Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Page 27
DV. FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR1985.
39
Frjálst.óháð dagblað
Bergen og Innsbruck nýir áfangastaðir Flugleiða:
SMAAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TJEKIFJERANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaðstorgi tækifæranna.
Munu fljúga með bandaríska
skíðamenn til Austurríkis
Tvær borgir í Evrópu bætast í sumar
í flokk áfangastaöa Flugleiða. Það eru
Bergen í Noregi og Innsbruck í Austur-
ríki. Flug hefst þangað 1. júní. Gert er
ráð fyrir einni ferð í viku til aö byrja
meö til hvorrar borgar.
„Með flugi til Austurríkis erum við
að höfða til ferðamanna í sumar frá
vesturhluta Austurríkis og suðurhluta
Vestur-Þýskalands til Islands,” sagði
Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða.
„Við væntum þess að geta haldið
þessu flugi áfram eftir sumarið, að
vissu marki. Til þess að brúa biiiö yfir
vetrarmánuði ætlum viö aö höföa með-
al annars til bandarískra skíðamanna,
sem eru að fara til Austurríkis og aö
einhverju minna marki til umferðar
milli Bandaríkjanna og Miinchen-
Náttúrufegurð í Innsbruck og nágrenni er rómuð. Þangað œtla
Flugleiöir að fljúga einu sinni í viku.
mönnum hefur komið til Islands á
sumrin frá vesturströnd Noregs. Við
erum aö koma þessum ferðamönnum í
beint flug til Islands. Margir þerra
haf a komið með leiguflugi.
Viö tengjum Bergen-flugið við Norð-
ur-Atlantshafsflugiö. SAS er hætt að
fljúga inn á Stavanger og Bergen beint
frá Bandaríkjunum en þetta voru vin-
sælar flugleiðir fyrir Bandaríkjamenn.
Það er of snemmt að svara því hvort
við getum haldið fluginu til Bergen
áfram yfir veturinn. Það er auövitaö
svæðisins,” sagðiSigfús.
Til Innsbruck verður flogið um
Frankfurt í Vestur-Þýskalandi á Bo-
eing 727—200 þotu. Til Bergen verður
flogið með viðkomu í Gautaborg í Sví-
þjóð, einnig á Boeing 727.
„Talsvert mikið af norskum ferða-
draumurinn að geta haldiö sem flest-
um leiðum opnum en viö verðum að
láta hagkvæmnina ráöa. Viö reiknum
ekki með flugi yfir vetrarmánuði á
þessari leið strax,” sagði Sigfús
Erlingsson.
-KMU.
„Ég vel blátt,” sagöi Matthías
Bjamason.
Um var að ræða tvo liti veggspjalda
frá JC Selfossi, bláa og gula. Guðrún
Agnarsdóttir, þingmaður Saintaka um
kvennalista, tók að sér aö dreifa vegg-
spjöldum JC-manna um öryggi á
heimilum. Dreifingin skyldi ná til alls
þingheims.
Guörún byrjaði á heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Tveir þing-
menn Sunnlendinga (og Selfyssinga),
Þorsteinn Pálsson og Arni Johnsen,
fylgdust með þeirri athöfn með bros á
vör.
Á veggspjaldinu sem þingmenn allir
hafa nú eflaust fengið í hendur og
grandskoðað er bent á aö fikt meö eld
sé stórhættulegt. „Lítill logi getur
valdið stórbruna”, þessi orðsending er
á spjaldinu, hún er til allra, ekki bara
stjórnmálamanna.
-ÞG.
200 á biðlista á árs-
hátíð Borgarspítalans
Gífurleg aðsókn er eftir miðum á
árshátíð Borgarspítalans sem haldin
verður í veitingahúsinu Broadway
föstudaginn 15. febrúar næstkomandi.
Byrjað var aö selja aögöngumiða á
þriðjudag. Þá þegar voru 200 manns
komnir á biðlista.
Skemmtiatriöi hátíðarinnar eru aö
þessu sinni i höndum lyflækningadeild-
ar. I fyrra voru skemmtiatriði í
höndum slysadeildar og þóttu meö af-
brigðum skemmtileg. A. Bj.
— byrjað í þinghúsinu
ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐIÐ
Guðrún Agnarsdóttir gefur heilbrigðisráðherra tœkifœri á að velja réttan lit
. . . hann valdi blátt. Samflokksmenn hans, Þorsteinn og Árni, virðast
ánægðir með valið. Á vinstrihandarbúnaði heilbrigðisráðherra er að sjá að
hann hafi verið með puttana i heilbrigðismálunum.
DV-mynd GVA.
Öryggi á heimilum
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er súnnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...
Viö birtum..
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Oplð:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
Það ber árangur!
Sex ára fangelsi
— fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf
Samstarfshópur, sem dómsmálaráö-
herra skipaði 17. jan. í fyrra, leggur til
að viðurlög við brotum á lögum um
ávana- og fíkniefni veröi hækkuð.
Að tilhlutan hópsins hefur dóms-
málaráðherra lagt fram frumvarp til
laga um breytingu á núgildandi lögum
og þar segir: Brot á lögum þessum og
reglugerðum og öörum fyrirmælum
settum samkvæmt þeim varðar
sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að6
árum.
Breytingar þessar eru við lög frá
1974,1980 og 1982.
A hinum Norðurlöndunum hefur
refsihámark fyrir brot gegn ávana- og
fíkniefnalöggjöf verið hækkaö eða
verið er aö undirbúa löggjöf í þeim
tilgangi.
, JBer því brýna nauðsyn til að
samræma refsihámark þannig að ekki
komi til mismunandi strangra
refsinga, eftir því hvar í málum er
dæmt,” segir í athugasemdum við
frumvarpið.
-ÞG