Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 20
20
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984
* «,
„Frjálslyndi páfinn”
Ævisaga Jóhannesar XXIII. vekur athygli á lítt
þekktum staðreyndum um hann
*
dWssassm&msi:? ~ * m
Péturskirkjan i Róm. Þegar Jóhannes páfi XXIII. uppgötvaði að embættis-
menn Páfagarðs lögðu stein i götu hans sagði hann skrifræðinu strið á
hendur.
Jóhannes páfi XXM. hefur lengi
verið í miklum metum meöal frjáls-
lyndra manna í heimi hér, enda gerði
hann ýmislegt til þessaöfæra kirkjuna
til nútímalegra horfs. Margir hafa
jafnvel lagt til að hann verði gerður að
dýrlingi katólsku kirkjunnar. Þaö
kann að koma nokkuð á óvart en nýút-
iSilipSI
v ''
öllum samvinnumönnum
og öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla, árs og friðar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
komin ævisaga páfa í Bretlandi, sem
full er af lofgjörð um hann, hefur oröið
til þess aö vekja athygli á ýmsum
glæsilegum staðreyndum um
Jóhannes og páfadóm hans.
Höfundur þessarar ævisögu heitir
Peter Hebblethwaite og dregur hann
fram í dagsljósiö sitthvaö sem ekki var
áður vitað, enda fékk hann aögang að
skjölum fyrrum ritara páfa, Monsjör
Capovilla. Það er talinn styrkur bókar-
innar, en á hinn bóginn er aðdáun höf-
undar á páfa svo mikil aö hann hneig-
ist til þess aö bera blak af honum, jafn-
vel í hinum viðkvæmustu málum.
Sætti sig við
fasismann
„Hann sætti sig viö fasismann
vegna þess að hann var staöreynd,”
skrifar Hebblethwaite, og bætir við:
„Það væri timaskekkja aö ásaka hann
fyrir slíkar skoðanir; það væri
óheiðarlegt aö minnast ekki á að hann
hefðihaftþær.”
I bókinni kemur skömmu síöar fram
að Roncalli (nafn Jóhannesar áður en
hann var kjörinn páfi) hafi sagt um
innrás Itala í Eþiópíu: „Stóri fiskurinn
vill alltaf gleypa litla fiskinn,” og
hlýtur slik yfirlýsing að teljast annað-
hvort einfeldningsleg ellegar harð-
brjósta. Hebblethwaite skýrir þessar
og aðrar ámóta skoðanir Roncallis
með því aö sem diplómat hafi hann
„átt meira sameiginlegt með guð-
spjöllunum en Machiavelli.”
Roncalli þjónaði lengi sem diplómat
Páfagarös á Balkanskaga og þar lærði
hann að meta notkun þjóðtungu hvers
svæðis við messur og sömuleiðis að
virða aðrar trúarskoðanir en hina
heilögu katólsku kirkju. Eftir aö hann
settist á páfastól beitti hann sér fyrir
því að umburðarlyndi kirkjunnar
gagnvart hvorutveggja jókst. Hins
vegar virtist hann ekki líklegur til stór-
ræöa framan af. Er hann var skipaður
útsendari Páfagarös í Frakklandi, þá
sextíu og þriggja ára gamall, töldu fáir
hann vera atkvæöamann á neinu sviöi
og hann var eins og ævinlega trúr og
dyggur sínum ihaldssama húsbónda,
Píusi XII. Þess má geta að það var
Píus sem árið 1948 fékk þá hugmynd aö
kalla saman það kirkjuþing sem
Jóhannes varð síðar frægur fyrir, en
Píus taldi það myndu verða þungt í
vöfum og hann gæti eins unniö störf
þess sjálfur.
„Vona að næsti páfl
verði á móti mér”
Píus haföist lítið aö síöustu ár sín á
páfastóli og raunar var eitt af síðustu
verkum hans að skipa Roncalli
kardínála í Feneyjum árið 1953. Þegar
Jóhannes XXIII.
Píus lést þremur árum síðar var
aöeins fimmtíu og einn kardínáli starf-
andi innan katólsku kirkjunnar og
flestir mjög aldraðir. Roncalli var sjö-
tíu og sex ára en tuttugu og fjórir
kardínálanna voru enn eldri. Það voru
þessi gamalmenni sem kusu Roncalli
páfa, einfaldlega vegna þess að ekki
varð samkomulag um annaö. Roncalli
átti að verða bráðabirgðapáfi og annað
ekki.
En Roncalli — Jóhannes XXIII. —
kom þeim á óvart. Hann sagði skrif-
ræðinu innan Páfagarðs stríð á hendur
og loftaði út þar innan dyra. Frjáls-
lyndi hans hefur oftast verið nefnt sem
skýring, en Hebblethwaite kemur
fram með aðra ástæðu. Fyrir daga
flökkupáfanna var páfi fangi Páfa-
garðs í fleiri en einum skilningi. Þegar
Jóhannes komst að því að tilraunir
hans til að sættast við Krússjof og
Sovétríkin voru stöðvaðar innan Páfa-
garðs og að ræður hans voru ritskoö-
aðar af starfsliði hans þá hlaut hann að
grípa til sinna ráða.
Jóhannes sýndi að sumu leyti mikla
ákveðni þegar hann gaf út páfabréfið
fræga, Pacem in terris, og hleypti
síðan kirkjuþinginu af stokkunum, en
nú mun þó ljóst orðið að við hvort
tveggja naut hann ómetanlegrar
aðstoðar Montini kardínála (sem tók
við af honum 1963 og kallaðist Páll
XI.), og raunar vafamál hvort hann
hefði komið þessu í gegn án hjálpar
Montinis. Eftir að hjólin voru farin að
snúast var Jóhannesi umhugaö um aö
sveifla pendúlnum til baka — hann
sagöist vona að næsti páfi yrði ,,á
móti mér”. Niðurstaðan er í stuttu
máh sú að án Jósúa hefði Móses verið
lítilsmegnugur...
VERÐTRVGGÐUR
VÓRNGEGN VERÐBÓLGU
Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að
Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. /2/
Betri kjör bjóðast varla. <§>SaHIVÍnnubailldnil