Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAl 1985.
Utvarpslagaf rumvarpið samþykkt í neðri deild Alþingis:
Eins atkvæðis meiri-
hluti með auglýsingum
Utvarpslagafrumvarpiö var sam-
þykkt í neöri deild í gær. Atkvæða-
greiðsla um frumvarpið með öllum
breytingum, sem áöur höfðu verið
samþykktar, fór þannig að 16 sam-
þykktu það en 12 voru á móti, 11
greiddu ekki atkvæði og 1 var fjar-
verandi.
Tillaga um að útvarpsstöðvum
skuli vera heimilt að afla tekna með
auglýsingum, afnotagjaldi eða sér-
stöku gjaldi vegna útsendingar
fræðslu- og skýringarefnis var sam-
þykkt. Það var tillaga Kristínar S.
Kvaran og Guðmundar Einarssonar,
Bandalagi jafnaöarmanna. Þessi til-
laga hefur valdið hvaö mestum deil-
um innan stjórnarflokkanna en hún
er nánast samhljóöa tillögu Friðriks
Sophussonar. Þessi tillaga var sam-
þykkt með 20 atkvæðum gegn 19 og 1
var f jarstaddur. Eftir að úrslit þeirr-
ar tillögu lágu fyrir var tillaga Frið-
riks Sophussonar dregin til baka.
Alls voru 38 breytingartillögur
bornar upp til atkvæða áður en frum-
varpið s jálft var afgreitt.
Var ýmist viðhaft nafnakall eða
handauppréttingar við atkvæða-
greiðslur. Fyrsta nafnakallið var við
breytingartillögu frá Jóni Baldvini
Hannibalssyni um að útvarpsréttar-
nefnd skuli ákveöa verð á auglýsing-
um. Var þetta ein tillaga Jóns sem
boöuð var í „hrossakaupunum”
ásamt boðveitutillögunni. Þessi til-
laga var samþykkt með 16 atkvæð-
um gegn 13,10 greiddu ekki atkvæði.
Að lokinni atkvæðagreiðslu um þessa
breytingartillögu bað Páll Péturs-
son, formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins, um að hlé yrði á
þingfundi í kortér. Varð forseti deild-
arinnar við þeirri bón.
Eftir hléið var auglýsingatillaga
Bandalags jafnaðarmanna sam-
þykkt og tillaga Friðriks dregin til
baka. Við atkvæðagreiðslu hinna
ýmsu tillagna voru ýmist rofin
stjórnartengsl eða flokkatengsl. Við
nokkrar atkvæðagreiðslur sveif
„andi nýrrar viðreisnar” yfir vötn-
unum.
Þrir framsóknarþingmenn
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu,
þeir Halldór Asgrímsson, Páll
Pétursson og Stefán Valgeirsson.
Hinir framsóknarmennirnir í deild-
inni sátu hjá, þar á meðal Steingrím-
ur Hermannsson. Páll Pétursson var
harðoröur í garð sjálfstæðismanna
og sagði þá hafa brotið samkomulag.
Olafur Þ. Þórðarson, sem ásamt
Halldóri Blöndal stóð að meirihluta-
áliti menntamálanefndar, sagðist
ekki geta stutt frumvarpið eftir að
auglýsingatillagan var samþykkt.
„Niðurstaðan er ekki fengin,”
sagði Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra eftir af-
greiðslu málsins. „Niðurstaðan
liggur ekki fyrir fyrr en við atkvæða-
greiðslu í efri deild.” Formaöur
menntamálanefndar efri deildar er
Haraldur Olafsson. Það er mál
manna að þar muni framsóknar-
menn afgreiða málið með öðrum
hætti en aö sitja hjá. Staöreyndin er
að bæði Jón Baldvin og hans flokks-
menn hefðu getað fellt frumvarpið í
neðri deildinni svo og framsóknar-
mennirnir sem kusu að sit ja h já.
Boðveitutillaga Jóns Baldvins var
felld með 19 atkvæöum gegn 10.
-ÞG
Hóteleigendurá
Akureyri óhressir:
Eru argir út í veit-
ingasölu Hótel Eddu
Ingólfur og Samúel örn—klárir í slag-
inn.
„Flautað
til leiks”
— þremur leikjum í
l.deild lýstbeintí
útvarpinu í kvöld
Það verður lýst frá þremur leikjum í
kvöld. Það eru nýráönir íþróttafrétta-
menn útvarpsins Ingólfur Hannesson
og Samúel örn Erlingsson, ásamt
Ragnari Emi Péturssyni, sem lýsa
leikjunum í þættinum Flautað til leiks,
sem verður kl. 20.00 til 22.00. Ingólfur
lýsir leik Vals og Víkings í Laugardaln-
um, Samúel örn verður á Akureyri,
þar sem hann lýsir leik Þórs gegn Is-
landsmeisturunum frá Akranesi og
Ragnar örn lýsir viðureign nýliðanna
Víðis og FH, sem leika í Garðinum.
Sem sagt, þrír leikir beint í æð í kvöld.
-sos
Mikil óánægja er meðal hótel- og
veitingamanna á Akureyri með veit-
ingarekstur á Hótel Eddu, sem hefur
verið starfrækt í heimavist MA í mörg
ár. I f yrra sumar var þar í fy rsta skipti
veitingasala.
Þaö var einkum Hótel KEA, Sjallinn
og Hótel Varðborg sem fengu farþega
Ferðaskrifstofu rikisins í mat meðan
engin veitingasala var á Hótel Eddu.
Þessir staðir misstu því stóran hóp við-
skiptavina í fyrrasumar. Veitinga-
menn eru sumir æfir yfir þeirri sam-
keppni sem Ferðaskrifstofa ríkisins er
farin að efna til við hótelin og veitinga-
húsin á Akureyri sem reynt er að halda
opnum allt árið. Þetta sé nánast einok-
un af hálfu Ferðaskrifstofunnar. Hótel
Edda þurfi sáralitlu aö kosta til við
reksturinn ogséaðeinssumarhótel.
I fyrra voru uppi hugmyndir meðal
veitingamannanna aö bjóðast til að
keyra íbúa á Hótel Eddu á veitinga-
staðina og aftur til baka án greiöslu ef
ekki yrði þar farið af stað með veit-
ingasölu. Einnig var í þeirra hópi
nefndur sá möguleiki að bjóðast til að
sameinast um að reka veitingasöluna
á Hótel Eddu.
Ferðaskrifstofa rikisins gefur út
gjaldskrá í maí ár hvert sem gildir fyr-
ir Eddu-hótelin. Að sögn veitinga-
manna á Akureyri er hennar alltaf
beðið með mikilli eftirvæntingu því
verð í henni þurfi þeir að miða við til
að teljast samkeppnisfærir. Einnig
kom fram hjá þeim að launastefna
Hótel Eddu sé farin að setja minni
veitingahús og hótel víða um land í
vanda. Vegna aðstöðu sinnar geti Hót-
el Edda boðiö mjög hátt kaup í stuttan
tima og náð þannig til sín hæfu mat-
reiöslufólki „á vertíð”. A Akureyri hafi
þetta þó ekki enn orðiö að vandamáli.
JBH/Akureyri.
VILL AUKA LÆKNISFRÆÐI
LEGAR RANNSÓKNIR HÉR
Guðjón Magnússon, settur land-
læknir, telur nauðsynlegt aö auka
læknisfræðilegar rannsóknir hér á
landi í kjölfar vitneskjunnar um að
bakteríur sem valda hermannaveiki
hafafundisthér.
„Við getum ekki alltaf tekið það
sem gefið að vegna þess að viö höfum
ekki greint einhvern hlut, þá sé hann
ekki til staðar. Þaö þarf aö gera
rannsóknir til að ganga úr skugga
um að svo sé ekki,” segir Guöjón,
sem um þessar mundir dvelur i Genf
á læknaþingi.
Hann segir að honum hafi verið
kunnugt um að rannsókn stæði yfir á
hermannaveiki. Hann frétti það
reyndar af tilviljun í samtali við einn
af þeim sem stendur að rannsókn-
inni. Hann segir að ekkert sé óeðli-
legt við þaö. Þessi rannsókn var ekki
gerð á vegum heilbrigðisyf irvalda.
Guðjón segir að þó að þessi
baktería hafi verið einangruð þá sé
það ekki það sama og að hér sé kom-
inn faraldur. „Aðalatriöið er að
menn geri sér grein fyrir því að eng-
inn faraldur af hermannaveiki er
kominn til Islands,” segir Guðjón.
Hann ítrekar að í kjölfar þessarar
rannsóknar sé nauðsynlegt aö gera
itarlegar rannsóknir á tilvist
bakteríunnar hér á landi.
APH.
sjáeinnigbls.5
NOTADUR VOLVO
o MANADA
ABYRGD
mwm
mmmmmmsi
nmmm
Ef þú átt þokkalegan bíl, er hugsanlegt að við tökum
hann upp í notaðan Volvo-skiptibíl, eða nýjan Volvo
úr kassanum. Þetta gæti auðveldað þér að komast í
hóp hamingjusamra Volvo-eigenda.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200