Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Page 19
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983.
19
Kammerleikar
Sinfóníunnar
Kammcrtónleikar Sinfónkihljómsveitar íslands í
Gamla bfói 26. nóvember.
Stjórnandi: Klauspeter Seibel.
Einloikari: Einar Grétar Svcinbjörnsson.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Svíta nr. 4;
Antonio Vivaldi: Fifllukonsert í D-dúr, nr. 6; Igor
Stravinsky: Dumbarton Oaks; Wolfgang Ama-
deus Mozart: Eine Kleine Nachtmusik.
Kammertónleikar á vegum Sinfóníu-
hljómsveitarinnnar eru fyllilega tíma-
bært fyrirbæri. Nú hefur hljómsveitin
vaxiö svo að henni hentar oft ekki aö
leika ýmis kammer og sinfónísk verk
sem minna liðs krefjast. Rétt er þó aö
athuga aö hér lendir hún í öflugri sam-
keppni viö ýmsa aöila sem iönir hafa
veriö aö plægja þann akur sem
kammermúsíkin er.
Miðjan yst á palli
Það veröur aö segjast eins og er aö
ekki var hún rétt boruleg byrjunin á
tónleikunum. Hikandi strengir og
ósamtaka trompetar sáu til þess.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Hljómsveitarmenn sem vanir eru að
sitja í upphækkunum eiga greinilega í
vandræöum með aö finna sig þegar
þeir sit ja á flötu gólf i allir í sama plani.
Fyrir styrka stjórn Klauspeters Seibel
tók leikurinn þó á sig aöra mynd og
þegar kom aö fiðlukonsertinum var
samspilið orðiö ágætt.
Skrýtin fannst mér sú ráöstöfun aö
hafa sembalinn ystan á palli og þannig
hætt á sambandsleysi milli continuo-
raddanna og einleikarans. Hér kom
þaö að vísu ekki að sök, þökk sé hæfum
flytjendum.
Einar lék Vivaldi meö glæsibrag.
Tónn hans er fínlegur, en þróttmikill
undir niöri. Fimin og tæknilegt öryggi
kom best fram í hrööu köflunum en
tónöryggiö og mýktin í öörum kaflan-
um, Largo. Þaö er mikill kúltúr í leik
Einars Grétars og tími til þess kominn
að einhver segi þaö upphátt að íslenskt
músíklíf hefur engin efni á að missa
hann aftur úr landi.
Erfiður draugur við að glíma
Nafn setursins Dumbarton Oaks
veröur ódauðlegt með konsertinum i
Es-dúr, sem þar var frumfluttur fyrir
hálfum fimmta áratug. Raunar voru
fleiri verk Stravinskys frumflutt þar,
en nafnið festist viö þennan nútíma-
lega concerto grosso. Flutningur hér á
landi hlýtur ætíð aö miöast viö frum-
flutning konsertsins í febrúar fyrra
árs. Því þótt hér væri í mörgu vel
spilað og flytjendur aö hluta þeir sömu
stóöst leikurinn nú frumflutningnum
ekki snúning. Minningin um hann er í
þessu tilfelli erfiður draugur viö aö
glíma.
Einfeidnin best
Að lokum — Eine kleine Nacht-
musik, síðasta serenaða Mozarts —
lokið hinn tíunda ágúst átjánhundruö
áttatíu og sjö. Fangfylli af yndislegri
músik. Hinn sanni, mikli Mozart.
Strengirnir léku hana vel. Kláran svip
einfeldninnar, auöheyrilega hand-
bragö Seibels hljómsveitarstjóra,
mátti vel greina. Þar þykir mér rétt að
farið, því flúr Mózarts þarfnast ekki
aukaskrauts frá flytjandans hendi.
Þaö var þegar allt kom til alls vel af
staö farið á fyrstu kammertónleikun-
um af fjórum, sem Sinfóníuhljóm-
sveitin stendur fy rir í vetur.
EM
CRAFTS USA
Síöastliöinn mánuö hefur staöið yfir
á Kjarvalsstööum sýning á bandarísk-
um handiönaði sem borið hefur yfir-
skriftina CRAFTSUSA.
Merkilegt fyrirtæki
Hún er sannarlega athyglisverö
sýningin sem frú Pamela Sanders
Brement hefur staðiö fyrir ásamt
fjölda fyrirtækja og einstakljííga. Þar
gefur aö líta bandarískán nútíma
handiönaö: matarstell /ur postulíni,
gólfmottur, hnífa, húsgogn, leðurvörur
og margt fleira. En.ilraun eru þaö ekki
munimir sem ptu hrífandi. Hand-
iðnaðurinn er yfirleitt lítt frumlegur
varningur, spm finna má í búðarglugg-
um flestrá verslunarhverfa. Og ís-
lenskir liandiönaöarmenn standa vel,
miöaúviö þá bandarisku. Hitt aftur á
móti er meira spennandi, það er sjálf
sýningin, umgjörö hennar og frágang-
ur. Rýmiö í sýningarsal Kjarvalsstaöa
hefur verið brotiö upp, deilt niöur meö
ljósum sem stýra áhorfendum í gegn-
um sviðsetningu hlutanna. Salurinn er
óþekkjanlegur, hlýlegur, birtan mjúk
og fjölbreytileg.
Amerísk list
Hér hefur ekkert veriö til sparaö.
Myndlist
GunnarKvaran
Fyrirtæki og f jársterkir einstaklingar í
„tveimur löndum” hafa tekið höndum
saman og boðið upp á raunverulega
sýningu — aö forminu til! Þessi fallega
sýning sýnir okkur hvaö er hægt aö
gera ef viljinn og fjármunimir eru til
staöar. Og nú skulum viö aöeins vona
aö þetta sé upphafið aö einhverju
stærra og frú Brement beiti sér nú
fyrir sýningu á raunverulegri list frá
Ameríku, þar sem listin meö stóru L-i
hefur veriö aö gerast síöastliöna
áratugi!
Að lokum er vert aö minnast á
sýningarskrána sem er í raun heil bók.
Þar er að finna grein eftir Lloyd E.
Herman um handiönaö og texta um
sérhvem handiðnaðarmann. Er frá-
gangur og útlit hér til fyrirmyndar.
GBK
TRODNAR SLÓDIR
Barnagaman.
Þýflandi: Einar Bragi.
Útgefandi: Iflunn.
Iðunn sendir nú á markaö bókina
Bamagaman, frásagnir úr sígildum
verkum eftir erlenda höfunda. Bókin
er unnin í samstarfi viö norska bókaút-
gáfu, J.W. Cappelens Forlag a.s. í Osló
og prentuö úti í Belgíu.
Hér er á ferðinni safnrit í sama
formi og bókaforlagiö Bjallan hefur
gefið út: Berin á lynginu, 1977 og Gest-
ir í gamla trénu, 1980; báöar skemmti-
legar og vandaöar bækur sem orðið
hafa mjög vinsælar af ungum
lesendum og vonandi eiga eftir aö
koma fleiri í því safni.
Mikiö af efninu í safnritum Bjöll-
unnar er stutt og auövelt viöureignar
fyrir unga lesendur. Aftur á móti em
sögurnar í Barnagamni allar töluvert
langar, sumar langdregnar, og marg-
ar hverjar ekki við hæfi ungra baraa.
Barnagaman, nafnið á bók Iðunnar
er fengið aö láni og hefur reyndar veriö
notaö oftar en einu sinni áður. Barna-
gaman, smásögur handa bömum meö
mörgum myndum, kom út í Reykjavík
1916 og var þaö eins og hið nýja Barna-
gaman safn erlendra sagna. 1959 kom
Bókmenntír
Hildur Hermóðsdóttir
svo aftur út nýtt Barnagaman sem var
n.k. leikja- og litabók. Loks má nefna
lestrarbókina Bamagaman eftir Rann-
veigu Löve o.fl. sem lengi var notuö viö
lestrarkennslu og er víst víöa enn.
Meö þessu nýja Barnagamni, sem á
norskunm heitir Barnas Beste, eru
gengnar slóöir sem aðrir hafa troöið en
þaö breytir því ekki að þetta er hin
eigulegasta bók í alla staöi.
Góðir höfiuidar og margir vel kunn-
ir íslenskum lesendum eiga þarna verk
eöa brot úr verkum, svo sem Selma
Lagerlöf, Leif Hamre, Kipling,
Jonatan Swift og Grimmsbræður.
Einar Bragi hefur þýtt öll þessi verk
á afbragðs blæbrigðaríka og fallega
íslensku sem er þarft innlegg handa
islenskum börnum eins og erlent les-
efni, misgott og misvel þýtt, streymir
á markaðinn.
Myndirnar í bókinni eru framúr-
skarandi fallegar, allar eftir erlenda
listamenn. Mættu íslenskir barnabóka-
teiknarar og útgefendur gefa þeim
auga og sjá hve vönduð vinna er þar
boðin ungumnjótendum.
HH
✓
V
HÖFUM OPNAÐ SÉRDEILD
MEÐ ÖLGERÐAREFNI
ALLT TIL ÖL OG VÍNGERÐAR
ÞAÐ BESTA
FRÁ ENGLANDI
TILBOÐSVERÐ Á BYRJENDASETTUM.
LJNICAN
l/erslunin
ÆAr
D
ÞAÐ BESTA
FRÁ DANMÖRKU
SENDUM í PÓSTKRÖFU. - KREDITKORTAÞJÓNUSTA. Suðurlandsbraut30, sími 35320.
y