Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Page 21
DV. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER1983. AUtum íþróttir helgar- innar Frjálst, óháð dagblað Lárus skor- aði í Gent STÓRSIGRAR KROGFH íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Jóhann Þorvarðarson. Opin félaga- skipti lóa Þorvarðar Jóhann Þorvarðarson, einn al- bcsti lcikmaður Víkings í knatt- spyrnunni, hefur sent inn félaga- skipti tii KSÍ. Opin félagaskipti en fleiri leikmenn hafa einmitt haft þennan hátt á að undanförnu, til dæmis Sigurður Lárusson, Akranesi. hsím. Þrennahjá Frank Stapleton — siábls.28 Staöa efstu liöa. Beveren 13 9 Seraing 13 8 Anderlecht 13 7 Waterschei 13 6 Waregem 13 6 -hsím. — þegar Waterschei sigraði 3-1 Frá Kristjáni Bernburg, frétta- manni DV í Beigíu. — Beveren heldur enn forustunni í 1. deiidinni belgisku. Vann öruggan sigur á botnliöi Beringen, 4—1, í gær og flest efstu liðin unnu einnig. Ander- lecht heppnissigur á Molenbeek 2— 1 og skoruðu þeir Vercauteren og Vanderberg mörk Anderlecht úr vítaspyrnum, sem þóttu heldur vafasamar. Arnór Guðjohnsen lék ekki með Anderlecht frekar en áður og Sævar Jónsson lék ekki meö CS Brugge í jafntefiislcik við FC Liege á útivelli. Sævar meiddist á æfingu á föstudag í nára. Hins vegar lék Lárus Guðmunds- son meö Waterschei og skoraöi eitt af mörkum liðsins í góöum sigri í Gent, 1—3. Waterschei komst íO—2 með mörkum Eddie Voordeckerts. Hollendingurinn Skabendonk minnkaöi muninn í 1—2 en Lárus átti síðasta oröiö fyrir Waterschei. Antwerpen tapaöi fyrir Seraing 3— 1 á útivelli. Staðan var 2—0 í hálf- leik og Pétur Pétursson kom ekki inn á aftur eftir leikhléiö. I hans stað kom Ungverjinn Fazekas. Þulur belgíska útvarpsins sagði aö þau skipti heföu verið til hins betra. Antwerpen minnkaði strax muninn í 2—1 en Seraing komst fljótt í 3—1 og vann örugglega. Urslit í gær. Anderlecht-Molenbeek 2—1 Courtrai-Standard 2—0 Seraing-Antwerpen 3—1 FCBrugge-Malines 4—0 Beveren-Beringen 4—1 Lierse-Lokeren ' 0—0 Beerschot-Waregem 0—0 Gent-Waterschei 1—3 DV-mynd Óskar. ”Þetta var allt annaö hjá okkur í leiknum úti í Luxemburg. Viö náðum góðum leik og unnum yfirburðasigur. Leikur okkar var í heild góöur enda gátum við vart leikið verr en í heima- leiknum,” sagði Þorvarður Höskulds- son, framkvæmdastjóri handknatt- leiksdeildar KR, viö komuna til lands- ins eftir aö KR-ingar höfðu tryggt sér þátttökurétt i 8-liða úrslitunum í Ev- rópukeppni bikarmeistara með yfir- burðasigri 31:19 gegn Bershem frá Luxemburg. ”Leikurinn byrjaöi nokkuö rólega og í byrjun reyndu miklir heimadóm- arar að gera okkur lífið Ieitt. Þeir ráku okkur út af hvaö eftir annaö, dæmdu á okkur ruðning en fljótlega fórum viö aö átta okkur á aðstæðum og náðum f imm marka forskoti fyrir leikhléiö. Svo er skemmst frá því aö seg ja aö í síðari hálfleik stungum viö þá gersam- lega af og þeir áttu aldrei minnsta möguleika gegn okkur,” sagöi Þor- varður. Jakob Jónsson skoraöi mest fyrir KR í þessum leik eöa 9 mörk og þaö geröi Guðmundur Albertsson einnig en þessir tveir leikmenn áttu mjög góðan leik. Línumaöurinn snjalli, Jóhannes Stefánsson, skoraöi 6 mörk, Haukur Geirmundsson 3, Friðrik Þorbjörns- son 2 og Björn Pétursson 2. Fyrir Brechem skoraöi Jeannot mest eöa sjö mörk. I fyrri leiknum í Laugardalshöll sigraði KR 17—12 og því 48—31 samanlagt. 1 Evrópukeppni félagsliöa sigraöi FH Maccabi frá Is- rael tvívegis. 35—19 í fyrri leiknum og 44—16 í þeim síðari í Hafnarfiröi í gær- kvöld. Því samanlagt 79—35 og þaö er met íslenskra liöa í Evrópukeppni. Sjá nánar um þessa leiki á bls. 25 og 26. SK. Taugar vesturþýsku leik- mannanna voru að bresta Frá Hilmari Oddssyni, frétta- manni DV í Þýskalandi. Það var ekki fyrr en 11 mínútum fyrir leikslok að Vestur-Þjóðverjum tókst að skora sigurmarkið gegn Al- baníu í Evrópuleik landanna í Saar- brucken í gær. Þó léku Albanir ein- um færri allan síöari hálflcik þar sem einum leikmanni liðsins var vik- ið af velli. Taugaspennan var þrúg- andi hjá þýsku leikmönnunum, þeir óðu í færum en ekkert heppnaðist og taugar þeirra svo og áhorfenda, voru alveg aö gefa sig þegar Gerd Strack, Köln, skoraði á 79. mín. V—Þýska- land sigraði 2—1 og er fimmta þjóð- in, sem vinnur sér rétt i úrslita- keppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar. Lengi vel leit út fyrir aö þýska liðið mundi hljóta sömu ör- iög og nokkur önnur ”stórlið” eins og ítalía, England og Sovétrikin. Eftir leikinn kom fram sama óánægjan með Jupp Derwall, stjóra þýska liðs- ins, og áður. Hann lét þó gagnrýnina ekkert á sig fá og sagði: ”Mér er al- veg sama þó áhorfendur hafi ekki verið ánægöir. Við erum þaö.” Leikurinn var miklu erfiöari fyrir vestur-þýsku leikmennina en reikn- að haföi verið meö. Albanir léku vamarleik og markvöröur þeirra var frábær. Þýska liðið byrjaöi meö látum, lék af miklum krafti og ekki vantaöi viljann. Miklu meiri barátta envenjulegahjáþýskulandsliði. En þaö bar ekki árangur framan af og svo skoruöu Albanir í sínu fyrsta upphlaupi og því eina sem þeir fengu í fyrri hálfleik. Það var á 23. mín. aö Tomori sendi knöttinn í markið hjá Tony Schumacker, sem lítiö sem ekkert haföi aö gera í markinu í leiknum. Mínútu síöar jafnaöi Karl Heinz Rumenigge í 1—1 og var nokkur heppnisstimpill á því marki. Þjóðverjar fengu aukaspymu við vítateiginn. Littbarski gaf á Karl- Heinz, sem spyrnti á markið. Knötturinn kom í vamarmenn og fór í markiö. Gífurleg læti uröu í lok fyrri hálfleiksins og ekki var flautaö til hálfleiks fyrr en eftir 51 mín. — sex minútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Hinn snjalli markvöröur Albana,Musta,hraut á Völler á 46. mín. og Völler svaraöi meö því að slá tU markvarðarins. Þá kom markaskorarinn Tomori og greip Völler hálstaki. Finnski dóm- arinn Anders Mattson rak Tomori af velU og bókaði Völler. Síöar í leikn- um bókaöi hann Musta markvörö og vamarmennina Ahmetaj og Rragami þegar taugaspennan var sem mest í síöari hálfleiknum. AUt var þetta heldur vafasamt hjá dóm- aranum. Hálfleiknum lauk meö því aö Rummenigge átti skot í stöng. I síðari hálfleik sótti þýska liöið mjög og skapaði sér fjölmörg tækifæri tU aö skora. Lengi vel leit út fyrir aö Musa markvörður ætlaöi að koma í veg fyrir að þýska Uöiö kæmist í úrsUtin. Hann var hreint frábær en varö þó að viöurkenna sig sigraöan á 79. mín. þegar Strach skaUaði í mark. Mikill léttir hjá þýsku leikmönnunum, en greinUegt aö taugar þeirra voru alveg aö gefa sig í spennunni. Eftir markið var sigurinn í höfn, tíu leikmenn Albaníu áttu enga möguleika að jafna. Þýska liöiö var þannig skipaö. Schumacher, Strack, Bernd Föster, Karl-Heinz Föster, Briegel (Otten) Dremmler, Matthaeus, Meir, Litt- barski (Waas), VöUer og Rummenigge. Lokastaðan í riölinum. V-Þýskaland 8 5 12 15-5 11 N-Irland 8 5 1 2 8-5 11 AusturrUci 8 4 13 15—10 9 Tyrkland 8 3 1 4 8-16 7 Albanía 8 0 2 6 4—14 2 16. riöU Evrópukeppni leikmanna, 21 árs og yngri, komu Albanir heldur betur á óvart. Komust í 8-liöa úrsUt eftir 1—1 viö Þýskaland í Trier á laugardag. Michael Rummenigge skoraöi fyrir V-Þýskaland á 38. mín. en Josa jafnaöi á 41. min. Þar við sat þrátt fyrir mikla hvatningu 15.834 áhorfenda í Trier. Lokastaöan í riölinum. Albanía V-Þýskaland Tyrkland Austurríki 6 4 2 0 9-3 10 6 3 3 0 13-4 9 6 114 6-11 3 6 0 2 4 4-14 2 -HO/hsím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.