Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984
5
Guðmundur í Klausturhólum býður í Asgrímsmynd á uppboðinu í Kaupmanna-
höfn.
FIMM MÁL-
VERKANNA
ÞEGAR SELD
Guðmundur Axelsson, sem keypti tíu
málverk eftir helstu málara Islend-
inga á málverkauppboði í Kaup-
mannahöfn fyrir skömmu, mun þegar
hafa selt fimm þeirra mynda sam-
kvæmt heimiidum DV.
Myndir þær sem hann keypti voru
meðal annars eftir Jóhannes Kjarval,
Ásgrím Jónsson og Júlíönu Sveinsdótt-
ur. Flestar myndanna keypti hann
langt yfir matsverði. Til dæmis voru
Kjarvalsmyndirnar metnar á 60 til 480
þúsund krónur íslenskar af uppboðs-
höldurunum dönsku en voru slegnar á
600 til 680 þúsund.
„Þaö er enginn vafi á því að hann
getur losnað við þessar myndir á
hærra verði en hann keypti þær á. Til
þess er jú leikurinn geröur,” sagði
maður einn, kunnugur þessum málum,
í samtali við DV. Samkvæmt heimild-
um blaðsins hafa margir spurst fyrir
um þessar myndir hjá Guðmundi. Þá
hefur það heyrst aö nokkrar þeirra
mynda sem hann hefur þegar selt hafi
farið til útlanda.
Ekki náðist í Guðmund Axelsson í
Klausturhólum vegna þessa máls.
-KÞ
Raforkuverð
hækkar
Gjaldskrá Landsvirkjunar mun Landsvirkjunar hefur hækkað um 5%
hækka um 14% frá og með næstu frá 1. ágúst 1983. Ef gjaldskráin verður
áramótum. óbreytt til ársloka 1985 hefur gjald-
I tilkynningu frá Landsvirkjun segir skrárverð Landsvirkjunar til al-
að þessi hækkun þurfi að koma til ef menningsrafveitna lækkað um 24% að
halda eigi hallalausum rekstri raungildi á þessum tíma, segir í
fyrirtækisins á næsta ári. Gjaldskrá tilkynningunni. ÖEF
„OPNUÐ SAM-
KEPPNIÁ MILLI
OLÍUFÉLAGANNA”
— segir Matthfas Á. Mathiesen
um kjörum. Svo er opnuð örlítil sam-
keppni milli olíufélaganna,” sagði
Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráð-
herra í viötali við DV.
I gær var lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um flutningsjöfnunarsjóð
olíu og bensíns. Að sögn ráðherranna
er þaö um kerfisbreytingu á
verðmyndun olíu og bensíns hér innan-
lands.
„I staðinn fyrir verðjöfnunarsjóð er
tekinn upp flutningsjöfnunarsjóður,
eins og á sementi, sem verðlagsráð
ákveðurum.”
130 ár hafa gilt ákvæði um verðjöfn-
un á olíu og bensíni og fastákveðið
söluverð um allt land. Með frumvarp-
inu er tekin upp flutningsjöfnun.
Verðmyndun olíukostnaðar hefur
veriö til endurskoðunar og í framhaidi
af því er þetta frumvarp komið fram.
-ÞG
„Þetta gerir það að verkum að hægt
er með magnkaupum að ná hagstæð-
Boðuð er aukin samkeppni milli olíufé-
laganna.
Vissir þú að hjá okkur færðu margar hugmyndir að
góðum jólagjöfum? Gjöfum sem gleðja um leið og
þær gera gagn.
Veitum sérstakan jólaafslátt af verkfærum og ýmsum
vörum fyrir þessi jól:
Gerið svo vel. Komið og skoðið úrvalið.
Skíðabogar á bíltoppinn . kr. 775.
Bílamottur 4 stk. í setti ... kr. 980.
Skíðahanskar ............ kr. 240.
Leikfangabílar ........frákr. 30.
Tölvuúr ................frákr. 233.
Litlar, þunnar reiknitölvur
Barnabílstólar
Vasaljós
Rakvélar
Olíulampar
Kassettutöskur
Topplyklasett
Vatteraðir kulda-vinnugallar
— og margt, margt fleira.
M STÖÐVARNAR BBbúðin
Grensásvegi 5