Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Síða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAl 1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
i> r. t I Mt*vSaA&A.
■' ■■ ■ ■■ ■:
S ;.i- ■ ■■' :
'; . ■■■:
Þjóöverjinn Erich Koppel
við suðupottinn þar sem
allt kraumar dðgóða
stund við suðumark.
DV-mynd Kristján Ari
BOGANS
LITIEf
REGN-
María Hókonardóttir
sýnir okkur draktina
sem við lögðum ónot-
hœfa i hennar hendur.
Eftir meðhöndlun eins
og ný og verðið 700
krónur fyrir buxur, jakka
og bol — eyðilagt af
klórflekkjum. Allir blettir
hurfu eins og dögg fyrir
sólu en til þess að ná
þeim árangri var okkur
ráðlagt að lita f svörtu.
um að litast. UMfitð er að fegrun bakgarðsins
Iri fyrir ikaijúim.
*
-■-.
'1
Hún er dapurleg sjónin sem Uasir við
landsins þvottakonum og -mönnum
þegar taka á ljósu sumarfötin úr
þvottavélinni og i ljós kemur einn
svartur flækingssokkur sem umbreytt
hefur fínu ljósu litunum í eitthvað allt
annað. Tilraunir til úrbóta, svo sem
klórbleiking og annað álíka, valda svo
oftar en ekki meiri skaða en orðinn
var þegar. Að ekki sé minnst á þegar
nokkrir dropar klórvatnsins siettast
framan á fatnað þvottamannsins og
eyðileggja það sem hann er íklæddur
líka. Þá eru svo sannariega góð ráð
dýr.
Nákvæmlega þetta geröist einmitt á
dögunum, framan á sparifatnað
skvettust nokkrir klórdropar og eftir
umhugsun var ákveðið að láta lita flík-
umar — annað kom ekki til greina því
flekkimir eftir klóriö voru bæöi ljótir
og á mjög áberandi stöðum. En það
reyndist ekki svo auðvelt að finna fata-
litun þvi þær em ekki á hverju strái í
borginni. Eftir mikla fyrirhö&i fannst
ein — Efnalaugin Vesturgötu 53 og er
hún eini staðurinn á höfuðborgarsvæð-
inu sem tekur að sér litun á fatnaöi
fyrireinstaklinga.
Þar er litað fyrir hvern sem er — eitt
og eitt stykki. Og að sögn eigendanna,
Mariu Hákonardóttur og Erich
Köppel, hafa þau stundað þessa litun í
dle&i ár. Þau lita eingöngu bómuDar-
og ullarefni þvi annaö litast illa, en
þó er stundum hægt að lita fyrrnefnd
efni blönduö gerviefnum ef um er að
ræða til dæmis nælon sem tekur lit
ágætlega. Aö auki taka þau að sér
hreinsun á rúskinns- og leðurfatnaði.
Erich Köppel er lærður litari og kom
fyrst til Islands i eins árs vinnu fyrir
Alafoss. Arið teygðist í tíu, þá flaug
honum i hug að fara að lita fyrir fólk og
næsta skref var að kaupa efnalaug til
að koma upp vinnuaðstöðu. Siðan hafa
þau hjónin verið á sama stað á Vestur-
götunni og hafa alltaf nóg aö gera.
„Fólk kaupir ljós föt á sumrin og
kemur svo meö þau um haustið eöa
veturinn og lætur lita,” segir María.
„Gluggatjöld og jafnvel garn höfum
við líka verið beðin að lita en velúr-
gluggatjöld geta orðið eins og ný við
litun. En það er ekki hægt að segja til
um í gegnum sima hvort borgar sig að
lita efnin eða ekki, betra að fá þau
hingað og sjá fyrst. Það er hægt að lita
í hvaða lit sem er, en ef liturinn á fatn-
aðinum er dökkur i upphafi, eða með
blettum, er svartur litur oft þrauta-
lendingin.”
Verðið fyrir litun á buxum er 330
krónur, skyrtum 200—250, jökkum 425
krónur, ef þeir eru úr bómull, en 565
fyrir ullarjakka. Kápur má líka lita —
úr bómull kostar það 650 en uliarkápur
750 krónur. Einnig sjá þau um aflitun á
fatnaöi sem hefur tekið iit frá öðru með
þvi að tveir alls óskyldir misfastir litir
lenda saman í þvotti. Efnalaugin er op-
in tvo daga í viku — á þriðjudögum og
fimmtudögum frá níu til sex á daginn.
baj.