Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Síða 16
16 DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983. Spurningin Notar þú endurskinsmerki? Anna Jónsdóttir ritari: Ekki ég sjálf, ég er oftast á bíl. Hef þó eitt á úlpu stráksins míns. Kristín Ársælsdóttir húsmóðir: Nei, yfirleitt ferðast ég ekki gangandi í myrkri. Ester ísieifsdóttir húsmóðir: Nei, ég er alltaf í ljósri úlpu. En það er samt full ástæöa til þess, ég læt börnin vera meðmerki. Páll M. Rikharðsson nemi: Oftast er það, já, en í dag gleymdi ég að skipta því yfir á þessa úlpu sem ég er í núna. Helga Gunnlaugsdóttir saumakona: Já, á hverjum degi þegar ég fer út að ganga. Garðar Oddgeirsson deildarstjóri: Já, það geri ég til að sjást betur. Þetta er mikið öryggismál. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hundahald: Eitt á yfir alla að ganga Þuríður Bergmann kom við á ritstjóm- inni: Ég er ein þeirra sem halda hund hér í Reykjavík vitandi það að slíkt sé bannaö með lögum. I sumar var ég svo á göngu meö hundinn minn, vel heftan, og var ég þá kærð. Fór málið til lög- reglustjóra sem sendi það, eftir aö hafa yfirheyrt mig um málið, til Saka- dóms. Þar var mér boðin dómsátt, sekt aö kr. 6500 sem ég hafnaði. Fór málið þá fyrir rétt þar sem ég var dæmd til að greiða fyrrnefnda upphæð ásamt málskostnaöi. Ef ég greiði ekki þá upp- hæð fer málið til fógeta til lögtaksinn- heimtu eða mér veröur gert að sæta varðhaldi allt að átta dögum. Það sem er verst við þessar aðfarir er að margir fleiri en viö sem höfum verið kærð halda hunda. Ekki er séð ástæöa til að amast við þeim. Viö sem eigum hunda og búum hér í Reykjavík þar sem hundahald er bannað viljum að þessum lögum sé breytt og hefur Hundaræktunarfélagið sent borgar- ráði tillögur um hvernig hátta mætti reglum um hundahald í Reykjavík. Hundurinn minn er sérstaklega vel lioinn af nágrönnunum þar sem hann geltir ekki. Engum gerir hann mein og vinsæll er hann af börnum. Hann hefur komiö í veg fyrir innbrot bæði hjá mér og í næstu húsum. Það er því með öllu óskiljanlegt hvers vegna lögreglan sér ástæöu til aö kæra mig og hundinn minn sem engum er nema til gagns og gamans. Það er von mín að við hundaeigendur í Reykjavík, bæði háir sem lágir, getum haft hunda okkar í friði sam- kvæmt reglugerðum. DV hafði samband viö Gylfa Jóns- son, fulltrúa hjá lögreglustjóra, og sagöi hann að lögreglan hefði aöeins afskipti af þeim hundaeigendum sem væru kærðir eöa væru á gangi meö hunda sína. Þau kærumál fara til lög- reglustjóra sem býður fólki aö losa sig við hunda sína en annars færi málið þá leiö sem Þuríður hefur talaö um. Hundurínn Labbi Míró, sem brófrítarí hefur nú veríð kærður fyrir að halda, i góðum fólagsskap. Bréfritari treystir á að Sverrir Hermannsson efli iðnaðinn af þvi að hann skapar atvinnu. Iðnaðurinn er okkar framtíð Jóhann Þórólfsson skrifar: Nú er ekki um annað meira talað en fisktittina, þessa fáu sem eftir eru í sjónum. Hvenær ætla ráðamenn þjóöarinnar að sjá aö ekki þýöir aö treysta ein- göngu á fiskinn og fiskveiðar sem okkar lifibrauð? Við þurfum aö renna fleiri stoðum undir okkar lífsafkomu og ég hefi fyrir löngu sagt: „Viö eigum að snúa okkur að iðnaöinum, þar eru mörg tækifæri.” En ennþá trúa menn á það að allt sé fullt af fiski og endalaust hægt að moka honum upp eins og menn haga sér nú skynsamlega þar eöa hitt þó heldur. Iðnaöurinn hlýtur að taka við ef ekki á að verða hér atvinnuleysi. Ég treysti á Sverri Hermannsson og forystu hans því aö hann hugsar um þjóðarhag en ekki eigin hagsmunapot eins og Stein- grimur. Og þá dettur mér í hug að spyrja: Á ekki aö fara að taka ákvörðun um kísilmálmverksmiöjuna á Reyðarfirði? Ætlar ríkisstjórnin ekki að fara að gera eitthvað í því? JSverrir vildi stóriðju við Reyðarfjörö fyrstur manna og nú veröur hann að reka vel á eftir og ég verö að treysta á aö aörir þingmenn Austurlands standi viö hlið hans í þessu máli. Eg veit að vinur minn Helgi Seljan mun gera það því að hann er þjóðhollur maður. En hér duga engin vettlingatök og þing- menn verða að vakna og hætta að hugsa um eigin bitlinga en huga aö því að efla iðnaðinn sem allra víðast um landið. Iðnaðurinn skapar atvinnuna og hann er okkar framtíð og það verða menn og hljóta að skilja. M.a. Steingrímur gæti farið út úr fína bílnum og fariö að hugsa um þetta. Taprekstur útgerðarinnar Höröur Ándrésson skrifar: Það hefur verið rætt að strika út skuldir útgerðarinnar og láta almenning borga, en hefur þjóöin efni á því þegar laun verkamanns eru um 12.000 kr. á mánuði? Nei, og þess vegna þarf að grípa til annarra úr- ræða. Ástandið á miðunum er ekki gott í dag en það hlýtur að skána. Það er ekki nóg aö það fiskist, það veröur líka að selja aflann en þó aö bæði fiskist og nógur markaður sé eru mörg útgeröar- fyrirtæki rekin með tapi. Hvert fara peningarnir þegar vel gengur? Eg þekki til útgeröarmanns sem aldrei átti eyri en hann átti krónu. Ot- gerðin hans var alltaf í topprekstri, féð fór í viöhald skipanna og annað sem kom útgeröinni til góða. Maður þessi gerði út í f jölda ára en þá var líka fiski- leysi af og til. En útgerðin var rekin á þann skynsamlega hátt aö aldrei urðu nein veruleg vandræði. Svo eru aftur útgerðarfyrirtæki sem aldrei standa undir sér, sama hvað góöærin eru mik- il. Skilst mér að afrakstur þeirra fari í tóma vitleysu en ekkert til viðhalds eða annars. Ef strika á út skuldir útgerðarfyrir- tækja verður fyrst aö fara ofan í kjöl- inn á rekstri þessara tapútgerðarfyrir- tækja. Þá kæmi margt skrýtið í ljós. En í dag er ástandið orðið slæmt og ansi hart að komast ekki á veiðar vegna þess aö ekki eru til peningar fyrir olíu. Fjöldamörg skip fá ekki olíu nema gegn staðgreiðslu og finnst mér olíufélögin vel hafa efni á að lána til skamms tíma. Það er skoðun mín að þeir útgerðar- menn sem leika sér fyrir það fé sem meö réttu ætti að fara til útgerðarinnar ættu ekki aö fá neina útstrikun skulda. Það á ekki að leyfa þeim mönnum að gera út sem gera það einungis í þeim tilgangi að spila á kerfiö. Aftur á móti á að styðja við bakið á hinum sem reyna að standa sig betur. Eg vil biðja Albert Guömundsson aö taka orð mín til greina þó að hitt væri einfaldast að strika út skuldirnar, slíkt væri líkt góð- menni eins og Albert því að þjóðin hef- ur ekki efni á þessu í dag. — þ jóðin hef ur ekki efni á slíku „ Við erum búnir að teija þé, "gæti pllturinn vorið oð kalla en brifritari segir að ótækt só að útgerðln sé rekln með tepl þeger vel fiskast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.