Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAI1985.
5
Sérfræðingur um líkumar á hermannaveikifaraldri hér:
Olíklegt — en ekki hægt að
þvertaka fyrir slíkt
Þótt hermannaveiki hafi oröið vart
hér á landi hefur ekki verið um far-
aldur að ræða eins og upp hefur
komið erlendis. En hverjar eru
líkumar á f araldri?
„Mér finnst það óliklegt að hér eigi
eftir að koma upp f araldur. Eg get þó
dtki þvertekiö fyrlr það, slikt væri
heimskulegt,” segir Siguröur B. Þor-
steinsson læknir sem hefur staðiö
fyrir rannsóknum á hermannaveiki
hér á landi. .Ji’orsendan fyrir far-
aldri liggur í nútímatækni. Hann get-
ur komiö upp i sambandi við heita-
vatnslagnir, loftræstikerfi og loft-
kælikerfl” Það siðastnefnda, þar
sem bakterian hefur einkum komið
fram erlendis, höfum við ekki hér á
landi þannig að hér á landi er sú
tæknilega hætta ekki f yrir hendi.
„I rauninni er ekkert sem ætti aö
vekja sérstakan ótta i sambandi við
þessa tegund lungnabólgu umfram
aörar tegundir lungnabólgu. Hún er
alltaf hættulegur sjúkdómur. Dánar-
tala vegna hermannaveikinnar er
ekld hærri en gerist og gengur meö
aðrar tegundir lungnabólgu,” segir
SigurðurB. Þorsteinsson.
APH.
Hermannaveiki ekki ný hér á landi:
Allmargir
íslendingar
hafa mótefni
gegn
Svo virðist sem allt að 50 prósent Is-
lendinga hafi myndað mótefni gegn
algengustu bakteríunni sem veldur
hermannaveiki. Það getur bent til þess
aö veikin haf i verið lengi hér á lancÚ.
Samtímis sem sjúklingamir á
Borgarspítalanum og Landspitalanum
voru rannsakaðír i sambandi viö her-
mannaveiki var einnig kannað blóð úr
heilbrigðum íslenskum blóðgjöfum. I
þeirri rannsókn kom í ljós að nokkuð
hátt hlutfall þeirra heilbrigöu hafði
myndað mótefni gegn bakteríum sem
geta valdið hermannaveðá Allt aö 10
tegundir bakteria geta valdið veikinnL
I ljós kom að allt að 50 prósent heil-
henni
brigðra höfðu myndað mótefni gegn
algengustu bakteríunni. Sumar
tegundir bakteríanna virðast ekki hafa
komist hingað til landsins. En i hópi
þeirra heilbrigðu var algengt að 7—20
prósent hefðu mótefni gegn einhverj-
um bakteríum sem valda hermanna-
veiki. „Þetta þýðir, ef þessar
mælingar eru réttar, aö það sé
þónokkuö algengt aö fólk hafi komist i
snertingu viö þessar bakteríur
einhvem tíma á ævinni,” segir Sig-
urður B. Þorsteinsson læknir. ,3g held
aö þetta sé ekki nýr sjúkdómur hér á
landi og aö þaö sé almennt ekki talið.”
APH.
Tíðni hermannaveikinnar hér:
Meiri en í Danmörku
— erfitt að finna sambærilegar rannsóknir
annars staðar
Rannsóknir, sem gerðar hafa verið
hér á landi og í Danmörku i sambandi
viö tiöni hermannaveiki, eru sambæri-
legar. Hér á landi reyndist tíönin vera
ivið meiri. Hins vegar liggja ekki fyrir
sambærilegar kannanir frá öörum
löndum.
„Samanburður á tiðni hér á landi og
erlendis er að minu mati ekki timabær
núna,” segir Siguröur B. Þorsteinsson
læknir. Hann segir aö erfitt sé að gera
samanburð viö önnur lönd þvi ekki
fyrirfinnist sambærilegar rannsóknir
við þær sem geröar hafa veriö hér á
landi. Nokkuö algengt er aö veikin hafi
komið upp sem innanhússveiki á
sjúkrahúsum erlendis.
APH.
Þau skipa Vis-a-vis: Anna Pálina Ámadóttir, Geir-Atie Johansen, Aflal-
steinn Ásberg Sigurflsson og Guflrún Ólöf Gunnarsdóttir.
SYNGJA
ÚTIUM
ALLT
VIS-A-VIS. Þetta er nafniö á söng-
hópi þríggja Islendinga og eins Norö-
manns sem hefur starfað i Osló
undanfaríð. A dagskránni hefur
meðal annars verið íslensk visna-
syrpa, Island gjennom viser. Söng-
hópurinn kom fram fyrir Islands
hönd á listahátíð í Stafangri fyrir
nokkrum dögum. 1 sömu eríndum
veröur hann á vísnahátíö í Hangö i
Finnlandi um miðjan júní. Þar á
eftir kemur Vis-a-vis á norrænt
visnamót hérlendis sem kallast Vis-
land85.
mmmmmmm
iwi
.
85.900
MOOÚt
w» ÍÍMMÍ«».
Légmúl«7 — Reykjavík