Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Page 40
40
DV. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER1983.
Andlát
Helgi Kristjánsson húsasmíðameistari
lést 14. nóvember sl. Hann fæddist á-
Ketilsstööum í Holtum 4. febrúar 1909.
Foreldrar hans voru hjónin Kristján
Sigvaldason og Jónína Kristín Vigfús-
dóttir. Eftirlifandi eiginkona Helga er
Katrín Magnúsdóttir. Utför Helga
verður gerð frá Neskirkju í dag kl. 15.
' Guðmunda Guðmundsdóttir lést 13.
nóvembers sl. Hún fæddist 1. febrúar
1918, dóttir hjónanna Mari Magnús-.
dóttur og Guðmundar Eyjólfssonar.
Hún var gift Herði Ásgeirssyni en hann
lést fyrir rúmu ári. Þau hjónin eignuð-
ust eina dóttur. Utför Guömundu var
gerð frá Dómkirkjunni í morgun kl.
10.30.
Þórhallur Karisson flugstjóri, Rauöa-
hjalia 11 Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 22.
nóvembernk.kl. 15.
Bjarni Jóhannesson flugvirki, Breið-
vangi 41 Hafnarfirði, sem lést af slys-
förum 8. nóvember sl. verður jarö-
sunginn frá Hafnarfjaröarkirkju mið-
vikudaginn 23. nóvember kl. 13.30.
Guðni Sigurður Erlendsson Mávahlíð
2, lést í Borgarspítalanum þann 11.
nóvember. Jarðarförin hefur farið
f ram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þórður Jónsson frá Súðavík, Bólstað-
arhlíð 52, veröur jarösunginn frá Foss-,
vogskirkju þriðjudaginn 22. nóvember
kl. 10.30.
Kristjón Örn Kristjónsson fram-
reiðslumaöur, Mánahlíð viö Suður-
landsveg, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 22. nóvem-
berkl. 13.30.
Valdimar Sigurðsson Hringbraut 52
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudag-,
inn 22. nóvember kl. 13.30.
Ása M. Aðalmundardóttir, Þórsgötu
25, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 22. nóvember kl.
13.30.
Ól..fía Jóna Hafliðadóttir frá Fossi,
Kirkjulæk í Fljótshlíö, lést í Landspít-
alanum 5. nóvember. Utförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Unnur Hlif Jónsdóttir Hildiberg, Sól-
bergi við Nesveg, andaðist að morgni
fimmtudagsins 17. nóvember.
Sigríður Thorsteinsson lést á Land-
spítalanum 17. nóvember.
Hans Jörgen Ólafsson, Austurvegi 8
Selfossi, andaðist í Borgarspítalanum
16. nóvember.
Sigfús Gunnlaugsson lést 18. nóvember
í Borgarspítalanum.
Snorri Halldórsson, forstjóri Húsa-
smiðjunnar, lést að morgni 18. þessa
mánaðar í Landakotsspítala.
Hermann Stefánsson fyrrv. mennta-
skólakennari, Hrafnagilsstræti 6 Akur-
eyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri að kvöldi 17. nóvember
Þorsteinn Magnússon frá Vestmanna-
eyjum lést 12. nóvember sl. Hann
fæddist í Vestmannaeyjum 30. júní
1919. Hann stundaði nám í húsgagna-
smíði hjá Gamla kompaníinu og lauk
sveinsprófi 1942. Vann hann þar sem
meistari til 1950. Þá stofnaði hann
byggingarfyrirtækið Smið í Vest-
mannaeyjum og rak það til 1973. Þá
varð hann verkstjóri og umsjónar-
maður bygginga hjá Vestmannaeyja-
kaupstað til ársins 1977 er Smíöahús
Kópavogskaupstaöar var stofnaö og
hann valdist til forstöðu þeirrar
stofnunar. Eftirlifandi eiginkona hans
er Guðrún A. Gunnarsson. Utför Þor-
steins verður gerð frá Kópavogskirkju
ídagkl. 15.
Marta Ólafsdóttir lést 12. nóvember sl.
Hún fæddist í Hrísakoti í Helgafells-
sveit 3. júní 1894. Foreldrar hennar
voru Olafur Olafsson og Málfríður
Jónasdóttir. Hún giftist Vilhjálmi
Jónssyni en hann lést árið 1972. Þau
eignuðust þrjú böm. Utför Mörtu
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Happdrætti
Happdrætti körfuknatt-
leiksdeildar ÍR
Dregift hefur verið í happdrætti Körfuknatt-
leiksdeildar lR. Eftirtalin númer hlutu vinn-
ing.
1. Utanlandsferðnr. 7750
2. Ljósmyndavél Pentax ME nr. 3523
3. Ljósmyndavél Fujica HD-S nr. 7244
4. Skíðaútbúnaðurnr. 4998
5. Skíðaútbúnaður nr. 3364
6. Skíðaútbúnaðurnr. 763
7. Ljósmyndavél Fujica Flash nr. 6030
8. Ljósmyndavél Fujica Flash nr. 3083
9. -34. Hljómplötuúttekt í Fálkanum, 234,373,
424, 595, 1066, 1135, 1423, 1567, 1735, 2238, 2605,
2800, 2823, 3289, 3418, 3451, 4198, 4496, 4563,
4905,5452,5768,5978,5979, 6537,6735.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 54., 59. og 62. tölubiaði Lögbirtingablaðsius 1983 á
eigninni Stekkjarflöt 17, Garðakaupstað, þingi. eign Þórðar Einars-
sonar, fer fram eftir kröfu Lffeyrissjóðs verziunarmanna, Brunabóta-
félags Islands og Garðakaupstaðar á eigninni sjálfri fimmtudaginn 24.
nóvember 1983 kl. 15.30.
Bcjarfógetinn í Garðakanpstaö.
Um helgina r Um helgina
Landsfundur hinna óánægðu
Loksins var því endanlega ljóstrað
upp í fréttatíma sjónvarpsins nú um
helgina, sem margan lífsreyndan
manninn hefur svo sem lengi grunað,
aö vinstri menn eru upp til hópa sár-
óánægðir með s jálf a sig og tilveruna,
en hægri menn leika jafnan á als oddi
og kunna sér varla læti aö mega
þreyja nokkra áratugi í jafnágætri
veröld og þessari.
Olafur Sigurðsson spuröi marg-
fróðan Breta hvort vinstrimennskan
væri nú orsök eða afleiðing
óánægjunnar, en því gat Bretinn ekki
svaraö heldur glotti bara hæst-
ánægður og hægrisinnaður.
Svavar Gestsson var hins vegar
heldur ískyggilegur og vinstri
sinnaður ásýndum í þessum sama
fréttatíma og það ekki að ófyrir-
synju. Alþýðubandalagið er lengst til
vinstri allra flokka enda kraumaði
óánægjan í allaböllum á landsfundi
þeirra nú um helgina, svo að for-
maðurinn átti fullt í fangi með að
hemja fól og flegður og er honum þó
ekki fisjaö saman piltinum þeim.
En hvaö sem líður orsök og afleið-
ingu í þessum greinum, þó birtist sú
staðreynd athugulu fólki meö ýmsu
móti, aö pólitík er alls ekki bara
spurning um hagkerfi og kjarabar-
áttu — hún er fyrst og fremst og
kannski reyndar einvörðungu
spurning um skapgerð einstaklings-
ins og þá lífshamingju sem hann
skapar sér í hverf ulum heimi.
En kannski er þaö einmitt
þaulhugsuö leikflétta hjá náttúrunni
að raða hinum óánægöu saman í eina
pólitíska þyrpingu, svo aö þeir geti
magnað sitt eftirlætis hugarástand
hver upp í öðrum, en hinir fá að sitja
nokkurnveginn óáreittir, í bili að
minnsta kosti.
Þær stöllur Sally Field og Joanne
Woodward riðu húsum föstudags- og
laugardagskvöld í bandarískri bíó-
mynd um geðbilaöa stúlku sem ól hið
innra með sér sextán persónuleika.
Stúlka þessi var einlægt að fara sér
að voöa, verða sér til athlægis í
tjörnum og skera sig á rúðubrotum,
en engum fannst þó neitt athugavert
að láta hana búa eina sér úti í bæ og
skóla stundaði hún líka eins og
ekkert heföi í skorist.
Rauðhærður sálfræðingur tók hana
upp á arma sína og hjalaði viö hana
löngum stundum án þess aö krefjast
eyris til endurgjalds og er þaö með
ólíkindum um bandarískan sálfræö-
ing, eins og þeir vita sem þekkja til í
landinu handan hafsins.
Svo kom vörpulegur piltur á vett-
vang og sparaði ekki við hana
umhyggjuna, en í bandarískum
vandamálamyndum af þessu tagi er
ævinlega nóg framboð af svo yndis-
legu fólki til að hjálpa náunganum í
neyðinni.
Bandaríkjamenn eru víst einkar
ginnkeyptir fyrir svona væmnisfull-
um vandamálaþvættingi og þeir láta
sig engu varða þótt lýsingamar af
sálarkröm hins þjáða fólks í þessum
myndum séu fjarri öllu lagi og síst til
þess fallnar að glæöa samúð almenn-
ings með þeim sem eiga við
raunveruleg geðræn vandamál aö
stríöa. Veruleiki þess ógæfusama
fólks er nefnilega allur annar en sá
upplogni Hollywood-veruleiki, sem
svona myndir útmála fyrir áhorfend-
um, en því miður veröa margir til
þess aö trúa vitleysunni.
Fréttastofa sjónvarpsins leysti sitt
helgarstarf með mikilli prýði. Sér-
hver fréttatími var uppfullur með
áhugaverð atriöi hvaðanæva úr
heiminum og erlendu fréttamennirn-
ir eru loksins búnir aö skilja að lang-
lokulestramir gamalkunnu eiga ekki
heima í jafnstuttum fréttaþætti,
heldur leggja þeir sífellt meir upp úr
stuttum og hnitmiðuðum frásögnum.
Fræðslumyndin um Taiwan var
ágæt. Kastljósið var fjölbreytt,
fróðlegt og vel unnið.
En hvemær ætlar lista- og
skemmtidedd að koma heim úr
eyðimerkurgöngunni?
Baldur Hcrmannsson.
Tilkynningar
Sími AA-samtakanna
Eigir þú viö áfengisvandamál aö stríða.þá er
sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 dag-
lega.
Sýning á öryggis-
útbúnaði fyrir
börn í bílum
Opnuð hefur verið sýning á öryggisútbúnaði
fyrir börn í aftursætum bifreiða. Sýningin er
haldin á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar
og Umferðarráðs. Fjórir aðilar, sem selja
sbkan útbúnað hérlendis, taka þátt í þessari
sýningu. Það er talið mjög brýnt að þessum
málum verði gefinn meiri gaumur en gert
hefur verið fram að þessu. Böm í aftursæti,
án öryggisbelta, eru algjörlega óvarin ef til
árekstrar kemur.
Sýningin mun standa yfir í óákveðinn tíma
og er staðsett í anddyri Heilsugæslustöðvar-
innar við Barónstíg. Ráðgert er að flytja
sýninguna milli heilsugæslustöðva hér í
Reykjavík og um land allt.
Kvenfélag Kópavogs
verður með félagsvist þriöjudaginn 22.
nóvember kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir vel-
komnir.
Prjónabók Gefjunar
Annaö árið í röð gefur Iðnaðardeild Sam-
bandsins út prjónabókina Gefjun. I þessari
bók er að finna 19 uppskriftir úr hespulopa,
þ.e. peysur, legghlífar, húfur, vettlinga o.fl. 1
þessum uppskriftum eru m.a. notaðir nýir
litir sem Iðnaðardeildin kynnir nú í haust.
Líkt og fyrri bókin kemur þessi samtímis út
á 5 tungumálum, þ.e. íslensku, ensku,
frönsku, þýsku og dönsku. Þar sem um ólíka
markaði er að ræða er leitast við að hafa upp-
,skríftlr með hefðbundnu islensku mynstri og
einnig uppskriftir með léttu yfirbragði líðandi
stundar. I hinum hefðbundnu mynstrum er þó
ekki eingöngu notast við náttúrulitina svoköll-
uðu.
Prjónabók sú er kom út á síðasta ári hefur
gengið mjög vel. Hafa selst rúmlega 100 þús.
eintök af henni í hinum ýmsu löndum.
Það er von okkar aö þessi nýja bók muni fá
svipaðar móttökur á helstu mörkuöum okkar
á næsta sölutimabili.
Iönaðardeild Sambandsins, ullariðnaður.
Ný verslun
Katel, Laugavegi 20b.
Nýlega var opnuð verslunin Katel á Lauga-
vegi. Fást þar gömul afsýrð húsgögn, gamlir
kolaofnar, gelleríplaköt auk mynda og
myndaramma, leirmunir eftir Kolbrúnu
Kjarvai, sem er nýflutt heim frá Danmörku
og skreytingar úr íslenskum jurtum og fjöru-
gróðri.
75 ára er í dag, mánudaginn 21. nóvem-
ber, frú Þuríður Filippusdóttir, Löngu-,
hlíð 3 hér í Rvík. Hún dvelur nú á
heimili dóttur sinnar vestur í Banda-
ríkjunum og er heimilisfang hennar
þar: 3036 S. Hoover II. 102 Los Angeles
California 90007 USA.
75 ára er í dag, 21. nóvember, Ingiberg-
ur Sveinsson, fyrrv. strætisvagna-
stjóri. Hann ætlar að taka á móti
gestum á heimili sonar síns í Efsta-
sundi 66 hér í Rvík. á afmælisdaginn.
Ingibergur var kvæntur Edith
Rassmussen, sem látin er. Þeim varð
þriggja bama auðið. Auk þess áttu þau
fósturdóttur.
60 ára er í dag, mánudaginn 21.
nóvember, Guðmundur Kristjánsson,
bæjarstjóri Bolungarvíkur.
Siglingar
Akraborgin
siglir nú fjórar ferðir daglega á milli Akra-
ness og Reykjavíkur.
Frá Ak. FráRvik:.
Kl. 08.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 17.30 Kl. 19.00
BELLA
Þessi öryggisvörður er allt of stór, við
cttum að taka að okknr að bjarga hon-
om.