Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Page 2
2
Læknar fá
18%
hækkun
Sjúkrahúslæknar fá 18 prósent
launahækkun samkvæmt samningi
sem fjármálaráöherra geröi fyrir hönd
ríkis og Reykjavíkurborgar viö
Læknafélag Islands og Læknafélag
Reykjavíkur þann 7. maí síöastliöinn.
Launahækkunin miöast viö 1. mars.
Nokkuð hærri tala hefur heyrst í
fjölmiölum um þessa hækkun. Pétur
Jónasson, starfsmannastjóri Ríkis-
spítalanna, tjáöi DV aö sú tala væri
miöuö við 1. september 1984.
Kjaradómur í máli BHM og ríkisins
hljóöaði aö jafnaöi upp á um 14 prósent
launahækkun frá 1. mars. Launahækk-
unin til sjúkrahúslækna er því fjórum
prósentum hærri.
Samningurinn tekur til nær allra
lækna á sjúkrahúsum ríkisins og borg-
arinnar en ekki heilsugæslulækna.
-KMU.
Alþýðubandaiagið:
„Samningar
knúnir
fram”
Verkalýðsmálaráð Alþýðubanda-
lagsins „skorar á öll stéttarfélög í
landinu, aö undirbúa þaö, að komandi
samningar veröi knúnir fram meö öllu
afli verkalýðshreyfingarinnar”. Þetta
er niðurlag samþykktar frá því á laug-
ardaginn. Samkvæmt heimildum DV
sátu þeir helstu forystumenn ASI, sem
á fundinum voru, hjá þegar greidd
voru atkvæöi um samþykktina.
I henni segir að brýna nauðsyn beri
til að ná víðtækri samstööu „um aö
brjóta niður launastefnu ríkisstjórnar-
innar”. Heitið er á verkalýöshreyfing-
una aö „tygja sig til baráttu fyrir því
aö endurheimta aö fullu kaupmátt
launa sem var 1982 áöur en núverandi
rikisstjóm tók viö völdum og aö fullar
veröbæturá launkomitil”.
HERB
Forseti tslands fer í opinberar heim-
sóknir innaniands sem utan á þessu
ári.
Austurlandsheimsókn
forseta íslands:
Vigdís byrjar
á Vopnaf irði
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, heimsækir Austurland í sumar
eins og DV hefur áöur skýrt frá. I haust
fer forsetinn svo í opinbera heimsókn
til Hollands og Spánar.
Austurlandsheimsóknin hefst þann
14. júlí. Forsetinn mun þá fljúga til
Vopnafjarðar um Akureyri með Flug-
leiðum og Flugfélagi Norðurlands. Síö-
an verður ekiö suður um Austfirði og
endað á Hornafiröi. Þaöan mun forset-
inn flj úga til Reykjavíkur 23. júlf.
Opinber tilkynning um heimsókn til
Hollands og Spánar hefur ekki veriö
gefin út. Bæöi löndin verða heimsótt í
sömu feröinni í september.
-KMU.
Styttan er víða sprungin eins og sjá mé. DV-mynd JBH Akureyri.
Helgi magri
og Þórunn
hyma ónýt
Helgi magri er ónýtur og Þórunn
hyma, kona hans, er jafnvel enn
ónýtari. Um er aö ræöa styttu af
þeim landnámshjónum sem stendur
á hæöinni fyrir neöan lögreglustöö-
ina á Akureyri. Hún hefur verið eitt
af helstu táknum Akureyrar og því
þætti líklega mörgum súrt ef hún
yröi aö dufti einn góöan veöurdag
eins og nú horfir. Styttan er steypt,
en öll orðin sprungin og brotin.
Styttan af „Helga magra”, eins og
hún er venjulega kölluð þó hún hafi
upphaflega heitið Landnemamir, er
eftir Jónas Jakobsson sem var
myndhöggvari á Akureyri og læri-
faðir margra myndlistarmanna i
bænum. Þaö mun hafa verið Fegrun-
arfélag Akureyrar sem lét setja
hana þama upp áriö 1957 en hún er
eign Akureyrarbæjar.
Stjórn Menningarsjóös Akureyrar
vakti nýlega athygli bæjarráös á
slæmu ástandi styttunnar. Tryggvi
Gíslason skólameistari, sem á sæti í
stjóminni, sagöi að ef ekkert yröi að
gert yrði aö brjóta hana niður. Til aö
bjarga styttunni þyrfti aö klfstra í
hana og senda hana til útlanda til aö
gera nákvæma bronsafsteypu. Langt
væri síöan fariö heföi veriö að tala
um að nauðsynlegt væri að gera við
styttuna en þaö þyldi nú enga biö.
JBH/Akureyri.
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAI1985.
Rannsókn bruggmálanna vel á veg komin:
Mikil sala
á landa í
Norðurmýri
— tveir iáta bruggið á Flateyri
Yfirheyrslur yfir bruggurunum
tveimur sem vom handteknir í
Reykjavik í síöustu viku eru vel á veg
komnar aö sögn lögreglunnar. Menn-
imir voru úrskurðaöir í gæsluvaröhald
á föstudag, annar til 17. maí og hinn til
22. mai.
Ljóst er aö um alllangt skeið hefur
átt sér staö umfangsmikil áfengis-
bruggun á heimili mannanna í Noröur-
mýrinni í Reykjavík. Eins og fram hef-
ur komið f undust á annaö þúsund lítrar
af bmggi á ýmsum framleiðslustigum
i íbúöinni.
Að sögn var heimili mannanna orðið
vel þekkt í bænum og kom mikiö af
landa þaöan í umferð. Upp komst um
bruggmáliö eftir aö annar bruggar-
anna var tekinn í söluferö úti í bæ meö
flösku af veigunum. Aflaði Iögreglan
sér húsleitarheimildar i kjölfariö.
Bmggmáliö, sem upp kom á Flateyri
um helgina, er enn í rannsókn, að sögn
lögreglunnar á Isafiröi. Liggur fyrir
játning af hálfu tveggja nágranna í
þorpinu. A laugardagskvöld fann lög-
reglan þar vestra 140 lítra af bmggi
heima hjá mönnunum.
Samkvæmt þeim heimildum sem
DV hefur aflað sér mun gangverð á
veigunum hafa verið á bilinu 500—600
krónur flaskan.
-EH
Afpantanir hjá hótelum í Reykjavík:
„Slappur maf’
„Jú, þaö hefur veriö mikiö um af-
pantanir hjá okkur í maí og ég hef
heyrt að svipaða sögu sé að segja hjá
öörum hótelum í Reykjavík,” sagði
Bjami Arnason, veitingamaður og eig-
andi HótelOðinsvé.
„Afpantanirnar hafa aö sjálfsögðu
komiö sér illa, þegar menn em búnir
að panta er öörum neitaö á meöan.
Þannig eru aðrir „blokkeraöir” frá
herbergjunum.”
Bjami sagði aö þaö væru bæöi er-
lendar ferðaskrifstofur sem íslenskar
sem heföu afpantaö. „Menn eru bjart-
sýnir, panta en siðan tekst ekki aö fylla
íferðimar.”
I fyrra var nýtingin í Oðinsvé í maí
hvorki meira né minna en 100 prósent,
nú „gott um helgar en slæmt í miðri
viku”.
„Eg á von á að nýtingin batni veru-
lega hjá okkur upp úr tuttugasta maí,”
sagðiBjarni.
„Hóteliö er ekki þaö stórt og þaö nýt-
ur mikilla vinsælda hjá utanbæjar-
mönnum sem gista í Reykjavík enda
hóteliö í hjarta borgarinnar, i miöbæn-
um.” -JGH
Opinberar byggingar kannaðar:
Óaðgengilegar
fyrír fatlaða
Stór hluti húsakosts rikisins uppfyll-
ir illa þarfir fatlaöra.
Þessar vom niðurstööur úttektar
sem gerð var af embætti húsameistara
ríkisins nýlega. Viö skoðun kom í ljós
aö hús þau sem athuguð voru hlutu aö
meðaltali 30 stig af 100 mögulegum.
Sé hugaö aö einstökum þáttum
könnunarinnar kemur i ljós aö bíla-
stæði við opinberar byggingar eru flest
illa aðgengileg fyrir fatlaöa. Merking-
ar á húsnæðinu era almennt mjög lé-
legar. Inngangur er í mörgum tilvik-
um ekki nægilega áberandi. Víöa
skortir athafnarými við útihurð, svo
sem athaf narými hjólastóla.
Hurðir eru oft þungar og stiröar.
Hústöflur em staðsettar mjög hátt og
em meö smáu letri. Lyftur em í mjög
fáum eldri byggingum. Handlista
vantar báöum megin við stigahlaup og
er halli stiganna víöa meiri en æskilegt
getur talist fy rir fatlaða.
Þá er ástandið mjög slæmt hvaö
varðar snyrtiherbergi i opinberu hús-
næöi. Nær engin bygging, sem úttekt
va'r gerð á, reyndist vera meö þetta
atriöi i lagi.
Gangar og afgreiöslur vom hins
vegar þokkalega úr garöi geröar meö
tilliti tU f atlaðra.
Þykja niðurstöður athugunarinnar
staðfesta þaö bága ástand sem margir
hafa haldið fram að sé í ferlimálum
fatlaðra í opinberum byggingum. Ein
helsta skýringin á þessu mun vera sú
að þær byggingar sem hýsa opinbera
Margar opinberar byggingar eru
fötluðu fólki erfiöar.
starfsemi eru flestar komnar nokkuö
til ára sinna. Aftur hefur oröiö vemleg
framför í hönnun bygginga með til-
komu nýrrar byggingarreglugeröar
1979.
I skýrslu húsameistara er mælt meö
því að nú veröi ráðist í tillögugerð og
framkvæmdir viö einstakar byggingar
sem auöveldi fötluöum aögang aö
þeim.
-JSS