horni nýbylgjunnar sem fylgdi í kjölfar pönkæðisins. Hvað um það. XTC komst á samning hjá Virgin og haustið 1977 kom fyrsta smáskífan, XTC 3D EP, á markað. Á eftir fylgdi langur og strangur hljómleikatúr og upplag smáskífunnar (30.000 eintök) seldist upp og þótti gott. Fyrsta breiðskífan, White Music, kom út I janúar 1978 og á henni voru 11 frum- samin lög og að auki eitt lag eftir Bob Dylan (All Along The Watchtower). Af plötunni voru lögin Statue Of Liberty/Hang On To The Night gefin út á smáskífu og útgáfunni var fylgt eftir með hljómleikaferð um Evrópu með Talking Heads. Þar meö hófst vinskapur aðstandenda þessara tveggja hljómsveita sem báðar telj- ast allsérstæðar og þó um margt ekki ósvipaðar. Til marks um skyld- leikann má nefna söng þeirra Davids Bymes og Andy Partridges sem oft á tíðum er mjög áþekkur. A árinu 1980 bauð Byrnes XTC til New York til að spila meö Talking Heads og vakti XTC þar verulega athygli. önnur smáskífa með lögum af White Music kom út vorið 1978 (This Is Pop/Heat- wave). Breiðskífa númer tvö var tekin upp sumarið 1978 og kom út þá um haustið undir nafngiftinni Go 2. A plötunni voru 12 lög og auk þess komu tvö ný lög út á smáskífu 1978 1980 1982

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.