Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Qupperneq 32
44
DV. FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sally, ekkja Richards Burtons,
hefur neitað öllum tilboðum um út-
gáfurétt á dagbókum hins
>• látna ieikara. Þar mun vera að
finna lýsingar á ástarævintýrum
hans í gegnum árin og ýmislegt um
samlíf hans og Elísabetar Taylor.
Sally segir að útgáfa dagbókanna
myndi valda svo mörgum
óþægindum að þær væru betur óút-
gefnar.
Joan Kcnnedy segir nú hverjum
sem heyra vill að hún sé óánægð og
einmana og sé i leit að nýjum
fylgdarsveini. Krakkaskarinn er
nú aliur farinn að heiman þannig
að Joan ætti að hafa tíma til að
þreifa fyrir sér á markaðnum.
Jack Nicholson var orðinn eitt-
bvað óöruggur með sig og lét þvi
sctja upp sérstakan öryggisbúnaö
fyrir jafnvirði cinnar milljónar
króna á heimili sínu. Aðallega var
hann þó að láta verja lístaverka-
safn sitt sem metíð er á 120 mill-
jónir króna.
HoUywoodstjörnur'nar eru mjög
með hugann við Hvíta húsið um
þessar mundir. Nú hefur heyrst að
Warren Beatty ætli sér i framboð
fyrir demókrata. Honum mun hafa
misboðiö mjög stórsigur Reagans i
síðustu kosningum.
Stjórnar-
ráðsfólk
á
árshátíð
Starfsmannafélag Stjórnarráösins
hélt árshátíö sína um síðustu helgi.
Var þar margt manna saman komið og
er örugglega óhætt aö segja að sjaldan
komj fulltrúar svo mikils valds saman
á einn staö utan þessa árshátíö.
Þarna voru saman komnir flestir
starfsmenn Stjórnarráösins, ráöu-
neytisstjórar og embættismenn
ríkisins auk ráöherra og forseta
Islands. Væntanlega hafa menn rætt
yfir glasi um hvaö haföist upp úr
kjaraátökum vetrarins og ráöuneytis-
stjórar getað rætt viö undirmenn sína
um hvor leiöin sé betri, — Kjaradómur
eöa verkföll. En af svip flestra má
ráða að þeir skemmtu sér vel.
Skipperinn ræðir við stýrimennina. Guðmundur Kjærnested, fyrrverandi skipherra á varðskipum og þjóð-
hetja i þorskastriðum, ræðir við ráðherrana Geir Hallgrimsson og Sverri Hermannsson.
Þessir drógu sig saman til skrafs og ráðagerða. Frá vinstri Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneyti, Halldór Sigurðsson, rikisendur-
skoðandi, Jón Sigurðsson, forstjóri járnblendiverksmiðjunnar, Höskuldur
Þarna eru örugglega einhver viðskiptamál á dagskrá. Þórhallur Asgeirs
son, ráðuneytisstjóri viöskiptaráðuneytis, Matthias Á. Mathiesen við
skiptaráðherra og Sigrún Þ. Mathiesen, eiginkona Matthiasar.
Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyti, Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari og Sigurður Þorkelsson ríkisféhirðir.
DV-myndir Bj. Bj.
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra á tali við Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta Íslands. Til hliðar stendur Guðmundur Benediktsson,
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu. Því miður þekkjum við ekki nöfnin
á þessum tveimur ungu konum.